Morgunblaðið - 06.05.2014, Qupperneq 36
ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 126. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Baltacha látin þrítug að aldri
2. „Ég rændi stúlkunum ykkar“
3. Var látin þegar sjúkrabíllinn kom
4. Gunnar Hansson og frú selja íbúðina
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Þungarokkshljómsveitakeppnin
Wacken Metal Battle mun ekki fara
fram á Íslandi í ár en hún hefur verið
haldin árlega frá árinu 2009. Sigur-
sveitir keppninnar hér á landi hafa
tekið þátt í lokakeppni Wacken á tón-
listarhátíðinni Wacken Open Air í
Þýskalandi þar sem fulltrúar 30
landa berjast um sigursætið. Þátt-
tökuþjóðum hefur farið fjölgandi,
þær eru nú 40 og þar sem aðeins 30
lönd komast að þurfa tíu að sitja hjá
ár hvert og er nú komið að Íslandi. Ís-
lenska rokksveitin The Vintage Ca-
ravan mun hins vegar leika á hátíð-
inni. Wacken Metal Battle-keppnin
verður aftur haldin á Íslandi 2015.
Ísland ekki með í
Wacken-keppninni
Peter Tompkins
óbóleikari og Val-
gerður Andrés-
dóttir píanóleikari
koma fram á tón-
leikum í sal Tónlist-
arskóla Garða-
bæjar í kvöld kl. 20
og eru þeir hluti af
tónleikaröðinni Þriðjudagsklassík í
Garðabæ. „Þar sem að gróa gullin
blóm“ er yfirskrift tónleikanna. Flutt
verða ensk þjóðlög og verk eftir Alan
Richardson, Madeleine Dring, Vaug-
han Williams, Carl Nielsen, Jón Ás-
geirsson og Þorkel Sigurbjörnsson.
Klassík í Garðabæ
Bíó Paradís mun sýna frá öllum
keppniskvöldum Eurovision-
söngvakeppninnar í
beinni útsendingu
og er frítt á allar
sýningar. Fyrra
undanúrslitakvöld-
ið er í kvöld og
hefst keppnin kl. 19.
»30
Söngvakeppni í bíósal
Á miðvikudag Austlæg átt 3-10 m/s og bjartviðri, en rigning með
köflum austanlands. Hiti 3 til 13 stig, hlýjast vestanlands.
Á fimmtudag Norðaustan og austan 5-13 m/s. Hiti 1 til 11 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan 8-13 m/s. Þurrt að mestu á norð-
vestanverðu landinu, annars rigning með köflum, einkum suðaust-
anlands. Dregur úr vindi og úrkomu síðdegis. Hiti 6 til 14 stig.
VEÐUR
Haukar unnu nauman eins
marks sigur á ÍBV, 29:28, í
fyrsta leik liðanna í úrslit-
um Íslandsmóts karla í
handknattleik í gærkvöld á
Ásvöllum. Leikurinn var jafn
og æsispennandi og ef
það sem áhorfendur fengu
að sjá í gærkvöld er reyk-
urinn af réttunum sem
verða bornir fram í þessu
úrslitaeinvígi er hægt að
eiga von á góðu í þessu úr-
slitaeinvígi. »2-3
Reykurinn af rétt-
unum á Ásvöllum
FH og Breiðablik skildu jöfn í lokaleik
1. umferðar Pepsi-deildar karla í
knattspyrnu, 1:1, þegar liðin mættust
á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði í gær.
Tómas Óli Garðarsson kom Blikum yf-
ir snemma leiks en Hólmar Örn Rún-
arsson jafnaði metin fyrir FH-inga.
Blikar stóðust pressuna og geta verið
sáttir við sinn hlut úr þessum fyrsta
leik tímabilsins. »2-3
Stigum skipt í Kapla-
krika milli FH og Blika
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Þórunn Kristjánsdóttir
Björn Jóhann Björnsson
„Það var afskaplega gaman að
syngja í Hörpu með þessum stór-
snillingi, Kristni. Alveg einstakur
karakter,“ segir Árni Bjarnason á
Uppsölum í Blönduhlíð en hann
söng ásamt karlakórnum Heimi á
tónleikum sl. sunnudag í Eldborg-
arsal Hörpu ásamt Kristni Sig-
mundssyni söngvara. Árni er elsti
félaginn í skagfirska karlakórnum
og meðal þeirra elstu sem hafa
sungið á tónleikum í Hörpu.
Árni er 82 ára og hefur verið í
kórnum frá 1959 eða í 55 ár. Um 65
ára aldursmunur er á elsta og
yngsta kórfélaganum. Árni hefur
ferðast víða um heim með kórnum
og telur líklegt að annars hefði hann
ekki ferðast jafnmikið. Hann segir
kórstarfið auka samkennd auk þess
sem það sé gott fyrir hvert sveitar-
félag að hafa starfandi kór. „Það er
gaman að starfa saman í gleði og
standa saman í erfiðleikum.“
Ekki að hætta
Spurður hvaða tónleikar séu
eftirminnilegastir segist hann ekki
geta gert upp á milli. Þó hafi verið
stórkostlegt að syngja á Heimssýn-
ingunni í Hannover árið 2000. Þar
hafi mannfjöldinn verið ansi mikill.
Árni er ánægður með nýliðunina í
kórnum, sem hefur verið þónokkur
undanfarið. „Það er gott að fá unga
menn inn, annars er þetta sjálfdauð
stofnun.“ Sjálfur segist Árni ekki
vera á þeim buxunum að hætta.
Hann sé þakklátur fyrir að vera
nokkuð heilsuhraustur. „Annars
segi ég að það sé um að gera að
vera nógu kærulaus og latur í lífinu
og ekki hafa óþarfa áhyggjur,“ seg-
ir hann hressilega.
Honum finnst alltaf gaman að
koma fram á nýjum stöðum.
Harpa hafi ekki verið
nein undantekning og
ekki þótti honum verra
að sonur hans Eyþór, sem er sviðs-
stjóri í Hörpu, tók vel á móti honum
og öllum kórnum.
Tilfinningarík stund
„Ég var mjög stressaður að taka
á móti þeim. Við vönduðum okkur
alveg sérstaklega að sópa og gera
fínt,“ segir sonurinn Eyþór Árna-
son, sviðsstjóri Hörpu. Þriðjungur
kórfélaga er skyldur honum, mágur
hans syngur í Heimi og hinir tengj-
ast Eyþóri vinaböndum.
„Ég sagði við þá að þeir yrðu að
taka besta lagið sitt; Undir blá-
himni. Annars væri það eins og Bítl-
arnir kæmu saman og tækju ekki
Yesterday,“ segir Eyþór og bætir
við að þetta hafi verið tilfinningarík
stund.
Árni á Uppsölum elstur í Heimi
Sviðsstjórinn
í Hörpu tók á
móti föður sínum
Ljósmynd/Hjalti Árnason
Feðgar Eyþór Árnason, sviðsstjóri í Hörpu, og Árni Bjarnason, elstur í Karlakórnum Heimi, ánægðir með tón-
leikana. Árni er með þeim elstu sem stigið hafa á svið í Eldborg, 82 ára, og hefur sungið í 55 ár með Heimi.
Árni Bjarnason og félagar í Karla-
kórnum Heimi voru ekki bara í
Hörpu um helgina. Kristinn
Sigmundsson söng einnig
með þeim á tónleikum í
Miðgarði á laugardags-
kvöldinu í Sæluviku
Skagfirðinga. Tónleikarnir
í Hörpu voru hins vegar
þeir stærstu sem
Heimir hefur hald-
ið hér á landi í 87
ára sögu kórsins. Á tónleikunum
var látin fjúka vísa um Kristin Sig-
mundsson sem kom til af því að
áhyggjur voru uppi meðal kór-
félaga um að Kristinn myndi
skyggja á tenórana í „fremstu röð“
Heimis og Stefán R. Gíslason kór-
stjóri gæti ekki séð til þeirra:
Skyggja mun hann engan á,
enda góður flytjandi.
En fleiri Stefán fengi að sjá
ef flytti hann lögin sitjandi.
Skyggja mun hann engan á
Á TVENNUM TÓNLEIKUM MEÐ KRISTNI UM HELGINA
Kristinn
Sigmundsson
Jóhann Gunnar Einarsson, besti leik-
maður Íslandsmóts karla í hand-
knattleik á síðustu leiktíð, hefur
ákveðið að taka fram skóna á ný eftir
eins árs hlé. Jóhann
Gunnar samdi í gær
til eins árs við ný-
liða Aftureldingar í
Mosfellsbæ. »1
Jóhann Gunnar samdi
við Aftureldingu