Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.05.2014, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.5. 2014
Matur og drykkir
Þ
etta eru æskuvinir mínir, við vorum saman í Menntaskólanum
í Reykjavík og höfum haldið hópinn vel. Við köllum þetta
prjónó en erum líklega bara tvö sem prjónum og þar stend
ég mig allra verst,“ segir Greta Salóme Stefánsdóttir tónlist-
arkona sem bauð heim í girnilegt forréttarnasl, lax í aðalrétt og
berjaeftirrétt með vanillurjóma.
„Ég reyni að halda góðum tengslum við vini og fjölskyldu og býð
þeim gjarnan heim í mat en þar sem ég bý ekki í stórri íbúð og er
ekki með stórt borðstofuborð höfum við gjarnan þann háttinn á í
stærri boðum að hafa bara hálfgert hlaðborð og fólk getur þá sest
með diskinn sinn þar sem hentar og það myndast góð stemning. Það
gerðum við einmitt núna þar sem við vorum átta.“
Af öðrum boðum en kvöldverðarboðum má nefna að vöffluboð Gretu
Salóme eru orðin víðfræg og eru það engar hefðbundnar vöfflur með
sultu og rjóma sem eru þá bornar fram heldur belgískar af bestu
gerð með alls konar meðlæti. Tónlistarkonan segir það þó vera gert
spari. Og slík boð séu allsvakaleg og kalli á aukahlaup daginn eftir.
Matseðillinn var ákveðinn út frá því að boðið yrði sumarlegt og
létt. „Mér finnst lax alveg rosalega góður. Við erum gjarnan með
hann á boðstólum en þá
yfirleitt í hefðbundnari
útgáfu með bökuðu
grænmeti en þetta
er spariútgáfa
okkar af rétt-
inum. Hópurinn
var mjög sáttur
við matinn.“
Greta segir að
hún hafi það lík-
lega úr uppeldinu að
finnast gaman að halda
matarboð. „Ég er alin upp
við það hjá mömmu og pabba
á æskuheimili mínu í Mos-
fellsbæ að þar voru mjög
gjarnan haldin matarboð og
veislur. Ég man svo vel eftir
þessari tilfinningu þegar búið
var að þrífa allt, maturinn var
tilbúinn og verið var að bíða
eftir gestunum. Þessu logni á
undan storminum sem var svo
skemmtilegt. Án efa hef ég erft
sitt hvað af áhuga mínum úr for-
eldrahúsum.“
Hinum sérstaklega girnilega laxarétti stungið inn í ofn.
Elvar Þór
Karlsson og
Greta Salóme
Stefánsdóttir.
MATARBOÐ HJÁ GRETU SALÓME
Ekki of flókið
en gott
* „Ég man svovel eftir þessaritilfinningu þegar bú-
ið var að þrífa allt,
maturinn var tilbú-
inn og verið var að
bíða eftir gestunum.
Þessu logni á undan
storminum sem var
svo skemmtilegt.“
Gamli vinahópurinn úr
MR frá vinstri: Erna
Svanhvít Sveinsdóttir,
Elsa Bjarnadóttir, Guð-
geir Sturluson, Birgitta
Engilberts, Garðar Þór
Jónsson, Elvar Þór Karls-
son, Gyða Erlingsdóttir
og Greta Salóme sjálf.
TÓNLISTARKONAN GRETA SALÓME STEFÁNSDÓTTIR
BAUÐ HEIM Í SPARIÚTGÁFUNA SÍNA AF LAXARÉTTI OG
MATURINN SLÓ Í GEGN.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Fyrir átta
Um 1,5 kg laxaflök
½ -1 sítróna
salt og pipar eftir smekk
½-1 krukka mangó chutney
1 msk. fersk engiferrót, rifin
1 rauð paprika
1 camembertostur
pistasíukjarnar
Skerið laxaflökin í bita og raðið í
eldfast mót. Kreistið safann úr sí-
trónunni yfir og kryddið með
salti og pipar eftir smekk. Smyrjið
þá mangó chutney yfir laxinn og
er magnið valið eftir smekk. Strá-
ið þá rifnu engiferrótinni yfir.
Skerið papríkuna í litla bita og
setjið yfir. Þar næst er camem-
bertosturinn skorinn í þunnar
sneiðar og þeim raðað ofan á.
Pistasíukjörnum er stráð yfir allt í
lokin. Bakið í ofni við um það bil
200°C gráður í 20 mínútur.
Lax með mangó chutney og camembert
Það var sumar-
stemning í
boðinu og
bleikur for-
drykkur í boði.