Morgunblaðið - 06.05.2014, Page 21

Morgunblaðið - 06.05.2014, Page 21
21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2014 Sjötugur Stórsveit Reykjavíkur fagnaði sjötugsafmæli Þóris Baldurssonar með tónleikum í Silfurbergi í Hörpu í gærkvöldi. Þórir (t.v.) lék á orgel og dóttir hans, Sunna (t.h.), söng tvö lög. Golli Fyrir fólk utan af landi hefur höfuðstað- urinn aðdráttarafl sem miðstöð menningar og lista og suðupottur næturlífs og uppá- koma af ýmsu tagi. Menn ímynda sér að það hljóti að vera eft- irsóknarvert að stjórna slíkri borg og gera hana enn betri og meira aðlaðandi fyrir gesti og gangandi, jafnt sveitafólk og ferðalanga komna lengra að. Þess vegna kemur á óvart hve veik og sundurlaus yfirstjórn þessa stærsta sveitarfélags landsins hefur reynst vera um áratugi. Seta í borgarstjórn virðist helst vera bið- stöð eftir þingsæti en ekki alvöru- verkefni eða þá tilraunasmiðja fyrir poppara og fólk sem unir sér við tölvuleiki. Slíkt umhverfi er auðvit- að óskaland fyrir sérvisku og er sú þekktust og lífseigust að loka beri Reykjavíkurflugvelli sem miðstöð flugsamgangna innanlands og senda eigi landsbyggðarfólk til og frá Keflavík eins og hverja aðra túrista erlendis frá. Á miðju kjör- tímabili Gnarr-stjórnarinnar fékk uppsetning fuglahúsa á Hofs- vallagötu talsverða athygli en ekki náð fyrir augum borgarbúa. En þau eru fleiri tilraunaverk- efnin sem fengið hafa að blómstra. Borgartún sem minnisvarði Hofsvallagata reyndist aðeins byrj- unin á nýrri stefnu við gatnagerð í Reykjavík og kostaði að sögn inn- an við 20 milljónir króna. „Framkvæmdin var hugsuð sem tíma- bundin lausn til að hægja á umferð og gera gangandi og hjólandi umferð fólks öruggari,“ segir í skýringu á vef borgarinnar vorið 2013. Um það leyti voru hins vegar að hefjast langtum umfangsmeiri aðgerðir við Borgartún sem áætlað var að kosta myndu 230 milljónir og þannig var lýst fyrir ári: „Meiri gróður, nýjar gangstéttir beggja vegna götunnar, nýir ljósa- staurar, hjólastígar og miðeyjar í götu til að auka öryggi gangandi vegfarenda eru meðal breytinga sem gerðar verða á Borgartúni í sumar. Eftir breytingarnar mun Borgartúnið verða falleg nútímaleg borgargata, að mati borgaryf- irvalda.“ Samkvæmt þessu er hér um stefnumarkandi fyrirmynd að ræða, því að hver vill ekki hafa sem flest- ar götur fallegar og nútímalegar. En stendur niðurstaðan undir þess- um væntingum og er þetta það sem koma skal? Ekki skal dregið úr því að aðgerða hafi verið þörf við Borg- artún sem víðar, en götumyndin sem nú blasir við er að mínu mati skelfileg. Fyrst af öllu má nefna skræpóttar gangstéttir af því um- fangi sem duga myndi breiðgötu í milljónaborg. Milli þeirra hlykkjast ósamfelldir hjólreiðastígar, þar sem hjólandi fólki er öðru hvoru beint út í bílaumferðina sem hér fer mest fyrir. Yfir tróna svo kengbognir rauðir ljósastaurar sem auka á þann óróleika sem einkennir þessa kynlegu framkvæmd. Slíkt er ekki til þess fallið að auka öryggi. Akvegur meðfram reiðvegum Í hugann koma hendingar úr al- þekktu kvæði eftir Stein Steinarr sem birtist í Nýju Dagblaði um sumarmálin 1942 og ber heitið Frumvarp til laga um akvegi með- fram reiðvegum. Síðasta vísan af þremur hljóðar þannig: Og orðstír vor lifir í verki, sem mikils er metið, þótt margt fari í súginn og þjóðin sé allskonar neyð slegin. Að endingu virðist mér óhætt að láta þess getið, að akveginn skuli menn ríða, en aka reiðveginn. Það er eins og hönnuðum þess- arar skrautgötu hafi yfirsést að þarfasti þjónninn eigi heima í um- ferðarkerfi framtíðarinnar, þegar búið er að losa okkur endanlega undan oki einkabílsins. Hesta- steinar gætu þá einnig átt heima við peningamusterin og skrifstofur borgarstjórnar sem hýsa 450 manns á sjö hæðum við Borgartún. „Algjörlega huglægt höfuðborgarhlutverk“ Það kemur æ betur í ljós að sér- ákvæði þarf að setja í skipulags- löggjöf um hlutverk sveitarfé- lagsins Reykjavíkur sem höfuðborgar. Lengi vel virtist ríkja skilningur á því og sammæli um að virða óskráðar skyldur Reykjavíkur sem höfuðstaðar landsins. Þessu er ekki lengur svo háttað eins og skýrt hefur komið í ljós á yfirstand- andi kjörtímabili. Nægir þar að benda á yfirgang af hálfu borgaryf- irvalda gagnvart umhverfi Alþingis sem stofnunar í miðborginni og ekki síður dæmalaust tillitsleysi varðandi þýðingu Reykjavík- urflugvallar fyrir flugsamgöngur innanlands og samskipti lands- byggðarfólks við fjölda opinberra stofnana. Í viðtali við vikublaðið Reykjavík 3. maí sl. segir oddviti Bjartrar framtíðar réttilega að höf- uðborgarhlutverkið sé „algjörlega huglægt en ekki niðurnjörvaðar skyldur“. Hans stefna er „að það þarf að flytja flugvöllinn. Ástæðan er þessi þétting byggðar sem er gríðarlega mikilvæg“. Fleiri en hann eru nærsýnir þegar að þessu máli kemur og það undirstrikar þörfina á sérákvæðum um borgina sem höfuðstað. Turninn og hækk- andi sjávarborð Þeim dæmum fjölgar ört sem sýna sofandahátt jafnt kjörinna fulltrúa sem sérfræðinga þegar kemur að einföldustu atriðum í skipulagsmálum borgarinnar. Turn- inn sem er í byggingu á horni Frakkastígs og Skúlagötu og sem rýfur sjónlínu til hafs var sam- þykktur einróma af borgaryf- irvöldum þrátt fyrir ítrekaðar að- varanir. Framtíðarhorfur um hækkun sjávarborðs fá ekki heldur athygli sömu aðila. Hér leiðir haltur blindan og virðist sama hvaða flokkur á í hlut. Eftir Hjörleif Guttormsson » Lengi vel virtist ríkja skilningur á því og sammæli um að virða óskráðar skyldur Reykjavíkur sem höfuð- staðar landsins. Þessu er ekki lengur svo hátt- að. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Eitthvað er rotið í henni Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.