Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.05.2014, Síða 24
K
ópavogsþríþrautin fer fram
í dag, sunnudaginn
18.maí. Keppnin var hald-
in fyrst árið 1996 en hef-
ur verið árlegur viðburður frá
árinu 2006. Þríþrautin í Kópavogi
er sú þríþrautarkeppni sem haldin
hefur verið lengst hér á landi og
er að jafnaði fjölmennasta
þríþrautarkeppni landsins. Um er
að ræða hefðbundna keppni í þrí-
þraut sem er hluti af Íslandsmóti
í sprettþraut þar sem bestu
þríþrautarmenn landsins keppa
sín á milli. Að auki er nú boðið
upp á byrjendariðil en hann er
fyrir alla sem vilja spreyta sig á
þríþraut í fyrsta skipti og gullið
tækifæri til að kynnast íþróttinni.
Þá er einnig boðið upp á sérstaka
fjölskyldu- og unglingaþríþraut en
þar er keppt í styttri vegalengd-
um og fjölskyldan getur keppt
saman. Systkini, foreldrar, ömmur
og afar og frændur og frænkur
geta þá keppt í hverjum hluta
fyrir sig. Meðan amma eða afi
synda geta t.d. barnabörnin
hlaupið og foreldrarnir hjólað.
Keppir með mömmu sinni,
ömmu og langömmu
Friðmey Camilla Magnúsdóttir er
aðeins sex ára gömul en hún ætl-
ar að keppa í fjölskylduþrautinni
með mömmu sinni, ömmu og
langömmu í dag og er þetta
hennar fyrsta þríþrautarkeppni.
Amma hennar, Lovísa Ólafsdóttir,
segir alla fjölskylduna spennta
fyrir keppninni en sjálf er hún að
keppa í fyrsta skiptið og segist
hlakka til. „Ég er farin að hlakka
til að taka þátt en þetta er í
fyrsta sinn sem ég tek þátt í
keppni af þessu tagi og í raun af
nokkru tagi,“ segir Lovísa en hún
og móðir hennar, Þórdís Njáls-
dóttir, langamma Friðmeyjar Ca-
millu, þurfa að hafa sig alla við til
að halda í við Friðmey Camillu
en Lovísa segir ömmubarnið sitt
vera mikla íþróttastelpu. „Dóttir
mín, Ingibjörg Sævarsdóttir, er
dugleg að hreyfa sig og hleypur
mikið og auðvitað eltir ömmubarn-
ið mitt mömmu sína út um allt
þegar hún fer út að hlaupa.“
Hugarfarið skiptir meira
máli en formið
Lovísa segir alla geta tekið þátt í
þríþrautinni sem hafi heilsu til að
hreyfa sig. Þetta snúist fyrst og
fremst um hugarfar og vilja ekki
bara líkamlegt form og þol. „Ég
syndi reglulega en fer rólega yfir
og hefði aldrei trúað því að ég
myndi etja kappi við fólkið sem
syndir í hraðari brautum laugar-
innar.“ Auk þess að synda reglu-
lega hjólar Lovísa tvisvar til
þrisvar í viku og telur sig því
ágætlega undirbúna fyrir þrí-
þrautina þrátt fyrir að hún líti
alls ekki á sig sem afreksíþrótta-
mann. „Ég hélt að ég gæti þetta
ekki en mér snerist hugur þegar
ég varð vitni að fólki á sjötugs-
og áttræðisaldri stinga sér til
sunds í sundkeppni Garpa, sem
eru sundmenn eldri en 25 ára,
sem Breiðablik hélt hér í Kópa-
vogi fyrir tveim vikum. Þátttaka
er spurning um hugarfar, ekki
form. Við þurfum að venja okkur
af því að draga sjálf okkur niður.
Allir geta tekið þátt í þríþraut
sem vilja og við förum bara yfir
þetta á okkar hraða og keppum
við okkur sjálf í stað þess að
horfa í sífellu á þá bestu í kring-
um okkur.“
Lykillinn er því að sögn Lovísu
að hafa smá trú á sjálfum sér og
fara rólega af stað. Kapphlaup við
tíman er ekki fyrir alla og mik-
ilvægt að hafa það í huga að fara
rólega af stað.
Skráning er á thriko.is en einnig
er mögulegt að skrá sig á staðn-
um í fjölskylduþrautina milli kl.
11.30 og 12.30 á keppnisstað, en
keppnin sjálf hefst klukkan 13.00.
KÓPAVOGSÞRÍÞRAUTIN FER FRAM Í ÞRÍTUGASTA SINN
Fjórir ættliðir
keppa saman
í þríþraut
Stelpurnar eru klárar í þríþrautakeppnina. Sumarleg og klædd í gult stendur Lovísa Ólafsdóttir milli dóttur sinnar Ingi-
bjargar Sævardóttur og barnabarns síns Friðmeyar Camillu auk móður sinnar Þórdísar Njálsdóttur lengst til hægri.
Morgunblaðið/Eggert
* Dagskrá keppninnar:8.10 Fundur yfirdómara
8.40 1. Riðill ræstur.
9.06 2. Riðill ræstur.
9.32 3. Riðill ræstur.
10.30 Verðlaunaafhending.
13.00 Ræst í fjöskylduþrautina.
Markaður og veitingasala opin
frá 9.30 - 14.30
LOVÍSA ÓLAFSDÓTTIR ÆTLAR AÐ KEPPA Í FJÖLSKYLDU-
ÞRAUTINNI Í KÓPAVOGSÞRÍÞRAUTINNI Á SUNNUDAG,18
MAÍ, EN HÚN TEKUR ÞÁTT MEÐ MÓÐUR SINNI, DÓTTUR
OG BARNABARNI, ÞVÍ MÆTA FJÓRIR ÆTTLIÐIR TIL LEIKS.
Vilhjálmur Andri Kjartansson vilhjalmur@mbl.is
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.5. 2014
Heilsa og hreyfing
Í þríþraut er keppt í sundi, hjólreiðum og
kapphlaupi án hlés. Þannig telst allur tími
keppenda milli greina með og því mikilvægt
að vera fljótur að skipta um gír þegar einum
hluta keppninar lýkur og annar tekur við.
Þríþraut er einstaklingsíþrótt þar sem reyn-
ir hvað mest á þol keppenda. Fyrstu keppn-
ir í íþróttinni voru í Frakklandi á 3. áratug
20. aldar en hin staðlaða ólympíuvegalengd
í keppnisgreinum þríþrautar er 1500 metra
sund, 40 km hjólreiðar og 10 km hlaup.
Þrátt fyrir að keppt hafi verið í sundi, hjól-
reiðum og hlaupi til margra ára á stórmót-
um er þríþrautin ný keppnisgrein á stærri
mótum en fyrst var keppt í þríþraut á Ól-
ympíuleikunum í Sydney árið 2000. Þá er
Alþjóða þríþrautasambandið aðeins 25 ára
en það var stofnað árið 1989.
HVAÐ ER ÞRÍÞRAUT?
Þríþrautarkeppni
Sundkeppni þríþrautarinnar er 1500 metra
sund þar sem keppendur ráða sundstíl sínum
og tækni sjálfir.
Morgunblaðið/Ómar
Í þríþraut er stranglega bannað að hjóla of stutt
fyrir aftan næsta keppanda og þegar keppandi
tekur fram úr hefur hann 20 sek. til þess.
Morgunblaðið/Ómar
Þegar hlaupið er skiptir engu hvort sprett er
eða jafnvel gengið, það eina sem má ekki er að
skríða eða hlaupa berfættur.
Morgunblaðið/Ómar
Ekki þykir öllum hvítlaukur góður enda ekki sama hvernig hann er matreiddur. Nú benda hins
vegar ýmsar rannsóknir til þess að hvítlaukur hjálpi okkur að draga úr stressi. Ýmsar þjóðsög-
ur eru til um hvítlaukinn og lækningamátt hans en nú er ljóst að margt af því virðist vera rétt.
Hvort hann fæli í burtu goðsagnakenndar verur og óvætti er enn óvíst en stressið flýr hann.
Hvítlaukur slær á stressið