Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.05.2014, Qupperneq 38
Vandasamt getur reynst að mynda íþróttamót
með mörgum krökkum á fleygiferð. Eitt gott
ráð er að hækka ISO stillingu myndavélarinnar
þegar það sem mynda á er á mikilli hreyfingu.
Hugaðu að
myndbyggingunni
Í flestum tilfellum viltu forðast
að setja myndefnið beint í miðju
myndflatarins. Einföld leið til
þess að skapa áhugaverða mynd-
byggingu er að notast við svo-
kallaða þriðjungsreglu. Þá skipt-
irðu myndfletinum í þrjá jafna
hluta lárétt, og þrjá jafna hluta
lóðrétt. Reyndu að stilla mynd-
efninu þannig upp að áhugaverð-
ur hlutar myndefnisins (t.d. augu)
séu staðsettir þar sem þessar
þriðjungsreglur í gegnum mynd-
flötin skerast. Ef um stórt mynd-
efni er að ræða er ágætt að
reyna að láta það fylla út í
þriðjung (eða tvo þriðjunga)
annaðhvort lárétt eða lóðrétt.
Langar línur (húsveggi, sjóndeild-
arhring) er heppilegt að staðsetja
meðfram þriðjungslínum. Með
þessari einföldu tækni er hægt
að skapa gott jafnvægi í mynd-
arammann og eðlilegar uppstill-
ingar.
Með smáæfingu geturðu svo
reynt að nota gullinsniðið, en þá
er skiptingin örlítið minni. (62%
myndrammans í stað 67%)
Mundu samt að hér er um þum-
alputtareglur að ræða.. Að því
sögðu kalla ákveðin myndefni á
að myndefnið sé haft fyrir miðju
myndarinnar. Það á einkum við
þegar um er að
ræða fullkomlega
samhverft mynd-
efni, og í sumum
tilfellum langar
beinar línur sem
renna út í sjón-
deildarhringinn.
Lýsingin skap-
ar meistarann
Lýsing er án efa sá þáttur sem
mun hafa mest áhrif á útkomu
myndatökunnar. Það er að
mörgu að huga þegar kemur að
lýsingu, en öllu jafna má segja
að meiri lýsing auki líkurnar á
vel heppnaðri mynd. Það er
hægt að kaupa ýmiss konar
aukabúnað til að bæta birtu-
skilyrði í ljósmynda-
vöruverslunum, en fyrir
áhugafólk er oft hægt að
komast af með einföldum hús-
ráðum sem geta gert herslumun-
inn.
Dagsbirta er yfirleitt besta
birta sem í boði er, en hún getur
líka verið vandmeðfarin. Ef þú
ert að taka myndir af fólki getur
sólarljós skapað leiðinlega skugga
í kringum augu og nef, sér-
staklega ef sól er hátt á lofti.
Við slíkar aðstæður getur verið
kjörið að nota leifturljós til þess
að lýsa upp andlitið og draga úr
skuggum, þó svo að um hábjart-
an dag sé að ræða.
Rétt notkun leifturljóssins er
líka nauðsynleg innandyra. Það er
þó rétt að hafa í huga að leift-
urljós getur skapað mjög harða
og ónáttúrulega lýsingu, sér-
staklega ef það lýsir beint á við-
fangsefnið. Það getur líka skapað
leiðinlega skugga aftan við við-
fangsefnið. Við slíkar aðstæður er
oft kjörið að nota ljósdreifi sem
settur er framan við flassið til að
dreifa birtunni og draga úr kast-
ljósáhrifum og hörðum skuggum.
Í flestum tilfellum er auðvelt að
útbúa eitthvað til að dreifa ljósi
með einföldum hætti. Í sumum
tilfellum nægir að halda hvítu
blaði framan við flassið. Ýmiss
konar hálfgegnsætt plast er líka
kjörið, svo sem úr plastflöskum.
Það má útbúa ágætan ljósdreifi
með því að nota plasthúðaðan
bréfpoka (betur þekktur sem
ælupoki) yfir flassið, svo dæmi sé
nefnt. Á betri leifturljósum er oft
hægt að snúa flassinu og láta
birtuna „skoppa“ af öðrum fleti,
til dæmist endurkastast af vegg
eða lofti, fremur en að beina því
beint gegn viðfangsefninu.
Annað gott húsráð er að skapa
endurvarp náttúrulegrar dags-
birtu með því að spegla því af
glampandi fleti. Slíkt má auðveld-
lega búa til með pappaspjaldi og
álpappír. Með réttri staðsetningu
endurvarps má með einföldum
hætti draga verulega úr skugg-
um, og ekki er verra að slíkan
búnað má nota með góðum ár-
angri bæði innan- og utanhúss.
Hreyfing – óvinur
ljósmyndarans
Einn helsti ógnvaldur ljósmynd-
ara er hreyfing, ekki síst þar
sem hún getur komið fram bæði
hjá ljósmyndaranum og viðfangs-
efninu. Það er hægt að draga úr
hættu á hreyfðum myndum með
nokkrum einföldum ráðum. Ein
leið getur verið að nota leiftur-
ljós til að frysta myndefnið.
Þetta getur reynst mjög vel með
myndefni sem er á stöðugri
hreyfingu, eins og rennandi vatn.
Það má líka nota það á fólk á
hlaupum svo eitthvað sé nefnt.
Það ætti þó að forðast að nota
þetta ráð á hluti sem endurkasta
birtu.
Ef myndefnið er stærra en svo
að hægt sé að lýsa það upp með
flassi eða öðrum trixum, þá getur
verið gott ráð að auka ljósnæmi
vélarinnar með því að hækka
ISO-stillinguna. Þannig má taka
skýrari myndir við verri birtu-
skilyrði eða auka hraðann við
betri skilyrði. Þetta getur komið
sér vel ef myndefnið er á mikilli
hreyfingu, til dæmis á íþrótta-
mótum sumarsins.
Ef aðstæður leyfa er besta
lausnin oft að nota þrífót. Þá er
myndavélinni haldið stöðugri og
hægt er að taka myndina á
minni hraða. Það krefst þess þó
að myndefnið sé stöðugt líka. Ef
þrífótur er ekki við höndina má
oft bjarga sér með öðrum leið-
um. Gott getur verið að styðja
sig upp við fastan flöt, líkt og
húsvegg. Í sumum tilfellum getur
verið gott að láta myndavélina
sjálfa styðjast við vegg eða ann-
að fast yfirborð, svo sem borð
eða stein til að halda henni stöð-
ugri. Ef slíku er ekki fyrir að
fara má einnig útbúa eins konar
þrífót með aðstoð snærisspotta.
Með því að bregða lykkju um
linsuna (enn betra ef hægt er að
festa það með öðrum hætti, svo
sem í lykkju á þrífótarfestingu)
og láta tvo lausa enda ná niður
á jörð/gólf má skapa stöðugleika
með því að stíga á lausu endana
og strekkja á bandinu með því
að toga létt á móti með mynda-
vélinni. Þetta skapar nægilega
spennu til að halda myndavélinni
nægilega stöðugri fyrir margar
aðstæður.
Bjargaðu sumarleyfismyndunum
SUMARIÐ ER TÍMINN ÞEGAR
MYNDAVÉLAR FARA Á STJÁ,
ENDA VILJA ALLIR EIGA
GÓÐAR MYNDIR ÚR SUM-
ARFRÍINU. ÞAÐ ER ÞVÍ EKKI
ÚR VEGI AÐ SKOÐA NOKK-
UR GÓÐ RÁÐ SEM FLESTIR
GETA NÝTT SÉR TIL AÐ
TAKA BETRI MYNDIR MEÐ
EIGINLEGRI MYNDAVÉL, Í
STAÐ SÍMANS SEM ALLTAF
ER VIÐ HÖNDINA.
Sveinn Birkir Björnsson
sveinnbirkir@gmail.com
Atlantic Star siglir úr höfn. Hér notar ljósmyndarinn gullinsnið til að fanga augnablikið fullkomlega.
Morgunblaðið/Þórður
* Það er aðmörgu að hugaþegar kemur að lýs-
ingu, en öllu jafna
má segja að meiri
lýsing auki líkurnar
á vel heppnaðri
mynd.
Morgunblaðið/Golli
Gott húsráð er að skapa endurvarp náttúrulegrar dagsbirtu með því að spegla því
af glampandi fleti. Slíkt má auðveldlega búa til með pappaspjaldi og álpappír.
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Leifturljós getur reynst mjög vel
með myndefni sem er á stöðugri
hreyfingu, eins og rennandi vatn.
38 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.5. 2014
Græjur og tækni
Ítalski vöruhönnuðurinn Gianluca Sada útskrif-
aðist frá listaháskólanum í Tórínó 2010 þar
sem lokaverkefnið hans var samanbrjótanlegt
hjól, sem hann kallar Sada hjólið. Er hægt að
brjóta hjólið saman og verður það þá jafnstórt
og regnhlíf. Spurning hvað verður um dekkin?
Samanbrjótanlegt hjól