Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.05.2014, Blaðsíða 25
18.5. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25
M
ikill vöxtur er í lengri og
styttri göngum um ís-
lenska náttúru og sér-
staklega yfir sumartím-
ann þegar náttúruan býður
göngumönnum upp á sitt besta. Því
má búast við því að fjöldi nýrra
göngumanna taki sér göngustaf í
hönd og kynnist íslensku náttúrunni í
lengri og styttri göngum. Þá getur
verið gott að vita hvað skal taka með
sér í nesti. Mörg okkar hafa áhyggur
af fatnaðinum en nestið er ekki síður
mikilvægt og segir Linda Udenga-
ard, leiðsögumaður hjá Útivist,
helsta boðorðið vera að taka með sér
mat sem fólki finnst góður. „Það er
stranglega bannað að vera í megrun
á fjöllum og mikilvægt að fólk taki
með sér mat sem það borðar reglu-
lega og finnst góður. Fjallaferðir eru
ekki staðurinn til að gera gífurlegar
breytingar á mataræðinu. Við þurf-
um næga orku í ferðinni og það er
betra að taka með sér mat heim en að
vera svangur á fjöllum,“ segir Linda.
Vatn er nauðsynlegt og þó svo ís-
lenska fjallavatnið sé eitt það besta í
heiminum gleymum við því oft að
ekki er alltaf hægt að fylla á brúsann.
„Fyrir dagsgöngu þarf að gera ráð
fyrir 1 lítra af vatni og 0,5 til 1 lítra af
heitu vatni. Veðrið getur verið alla-
vega á Íslandi og ef það rignir eða
kalt er í veðri er mjög gott að geta
fengið sér heitt kaffi, kakó eða te-
bolla. Þá má líka nota heita vatnið í
bollasúpu.“ Linda segir mikilvægt að
borða góðan morgunmat fyrir allar
göngur og taka með sér nesti fyrir
morgunsnarl eins og banana eða
hálfa samloku. Í hádeginu er borðað
vel og þá á fólk að smyrja sér góðar
brauðsneiðar, flatbökur eða annan
orkuríkan og góðan mat. Í síðdeg-
iskaffi er fínt að taka með eitthvað
smurt og kannski kexköku eða smá
súkkulaði. „Fjallasnarl er líka nauð-
synlegt en það er eitthvað sem við er-
um að gæða okkur á milli mála þegar
þarf orku í brekkurnar. Margir taka
með sér hnetur, súkkulaði, salt-
stangir eða harðfisk sem er þá gott
að hafa í poka í vasanum.“
Góður matur er lykilatriði á fjöllum og betra er að taka meira með sér og taka
matinn aftur heim en að vera svangur í fjallaferðum.
Morgunblaðið/Eyþór
Enga megrun
á fjöllum
Gott brauð með osti og agúrku auk
banana er fínt morgunsnarl á fjalli.
NESTISBOXIÐ ÞARF AÐ
VERA FULLT AF GÓMSÆT-
UM MAT ÞEGAR FARIÐ ER Í
GÖNGUFERÐIR Á FJÖLL.
HVAÐ Á AÐ VERA Í NESTISBOXINU Á FJÖLLUM?
A
nna Hulda Ólafsdóttir er doktorsnemi í iðn-
aðarverkfræði við Háskóla Íslands. Hún var
kjörin lyftingakona ársins 2012 og 2013, á
fjögur Íslandsmet í ólympískum lyftingum og
varð fyrsta íslenska konan til að keppa á Evrópumeist-
aramóti í ólympískum lyftingum þegar hún keppti í Ísr-
ael í apríl síðastliðinn. Þá varð hún einnig fyrsta konan
til að komast á pall á Norðurlandamótinu í ólympískum
lyftingum en það var árið 2012. Anna komst í úrslit á
heimsmeistaramótinu í crossfit í fyrra með liðinu sínu
frá Crossfit Reykjavík og er núna að keppa á Evrópu-
meistaramótinu í crossfit um helgina og keppir svo á
Norðurlandamótinu í lyftingum eftir tvær vikur.
Gælunafn: Var stundum kölluð Anna massi þegar ég
var í menntó og grunnskóla ;)
Íþróttagrein: Ólympískar lyftingar og crossfit. Var í
landsliðinu í áhaldafimleikum þegar ég var yngri.
Hversu oft æfir þú á viku?
Það er ofsalega misjafnt. Ég reyni að æfa alltaf þegar
tími gefst. Þegar það eru tarnir í náminu eða
vinnunni þá kemst ég stundum ekkert í ein-
hvern tíma. En svo koma tímabil sem ég
get mætt á hverjum degi. Svona að
jafnaði reyni ég að ná 4-5 æfingum á
viku í 60-90 mín. í senn.
Hver er lykillinn að góðum ár-
angri?
Það er vafalaust mjög persónubundið.
Hjá mér hjálpar það rosalega að hafa
einhver markmið, t.d. einhver mót til að
stefna að. En það sem er líklega mikilvæg-
ast er umgjörðin í kringum líf hvers og eins.
Mataræði, venjur, vinir og þeir sem standa
manni næst.
Hvernig er best að koma sér
af stað?
Finna sér íþrótt sem við-
komandi hefur gaman af.
Vera óhrædd/ur við að
prófa eitthvað nýtt. Ekki
sakar að hafa einhvern
með sér sem er dríf-
andi.
Hvað ráðlegg-
urðu fólki sem
vill hreyfa sig
meira?
Finna sér félaga
sem er í sömu
hugleiðingum eða
jafnvel kominn enn
lengra. Það hjálpar
mikið að hafa ein-
hvern sér við hlið til
að koma manni af
stað.
Hvernig heldurðu þér í formi þegar þú ferð í frí?
Við Gunni minn, maðurinn minn, erum dugleg að fara í
fjallahlaup þegar við erum í fríi. Ef það eru engin fjöll
nálægt má yfirleitt finna crossfit-box einhvers staðar
nálægt. Annars hafa undanfarin frí hjá okkur öll snúist í
kringum einhverjar keppnisferðir hjá mér svo þá er
sjálfkrafa mikil hreyfing í fríinu. Annars þarf líkaminn
líka tíma til að hvíla sig.
Ertu almennt meðvituð/ur um mataræðið?
Ég er mjög meðvituð um mataræði. Sjálf er ég hálfgerð
grænmetisæta og passa vel upp á það að borða hollan og
góðan mat.
Hvað borðarðu til að halda þér í formi?
Pro VX vegan prótein frá Sci-MX og BCAA amínósýrur
frá sama merki.
Svo er ég tíður gestur hjá Gló sem er að mínu mati allra
besti veitingastaðurinn í Reykjavík. Þar fæ ég mér yfir-
leitt RAW rétt eða grænmetisrétt.
Hvaða óhollusta freistar þín?
Súkkulaði og ostur.
Hvað ráðleggurðu fólki sem vill bæta mataræðið?
Taka lítil skref í einu og prófa sig áfram. Það sem
hentar einum hentar ekki endilega öllum.
Hvaða gildi hefur hreyfing fyrir þig?
Gildi hreyfingar sem slíkt felst í því að geta tekist
á við þær áskoranir sem lífið hefur upp á að bjóða.
Hreyfing hefur ekki síður andlega jákvæð áhrif á
mig en líkamlega. Einnig er þetta svo frábær
samvera með vinum og fjölskyldu. Við Gunni
njótum þess í botn að hreyfa okkur saman og
takast á við nýjar áskoranir saman.Ekki
skemmir það að litla daman okkar nýtur
hreyfingarinnar líka.
Hver eru algeng mistök hjá fólki
við æfingar?
Ég tel að margir sem stunda
líkamsrækt sér til heilsubót-
ar einvörðungu séu oft að
þjálfa mikið til einangraða
vöðvahópa og hugs-
anlega minna í svona
náttúrulegum hreyf-
ingum eins og hné-
beygju eða rétt-
stöðulyftu.
Hverjar eru fyrir-
myndir þínar?
Ég á margar fyr-
irmyndir í lífinu en
þó verð ég að segja að
mín helsta fyrirmynd er
hún móðir mín heitin, Guð-
rún Þórsdóttir. Hún var
sannkölluð hreystikona og til
fyrirmyndar í öllu því sem hún tók
sér fyrir hendur.
KEMPA VIKUNNAR ANNA HULDA ÓLAFSDÓTTIR
Vöðvastæltur verkfræðingur
Byrjendur sem lengra komnir hlauparar verða að hafa það í huga að
eftir hvert hlaup skal teygja á vöðvum meðan þeir eru enn heitir. Þetta
gildir alveg óháð þreytu eftir hlaupið. Teygjur draga úr líkum á
meiðslum eins og tognun á liðböndum og vöðvum.
Teygjum strax eftir hlaup* Aldur er engin fyr-irstaða - nema í huganum.
– Jackie Joyner-Kersee frjálsíþróttakona
Syrusson Hönnunarhús
Síðumúla 33
VERÐ FRÁ 79.500,-
Mikið úrval áklæða og leðurs
Syrusson - alltaf með lausnina!
GLÆSILEIKI OG ÞÆGINDI
Í FYRIRRÚMI