Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.05.2014, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.5. 2014
Þrátt fyrir að búa ekki að eigin sýn-
ingarrými verður Nýlistasafnið
áfram virkt í sýningarhaldi. Fram
undan eru sýningar á Suðurgötu 7,
Árbæjarsafni í samstarfi við Minja-
safn Reykjavíkur og Listahátíð.
„Þetta er verkefni
sem við höfum
unnið að í heilt ár
og því fylgir vegleg
útgáfa um Suður-
götu 7,“ segir Þor-
gerður.
Þá eru fyrirhug-
aðir gjörningar og
viðburðir í sumar
sem kalla ekki á fast sýningarrými.
Spurð hvort það hafi verið skipulagt
með hliðsjón af stöðunni í húsnæðis-
málum safnsins segir Þorgerður
stjórnina hafa gert tillögur að
„hreyfanlegri dagskrá“ sem þýddi
að safnið gæti athafnað sig utan síns
eiginlega sýningarrýmis.
Sem dæmi má nefna að Páll
Haukur Björnsson mun fremja
gjörning vikulega í sumar og kana-
díska listakonan Amy Howden-
Chapman mun vinna að verki í
Gálgahrauni. Einnig verða viðburðir
á Menningarnótt. Þá nálgaðist
Byggðasafn Akraness stjórnina og
lýsti yfir áhuga á því að setja upp
„ögrandi sýningu“ í samstarfi við
Nýló.
Að opna listheiminn
Nýlistasafnið var stofnað árið 1978
þegar Níels Hafstein og Magnús
Pálsson kölluðu eftir opnum fundi
myndlistarmanna til að ræða stefnur
í menningarpólitík. Stofnendur Nýló
voru breiður hópur myndlist-
armanna á ýmsum stigum á ferli sín-
um, sumir hverjir höfðu verið með-
limir í SÚM-hreyfingunni og aðrir
voru enn við nám.
Tilgangur með stofnun Nýlista-
safnsins var fyrst og fremst að opna
listheiminn á Íslandi fyrir nýjung-
um, með það að markmiði að gefa
fleiri myndlistarmönnum kost á að
vinna að list sinni hérlendis, að því
er fram kemur á heimasíðu safnsins.
Það varð fljótt mikilvægt hlutverk
Nýlistasafnsins að koma íslenskri
samtímalist á framfæri erlendis og
einnig að kynna það markverðasta í
erlendri list fyrir landsmönnum. Ný-
listasafnið varð þannig snemma að
miðstöð fyrir nýja strauma og
tilraunir í myndlist.
Úr kvikmynd um Hrein Friðfinnsson
í sýningarsal Nýló á Skúlagötunni.
Áfram virkt
í sýningar-
haldi
Páll Haukur
Björnsson
Listamennirnir sem gefa verk
sín eru langflestir úr röðum
fulltrúa Nýló, stofnendur
þess og yngri kynslóð.
Meðal annarra: Anna Hall-
in, Ásdís Sif Gunnarsdóttir,
Bjarki Bragason, Brynhildur
Þorgeirsdóttir, Eggert Pét-
ursson, Franz Graf, Guðjón
Ketilsson, Guðrún Einars-
dóttir, Haraldur Jónsson,
Hreinn Friðfinnsson, Jan
Voss, Karlotta Blöndal, Katrín
Sigurðardóttir, Kees Visser,
Margrét Blöndal, Páll Haukur
Björnsson, Ragna Róberts,
Rúna Þorkels, Rúrí, Sara
Björnsdóttir, Sigurður Guð-
mundsson, Steingrímur Ey-
fjörð, Tumi Magnússon, Unn-
ar Örn og Unndór Egill
Jónsson.
Þorgerður og Eva sem og
stjórn Nýlistasafnsins gefa
einnig verk til styrktar átak-
inu.
Verkefnastjóri upp-
boðsins er Kristín
María Sigþórsdóttir.
Þ
að er ekkert í hendi en
við erum að kanna
nokkra möguleika og
munum halda áfram að
leita,“ segir Þorgerður
Ólafsdóttir, formaður stjórnar Ný-
listasafnsins, en eins og fram hefur
komið hefur safnið misst húsnæði
sitt á Skúlagötu og stendur síðasta
sýningin nú yfir, æ ofaní æ, á verk-
um Hreins Friðfinnssonar.
Borgarráð samþykkti í vikunni
að úthluta Nýlistasafninu 400 fer-
metra húsnæði í Völvufelli 13-21 í
Breiðholti undir safneignina sem er
mikil vöxtum. Þorgerður lýsir mik-
illi ánægju með nýja rýmið, auk
þess sem samningurinn sé mjög
góður. Flutt verður í Breiðholtið
eftir þrjár vikur.
Ekki geymslurými,
heldur „lifandi safneign“
Hún tekur fram að ekki sé um
geymslurými að ræða, heldur
aðsetur fyrir „lifandi safn-
eign“ og munu verk úr safn-
eigninni verða til sýnis.
„Heimildasöfnin okkar verða
þarna líka framan af, auk
þess sem við ætlum að
bjóða upp á fræðslu og
rannsóknaraðstöðu,“ segir
Þorgerður.
Starfsmenn safnsins
munu hafa veg og vanda af
flutningnum en safneign-
arfulltrúi er Eva Ísleifsdóttir og
segir Þorgerður starf hennar aldrei
hafa verið mikilvægara. Ásmundur
Sturluson arkitekt hannar rýmið
fyrir safneignina. „Við erum mjög
spennt,“ segir Þorgerður.
Til að byrja með verður opið
hluta úr viku í Völvufellinu. Sýn-
ingatímar verða auglýstir síðar.
Þorgerður fagnar því að safn-
eignin sé komin í öruggt skjól í
Breiðholtinu og þakkar Reykjavík-
urborg fyrir hennar aðkomu að
málinu. „Nýló hefur alltaf átt gott
samstarf við borgina en við erum
einstaklega hamingjusöm núna.
Menntamálaráðuneyti hefur líka
styrkt okkur dyggilega gegnum ár-
in og án fjárlaganna er ekki víst
hvað yrði um Nýlistasafnið.“
Völvufell er ef til vill ekki mið-
svæðis en Þorgerði líst eigi að síð-
ur vel á staðinn. „FabLab er þarna
rétt hjá og svo verður gott að geta
fengið sér pylsur í Pólsku búðinni.
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti er
líka á næstu grösum. Það er helst
að það vanti gott kaffihús en bak-
aríið er svaka fínt.“
Ekki áður virk starfsemi
á tveimur stöðum
Nýlistasafnið hefur ekki í annan
tíma haft virka starfsemi á tveimur
stöðum og Þorgerður segir því um
stórt skref að ræða hjá núverandi
stjórn safnsins. „Þetta er ákveðin
tilraun en gaman verður að sjá
hvernig hún æxlast.“
Fjáröflun vegna nýs sýning-
arhúsnæðis er í gangi og mun
standa fram á haust. Hápunkt-
inum verður náð með lifandi upp-
boði í september, þar sem verk
sem allt að fjörutíu listamenn hafa
gefið safninu verða boðin upp.
„Listamenn úr röðum fulltrúa
Nýló hafa verið að gefa verk og
það hefur gengið mjög vel og fólki
er mjög hlýtt til safnsins síns,“
segir Þorgerður.
Fyrsti kostur að kaupa
Spurð um væntingar kveðst Þor-
gerður vona að sýningarrými finn-
ist sem fyrst. „Safnið hefur hins
vegar brennt sig oft á því að flytja
í húsnæði á almennum leigumark-
aði og eyða ómældum fjármunum í
lagfæringar og annað slíkt. Þess
vegna viljum við vanda valið að
þessu sinni. Við munum ekki
stökkva á fyrsta húsnæðið sem
býðst, heldur bíða eftir því rétta.
Fyrsti kostur er að kaupa hús-
næði,“ segir Þorgerður.
Hún segir staðsetninguna líka
skipta máli enda sé Nýlistasafnið
fyrir almenning en ekki þröngan
sérhagsmunahóp og þurfi fyrir
vikið að vera aðgengilegt. „Það
getur tekið tíma að finna þannig
húsnæði en biðin verður vonandi
þess virði.“
Þorgerður Ólafsdóttir og Eva Ísleifsdóttir við ný húsakynni Nýlistasafnsins í Völvufelli í Breiðholtinu. Þar verður hin verðmæta safneign Nýló geymd og sýnd.
Morgunblaðið/Golli
UNGIR SEM ALDNIR
Listakonan
Rúrí
Mikilvægt að vanda valið
NÝLISTASAFNIÐ TRYGGÐI SÉR Í VIKUNNI HÚSNÆÐI UNDIR SAFNEIGN SÍNA Í BREIÐHOLTI EN LEITIN AÐ SÝNINGARRÝMI
HELDUR ÁFRAM ÞVÍ EINS OG FRAM HEFUR KOMIÐ STENDUR NÚ YFIR SÍÐASTA SÝNING SAFNSINS Á SKÚLAGÖTU 28.
ÞORGERÐUR ÓLAFSDÓTTIR, FORMAÐUR STJÓRNAR SAFNSINS, SEGIR MIKILVÆGT AÐ VANDA VALIÐ AÐ ÞESSU SINNI OG
HELST KAUPA HÚSNÆÐIÐ ENDA HAFI NÝLÓ OFTAR EN EKKI BRENNT SIG Á LEIGUMARKAÐINUM GEGNUM ÁRIN.
* Enginn alvöru listamaður sér hlutina eins og þeir eru.Gerði hann það hætti hann að vera listamaður. Írski rithöfundurinn Oscar Wilde.ÞjóðmálORRI PÁLL ORMARSSON
orri@mbl.is