Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.05.2014, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.5. 2014
HEIMURINN
NS DA
MÚ ómst
ófrískana, konu
mannigiftist kristnum
faðr semtinni trú en þa
hún samk
ogslams vera mús
i sem er dauðasy
ögum. Dauðadóm
urm árum eftir að
arhög 1
mi m
EKVAD
QUITO E u egnakvador
m 7frá flutningaskipi sem
oeru í skipinu en búið
a mdýrategunda sem ekk
æðdarígúanaeðlu. Sameinu
EVRÓPUSAMBA
stu kepp
pusambandsins hafamkvæmdastjórnar Evró
l að kynna sjónarmið sín enkappræðum í sjónvarpi ti
B 22.-25. maí. Umsækjendurnir,kosið verður til þings ES
andalögum á sitjandi þingi, erusem valdir eru af flokkab
Lúxemborg, Martin SchultzJean-Claude Juncker frá
stadt frá Belgíu, Alexis TsipÞýskalandi, GuyVerhof frá Grikklandi og Ska
ir fyrstnefndu eru talKeller frá Þýskalandi.Tve leiðtogar ESB-
Barrosorík eljanna velja eftirmann Jose Manu a.
SAMEINUÐU Þ
NEWYORK r fulltrúiSérstak
deilunumSameinuðu þjóðanna
himi, segistí Sýrlandi, Lakhdar Bra
finu sætla að segja sig frá st
20hann hefur gegnt frá
gengur né rekur í frið
ið í átökumen talið er að um 150
stjórnarhe 011.rsins og upp
Frakkar se er Bashars
al-Assads f nst 14
sinnum frá
Félagið sem rekur námuna
neitar því að um vanrækslu
þess hafi verið að ræða en
heitir því að málið verði rann-
sakað í þaula. Slysatíðni í
tyrkneskum námum er hærri
en í öðrum Evrópulöndum og
tíðni vinnuslysa sú þriðja
hæsta í heimi. Stjórn Erdog-
ans felldi í apríl tillögu stjórn-
arandstæðinga um rannsókn
á mannskæðum námuslysum
sem orðið hafa áður á Soma-
svæðinu.
Erdogan segir að náman í
Soma hafi ver-
ið álitin „ein
sú örugg-
asta í land-
inu“.
L
eiðtogar þurfa oft að
bregðast hratt við en
um leið af háttvísi þegar
hamfarir ríða yfir eða
mannskæð slys. Þeir
þurfa að sýna samúð með syrgj-
endum en reyna samt varfærnislega
að stappa stálinu í þjóðina. Þetta
tekst stundum vel, stundum illa. En
líklega hefur forsætisráðherra Tyrk-
lands, Recep Tayyip Erdogan, sýnt
leiðtogum framtíðarinnar hvernig á
alls ekki að haga sér við slíkar að-
stæður þegar mannskætt slys varð í
kolanámu við borgina Soma í vest-
urhluta landsins á þriðjudag.
Í stað þess að sýna auðmýkt og
viðurkenna að eitthvað kynni að hafa
farið úrskeiðis í eftirliti stjórnvalda
gagnrýndi hann fréttamenn hvat-
skeytlega ef þeir dirfðust að spyrja
óþægilegra spurninga.
Önnur ummæli hans á frétta-
mannafundi þóttu með ólíkindum.
Hann sagði að vísu að málið yrði
rannsakað en rifjaði upp að vinnu-
slys yrðu í öllum fyrirtækjum, alvar-
leg slys yrðu um allan heim í kola-
námum. Hann minnti jafnvel á
námuslys í Bretlandi 1838! „Þetta er
bara svona, þetta er í eðli starfsins,“
sagði Erdogan. Margir veltu fyrir sé
hvort hann ætti við að Tyrkir nú-
tímans kynnu ekki betri ráð til að
tryggja öryggi manna sem vinna á
2.000 metra dýpi en menn notuðust
við fyrir nær tveim öldum.
Hann heimsótti síðan Soma þar
sem eiginkonur, mæður, börn og
feður syrgðu eða biðu í örvæntingu
eftir fréttum af þeim sem enn voru
niðri í námunni. Gerður var aðsúgur
að bíl forsætisráðherrans og varð
hann að leita skjóls í stórmarkaði.
Eðlilegt að sparka
í liggjandi mann
Óljósar fregnir bárust af því að ráð-
herrann hefði slegið mótmælanda, ef
til vill var þó um slysni að ræða. En
einn af nánustu ráðgjöfum hans, Yu-
suf Yerkel, sparkaði í liggjandi
mann sem sérsveitarmenn höfðu
handsamað eftir að hann hafði
sparkað í bíl Erdogans. Yerkel for-
dæmdi „ögranir og móðganir“ af
hálfu mótmælenda eftir að myndir
af atvikinu fóru eins og eldur í sinu
um netið. Hann baðst síðar afsök-
unar og sagðist hafa misst stjórn
á sér en ítrekaði samtímis um-
mælin um ögranirnar. Tals-
maður AK-flokks Erdogans,
Hüseyin Celik, varði ráðgjaf-
ann á föstudag, sagði við-
brögð hans „eðlileg“,
umræddur mótmæl-
andi hefði ráðist á
Yerkel og meitt hann. Væri Yerkel
nú í sjö daga veikindaleyfi.
AK er flokkur sanntrúaðra músl-
íma en hefur lagt áherslu á að bæta
efnahag landsmanna og það hefur
vissulega tekist, einkum með því að
ýta undir einkaframtak og iðnað.
Tyrkland er vaxandi veldi í sínum
heimshluta. Hörð viðbrögð stjórn-
valda þegar andmælt var niðurrifi
gamalla bygginga við torg í Istanbúl
í fyrra ollu mikilli reiði og fjöldamót-
mælum en fáir af kjósendum AK
tóku þátt í þeim. Og í sveitarstjórn-
arkosningum í mars sl. hélt flokk-
urinn sínu.
Stjórnarandstaðan segir að vald-
hroki Erdogans sé fyrir löngu orð-
inn slíkur að hann álíti alla andstöðu
við sig vera landráð. En þeir sem nú
ofbýður framferði Erdogans vegna
slyssins eru margir úr röðum þeirra
sem helst hafa stutt hann, ekki
heimsborgararnir í Istanbúl heldur
fólk á landsbyggðinni. Oft fátækt
fólk, og námumenn eru ekki nein
hálaunastétt í Tyrklandi fremur en
annars staðar. Forsetakosningar
verða í ágúst, vitað er að Erdogan
vill gjarnan verða arftaki flokks-
bróður síns, Abdullah Güls, núver-
andi forseta. Fram til þessa hefur
þingið kosið forseta en í ágúst mun
almenningur kjósa hann beint.
Forsætisráðherrann hefur notið
álits sem sterkur leiðtogi, harkaleg
vinslit Erdogans og voldugs trúar-
leiðtoga múslíma, sem búsettur er í
Bandaríkjunum, margs konar vald-
níðsla AK, öflugar vísbendingar um
spillingu Erdogans og sonar hans,
ekkert af þessu hefur hróflað alvar-
lega við stöðu hans. Ekki hefur það
heldur dugað til að hann hefur,
reyndar án árangurs, reynt að
banna notkun samskiptamiðla við lít-
inn fögnuð almennings. En tillits-
leysi leiðtogans, í hrópandi mótsögn
við landsföðurlega framkomu Güls
forseta, í Soma hefur nú valdið ólgu
sem sagt er að geti bundið enda á
11 ára valdaferil Erdogans.
„Þetta er
bara í eðli
starfsins“
FURÐULEGT TILLITSLEYSI OG HRANALEG ORÐ FORSÆTIS-
RÁÐHERRA TYRKLANDS Í KJÖLFAR NÁMUSLYSSINS MANN-
SKÆÐA Í SOMA Á ÞRIÐJUDAG HAFA GRAFIÐ UNDAN ÁLITI
HANS. NÚ EFAST MARGIR UM AÐ HANN NÁI ÞVÍ TAK-
MARKI SÍNU AÐ VERÐA KJÖRINN FORSETI Í ÁGÚST.
MIKIL SLYSATÍÐNI
Yusuf Yerkel, einn af ráðgjöfum Recep Tayyip Erdogans, forsætisráðherra Tyrklands, aðstoðar sérsveitarmenn á vett-
vangi með því að sparka í einn af þátttakendum í mótmælunum í Soma vegna námuslyssins.
AFP
* Við horfumst í augu við hörmungar, til þess að græðasárin verðum við að haldast í hendur, standa saman.Abdullah Gül, forseti Tyrklands.AlþjóðamálKRISTJÁN JÓNSSON
kjon@mbl.is