Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.05.2014, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.5. 2014
Ferðalög og flakk
H
eimsmeistaramótið í
knattspyrnu hefst í
Brasilíu fimmtudaginn
12. júní næstkomandi
með leik heimamanna og Ís-
landsbananna Króata í São
Paulo. Bara að okkar menn
hefðu komist áfram! Í kjölfarið
koma 63 leikir en úrslitaleikurinn
sjálfur fer fram í Rio de Janeiro
sunnudaginn 13. júlí.
Um er að ræða stærsta
íþróttaviðburð í heimi, utan Ól-
ympíuleikanna, og múgur og
margmenni mun flykkjast til
Brasilíu meðan á mótinu stendur.
Bæði til að styðja sitt lið og
njóta dýrðarinnar. Þannig hefur
komið fram að tugir Íslendinga
hafi tryggt sér miða. Þá er alls
ekki lokum fyrir það skotið að
einhverjir haldi til Brasilíu í
þeirri von að fá miða á leikina á
staðnum. Í versta falli má þá
bara anda að sér stemningunni.
Sem verður að líkindum geggjuð.
Snargeggjuð.
Þetta er í annað skipti sem
Brasilía er gestgjafi á HM í
knattspyrnu. Síðast lögðu fram-
bærilegustu sparksveitir heims
leið sína þangað árið 1950. Mótið
hefur raunar aðeins fjórum sinn-
um áður verið haldið í Suður-
Ameríku, síðast fyrir 36 árum í
Argentínu. Úrúgvæ hélt fyrsta
heimsmeistaramótið, árið 1930 og
Chile 1962. Í öll þessi fjögur
skipti kom sigurvegarinn úr álf-
unni. Úrúgvæ vann 1930 og
1950, Brasilía 1962 og Argentína
1978. Samkvæmt því verður á
brattann að sækja fyrir lið frá
Evrópu, Asíu og Afríku í sumar.
Að ekki sé talað um blessaða
Ástralana.
Heimamenn munu í sumar
leggja allt kapp á að endur-
heimta bikarinn, sem þeir hafa
unnið oftast allra þjóða eða fimm
sinnum. Þeir biðu mjög óvænt
lægri hlut fyrir hinum agnar-
smáa nágranna sínum Úrúgvæ
1950 að viðstöddum 199.854
áhorfendum á Estádio do Marac-
anã í Rio de Janeiro. Þetta er
ekki prentvilla, það voru sann-
arlega 199.854 áhorfendur á vell-
inum þann ágæta dag.
47.511 manns sáu að meðaltali
leikina 22 í Brasilíu 1950 sem er
vel yfir meðallagi þegar horft
er til mótanna nítján sem
fram hafa farið frá 1930.
Langmest aðsókn var að
mótinu í Bandaríkjunum
1994, 68.991 manns að
meðaltali. Næst kemur
HM í Þýskalandi 2006
með 52.491 gesti að
meðaltali á leik.
Menn hrista ekki viðburð
eins og HM fram úr erminni
og stjórnvöld í Brasilíu hafa
lagt út í gríðarlegan kostnað
vegna mótsins. Tólf leikvangar
í jafnmörgum borgum munu
hýsa leikina 64. Fimm þeirra
eru glænýir, auk þess sem Está-
dio Nacional Mané Garrincha í
höfuðborginni Brasilíu var jafn-
aður við jörðu og reistur á ný.
Miklar endurbætur hafa þess ut-
an verið gerðar á hinum leik-
vöngunum sex.
Á ýmsu hefur gengið
Á ýmsu hefur gengið við fram-
kvæmdirnar, einkum Arena Cor-
inthians í São Paulo, þar sem
byggingakrani hrundi í nóvember
síðastliðnum með þeim afleið-
ingum að hluti leikvangsins lask-
aðist og tveir verkamenn týndu
lífi. Um tíma leit út fyrir að
Curitiba yrði að hætta við sem
ein af gestgjafaborgunum enda
miðaði endurbótum við
leikvang borgar-
innar, Arena de
Baixade, hægar
en Alþjóðaknatt-
spyrnusambandið gat fellt sig
við. Eftir áminningu gyrtu menn
sig hins vegar í brók og nú hef-
ur verið staðfest að leikið verði
á Arena de Baixade í sumar.
Leikið var á sex leikvöngum
af þessum tólf í Álfukeppninni í
fyrrasumar og nú eru þrír til
viðbótar tilbúnir. Brasilíumenn
fullyrða að síðustu þrír leikvang-
arnir verði klárir í tæka tíð.
Ekki er nóg að reisa glæsilega
leikvanga fyrir HM, Brasilíu-
menn hafa þurft að ráðast í
stórtækar endurbætur og fram-
kvæmdir við flugvelli, lestarkerfi,
götur og vegi, auk þess sem ný
hótel hafa sprottið upp eins og
gorkúlur. Ef marka má
nýjustu fréttir miðar
þessum fram-
kvæmdum rétt mátu-
lega og einsýnt þykir
að ekki verði þeim öllum lokið
áður en gestir byrja að streyma
til landsins í byrjun næsta mán-
aðar. Yfirvöld í Brasilíu sverja
þó og sárt við leggja að það
muni ekki koma að sök. Allir
gestir eigi að komast klakklaust
til landsins og áleiðis á leikvang-
ana og enginn þurfi að halla
höfði í almenningsgörðum að
næturlagi – nema þá þeir kjósi
þann háttinn sjálfir.
Alltént. Hún er að bresta á,
íþróttaveisla ársins. Þar sem Lio-
nel Messi, Neymar yngri, Cris-
tiano Ronaldo, Karim Benzema,
Andrés Iniesta, Marco Reus,
Yaya Touré, Arjen Robben, Luis
Suárez og allir hinir kapparnir
verða í forgrunni en ég, þú, les-
andi góður, og allir hinir sófa-
spekingarnir í aukahlutverki.
Virku aukahlutverki.
STYTTIST Í HM Í KNATTSPYRNU
Nú falla öll
vötn til Brasilíu
TUTTUGASTA HEIMSMEISTARAMÓTIÐ Í KNATTSPYRNU FER FRAM Í BRASILÍU
Í SUMAR. FJÖLDI GESTA, ÞEIRRA Á MEÐAL ÍSLENDINGAR, STEFNIR NÚ
SKÓNUM TIL ÞESSA RÓMAÐA LANDS Í SUÐUR-AMERÍKU SEM UM ÁRATUGA
SKEIÐ HEFUR VERIÐ TÁKNGERVINGUR LISTFENGIS Í SPARKHEIMUM.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Listamaðurinn Ricardo Mell
leggur lokahönd á listaverk í
úthverfi Rio de Janeiro. Það
sýnir Neymar yngri, erki-
spyrni Brasilíu í dag, kveðja
drauginn frá 1950 með kossi.
Borgir sem leikið verður í á HM
Porto Alegre
Curitiba
Manaus
Cuibaá
Brasília
Fortaleza
Natal
Recife
Salvador
São Paulo
Rio de Janeiro
Belo Horizonte
B r a s i l í a
*Í versta fallimá þá baraanda að sér stemn-
ingunni.
Glæsilega skreytt gata í Rio de
Janeiro í vikunni. Já, HM er að
bresta á með allri sinni dýrð.