Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.05.2014, Síða 15
ræna. Þarna voru meistarar í sínu
sviði að miðla á örlátan, kröfu-
harðan en um leið uppljómandi
hátt og sameinuðu svo vel þær
áherslur sem ég sjálf hef leitað
eftir og kalla fram það besta í mér
svo þarna varð ákveðinn vendi-
punktur á mínum ferli. Ég hef síð-
an reglulega sótt síþjálfunarnám-
skeið hjá SITI Company til að
viðhalda og auka færni mína og
næra hugann.“
Daðraði enn við
hugmyndina
Hvernig kom það til að þú ákvaðst
að fara í meira nám?
„Leikstjórnin tók sér bólstað í
mér fyrir mörgum árum eftir að
ég hóf að færa út mínar eigin list-
rænu kvíar. Það blundaði í mér
þörf fyrir að skapa mínar eigin
sýningar og ástríðan fyrir því að
leikstýra hefur smám saman ýtt
sér fram fyrir þörfina að leika og
draumur að fara í meistaranám í
leikstjórn við Columbia. Það var
hugljómun að hitta og starfa með
þeirri einstöku listakonu og vir-
tuósa sem Anne Bogart er en um
leið var það fjarlægur draumur að
eiga þess kost að komast inn í
þann útvalda sex manna hóp nem-
enda sem stunda nám við leik-
stjórnardeildina þar á ári. Svo var
það síðla hausts 2013 að mér varð
ljóst að ef ég væri ennþá að daðra
við hugmyndina að langa í þetta
nám að þá væri ekki eftir neinu að
bíða og ég yrði að láta reyna á
það með því að sækja um, ég yrði
Pálína og Ugla
er mjög nánar
mæðgur og
góðar vinkonur.
ið að mér leikstjórn samhliða leik-
listarkennslu og oftlega fyrir Kvik-
myndaskólann sem er með
leiksmiðjuverkefni sem fastan
áfanga innan leiklistardeildar skól-
ans en þar hef ég leikstýrt nokkr-
um uppfærslum. Það er einmitt
ánægjulegt hversu gott fagfólk er
þar við störf og margir kennarar
sem hafa einmitt verið við nám í
kvikmyndadeild Columbia-
háskólans sem er einmitt ein sú
albesta í heiminum. Þess utan hef
ég búið til tíma til að geta einnig
verið í sveitasælunni í Lónkoti í
Skagafirði á jörð foreldra minna
þar sem ég hef undanfarin tvö ár
rekið lítið sveitahótel og veitinga-
hús á sumrin.“
Pálína útskrifaðist úr Listahá-
skóla Íslands árið 2009 í kennslu-
fræðum leiklistar og fór þar á eftir
í sumarnám við Columbia-
háskólann undir stjórn Anne Bog-
art SITI Company. Þar lærði hún
ákveðnar leiklistaraðferðir, Suzuki,
Viewpoints og Compositon.
Pálína: „Þessar aðferðir hafa æ
síðan verið meginuppistaðan í þeim
kennsluaðferðum sem ég hef beitt
í minni leiklistarkennslu. Námið
fór langt fram úr þeim væntingum
sem ég hafði og samspilið við
kennara og nemendur var með
þeim hætti að mér leið eins og ég
hefði ratað inn í „rétt herbergi“ og
inn í nýja gátt í leiklistarlegu sam-
hengi. Þetta var klárlega besta
leiklistarnám sem ég hafði reynt á
eigin skinni bæði hvað varðar
verklegan þátt þess og hinn hug-
þá að minnsta kosti einu skrefi
nær möguleikanum á því að kom-
ast inn.“
Það er ekki hlaupið svo glatt að
því að komast inn í Columbia í
New York og segir Pálína inn-
tökuferlið hafa verið krefjandi.
Pálína: „En mánuði eftir að um-
sóknin flaug yfir hafið fékk ég boð
frá skólanum að mæta í inntöku-
próf yfir eina helgi ásamt hinum
25 umsækjendum sem var boðið
úr öllum umsóknunum sem ég veit
ekki hvað voru margar. Námið er
bæði fræðilegt og verklegt og
skiljanlegt að kalla leikstjóraefnin í
hæfileikapróf til að skera úr um
hverjir eigi raunverulegt erindi í
námið að mati skólans.
Það var heitt gólf að standa á
og svefnlaus helgi leikstjóraefna
sem kepptust við að sýna og sanna
hvað í þeim byggi. Prófið var lagt
fyrir jafnóðum og stærsti hluti
þess leikatriði sem hver leikstjóri
þurfti að búa til og sýna fyrir full-
um sal af fólki. Þetta var býsna
ögrandi próf en ég gekk sátt út í
lok þess með mitt framlag sem var
góð tilfinning. Tíu dögum síðar
hringdi svo síminn að kvöldi til frá
New York og í tólið mælti Anne
Bogart að hún vildi bjóða mig vel-
komna í skólann! Ég reyni ekki að
lýsa þeirri tilfinningu sem hélt mér
á lofti þá nótt með kampavín í
hendinni áður en ég steig upp í vél
til Noregs þangað sem ég fór að
leikstýra smágiggi.“
New York eins
og annað heimili
Pálína og Ugla eiga sterka teng-
ingu við stórborgina en báðar hafa
þær haft búsetu þar til styttri eða
lengri tíma.
Pálína: Ég flutti með Uglu til
New York haustið 2004 og var með
fasta búsetu þar til 2008. Ég hef
allar götur síðan farið á milli eftir
þörfum.
Ugla: Það er alveg merkilegt
hvað New York dregur mig alltaf
til sín. Ég bjó hérna með pabba
mínum þegar ég var tíu ára gömul,
flutti síðan aftur út með mömmu
sem unglingur, síðan komst ég inn í
Cooper Union og þar á eftir í Col-
umbia. Það eru góðir straumar sem
draga mig hingað og er því spenn-
andi að sjá hvað gerist næst. Ég er
að vinna handrit að mjög spennandi
bíómynd sem mig langar að leik-
stýra á Íslandi eftir útskrift. Ann-
ars hefur draumurinn minn alltaf
verið að vinna á milli landanna.
Eftir 10 ára dvöl í New York er ég
komin með góð sambönd hér, en
heimalandið togar líka alltaf í mig.
*Ég hafði mikla unun af því að leik-stýra og einhvern veginn fannst mérkvikmyndagerð sameina áhugamál mín.
Þessi upplifun kveikti eld í mér og hann
hefur ekki slokknað síðan, segir Ugla.
18.5. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is
– hágæða ítölsk hönnun
NATUZZI endurspeglar fullkominn
samhljóm og kjarna ítalskrar hönnunar.
NATUZZI umhverfi,staður þar sem fólki líður vel.
100%made in Italy
www.natuzzi.com
Komið og upplifið NATUZZI gallerýið okkar
NATUZZI BORGHESE MODEL 2826
LEÐUR CT 15 – L220 D103 H73/93
VERÐ 449.000,-