Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.05.2014, Page 13
ekki síður á landsbyggðinni hafa
dregið sig út á land. „Þótt ég hafi
ekkert sérstakt á móti Reykjavík
eða þéttbýli almennt þá kýs ég
miklu frekar að búa í dreifbýli sé
þess kostur. Allt hefur kosti og
galla en ég met kostina við að búa
í sveit meiri en gallana; meðal ann-
ars nálægð við náttúruna, mögu-
leika á að stunda sjálfsþurftar-
búskap, frjálsræðið og þátttöku í
frábærri menningu sem þrífst í
sveitum landsins. Þá hef ég lagt
mikið upp úr því að börnin mín
myndu alast upp úti á landi og í
snertingu við náttúruna og dýra-
lífið. Segi stundum í gamni að
börnin mín séu alin upp við getnað,
fæðingu og dauða og þetta þrennt
gert að eðlilegum hluta af lífinu,
ekki verið að pakka því inn í
glansumbúðir.“
Sýslumaðurinn hefur alltaf haft
mikinn áhuga á sjálfsþurftarbúskap
og datt þess vegna í hug að fá sér
ávaxtatré fyrir nokkrum árum.
„Eftir það sá ég að býflugur þurfti
til að frjóvga ávaxtatrén og auka-
afurðin yrði þá hunang. Gott bý-
flugnabú á að geta gefið af sér
a.m.k. 15-20 kg af hunangi við góð
skilyrði en síðasta sumar, sem ekki
var sólríkt eða hlýtt hér sunnan
lands, fékk ég reyndar bara 5 kíló.“
Anna birna segir býflugur
skemmtilegar; „háþróaðar og gagn-
legar skepnur. Einn af kostum
þess að halda býflugur er að þá
auðgar maður náttúruna í kringum
sig, því býflugurnar stuðla að auk-
inni frjóvgun plantna og þar af
leiðandi meiri gróðursæld.“
Hún bendir á að þegar byrjað er
á býflugnarækt þurfi ekki endilega
að hafa í huga blómin, heldur séu
þær ótrúlega seigar að bjarga sér
og sækja í það sem fyrir er á
staðnum t.d. hvönn, smára, víði, fíf-
il og sóleyjar. „Hunangið sem ég
fékk síðasta sumar lyktaði greini-
lega af smára og smárabreiður sem
hér eru viðfeðmar því verið aðal-
viðkomustaður þeirra.“
Lömbin og börnin
Anna Birna hefur yndi af öllum
hliðum búskaparins. „Hænur eru
frábær húsdýr. Þó að þær séu
stundum kallaðar sorphænur þá
gera þær mikið gagn við að eyða
úrgangi heimilisins með því að éta
matarleifar. Svo eru þær mjög
skemmtilegar og gaman að fylgjast
með hátterni þeirra, maður getur
reyndar stundum orðið svolítið
stirður þegar haninn galar klukkan
fjögur að nóttu beint fyrir neðan
svefnherbergisgluggann!“
Anna Birna segist stundum
hrella börnin sín með því að segj-
ast elska kindurnar meira en þau.
„Þá dæsa þau mikið. Hitt er annað
að þótt mér þyki vænt um kind-
urnar þá er ég alveg tilbúin til að
lóga þeim að hausti. Það kann að
koma mörgum spánskt fyrir sjónir
en svona er þetta bara og maður
er í þessari ræktun með það að
markmiði að fá kjöt á diskinn. Mér
líður illa ef ég á ekki a.m.k. 15
lambsskrokka í kistunni. Hér er
mikill gestagangur og margir
heimagangar sem rekast hér inn í
mat.“
Hænur eru skemmtilegar og gaman að fylgjast með hátterni þeirra, segir Anna.
Tómstundabóndanum þykir vænt um lömbin; segist elska þau mjög en sé alveg
tilbúin að lóga þeim að hausti. Markmið með ræktuninni sé að fá kjöt á diskinn.
Sjálfsþurftarbúskapur er gamalt áhugamál Önnu. Hér er hún við kálgarðinn
18.5. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
Knattspyrnumenn Einherja á
Vopnafirði leika á nýjum heimavelli í
sumar. Framkvæmdir hafa staðið í
vetur en hið nýja gras hylur nú gamla
malarvöllinn, steinsnar frá grasvell-
inum þar sem keppt hefur verið í
mörg ár.
Magnús Már Þorvaldsson, formað-
ur Einherja, er gríðarlega ánægður
með hvernig til hefur tekist. „Þetta er
glæsilegur völlur. Svæðið í heild
verður um það bil 1.100 fermetrar,
aðalvöllurinn er jafn stór Laug-
ardalsvelli –105 sinnum 68 metrar –
og nýtt æfinga- og upphitunarsvæði
þar fyrir aftan. Nú þarf enginn leng-
ur að gráta yfir því að alltaf þurfi að
æfa á keppnisvellinum!“ Til að nægi-
legt rými yrði beggja vegna vallarins
og hann þar með löglegur skv.
reglum Knattspyrnusambandsins
varð að fleyga býsna mikið berg. Það
tókst vel, búið er þökuleggja og nú er
allt eins og best verður á kosið. Þá
hefur vegleg girðing verið reist utan
um svæðið. Draumurinn er að byggja
vallarhús fyrr en seinna til að þjóna
báðum völlunum, segir Magnús.
Einherji hefur leik í 3. deildinni um
helgina. Fyrst eru þrír útileikir á
dagskrá en nýi völlurinn verður vígð-
ur miðvikudaginn 11. júní þegar
Höttur frá Egilsstöðum kemur í
heimsókn.
VOPNAFJÖRÐUR
Fleyga þurfti stóra klöpp svo nægt rými yrði í kringum nýja knattspyrnuvöllinn.
Ljósmynd/Magnús Már
„Glæsilegur völlur“
„Það fer mjög vel saman að vera sýslumaður og bóndi,“ segir Anna
Birna Þráinsdóttir, en leggur þó áherslu á að hún sé einungis tóm-
stundabóndi og afurðirnar bara til heimabrúks. „Við erum með 20
kindur, 8 hænur, nokkur þúsund býflugur, eitt bú, og stóran kálgarð.
Þá stundum við veiðar í Holtsósi, sem er hér neðan við bæinn,“ segir
sýslumaðurinn í Vík.
„Þetta er sitthvort sviðið og gott að hvíla sig á pappírum og rausi
vinnunnar með því að gramsa í mold og spjalla við skepnurnar. Á hinn
bóginn er gott að hvíla sig í skrifstofuvinnunni, t.d. eftir sauðburðar-
törn eins og núna er ný afstaðin, og gott að koma nokkra daga í kyrr-
setuvinnu, þótt hún sé ekki heilsusamleg almennt.“
HVORT TVEGGJA HVÍLD FRÁ HINU
„Þetta fer mjög vel saman“
Gangbraut við Hof á Akureyri verður máluð sem
nótnaborð. Logi Einarsson, Samfylkingu, upplýsti á
Facebook að Framkvæmdaráð hefði samþykkt að
efna fyrsta kosningarloforð hans – fyrir kosningar!
Á léttum nótum
Hugmyndir eru uppi um að fjölga orlofshúsum á Illuga-
stöðum í Fnjóskadal úr 30 í 60 á næstu árum. Nokkur
stéttarfélög eiga húsin, nýting hefur verið góð og gert er
ráð fyrir því að að spurn aukist með Vaðlaheiðargöngum.
Allt í góðu á Illugastöðum