Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.05.2014, Síða 43
É
g skoðaði París í kringum
1920, þegar súrrealisminn
er að mótast og hug-
myndafræðin er að verða
til. Ég er að skoða heiminn í
París, umhverfið og stemningu og
setja það í samhengi við þarfir
nútímakonunnar,“ segir Sigríður
María eða Sigga Maija um inn-
blástur fyrstu línu sinnar.
Sigga lagði ríka áherslu á
textíl í línunni og hannaði
munstur meðal annars út frá
gamalli teikningu eftir föður
sinn sem henni þótti gefa
munstrinu meiri persónuleika
og vægi. „Efni og textíll er
stór þáttur í mínu ferli og
það stjórnar oft ákveðnum
útfærslum en mikil rann-
sóknarvinna liggur að
baki hönnuninni,“ segir
Sigga Maija. Línan er
ákaflega breið og er
meðal annars unnin úr
silki, prjóni, mokkaskinni,
leðri ásamt roði í aukahluti.
Skilningur á prjóni jókst
hjá Soniu Rykiel
Sigga Maija fór til Parísar ári
eftir að hún útskrifaðist úr
Listaháskóla Íslands 2012 og fékk
stöðu sem lærlingur hjá franska
tískuhúsinu Sonia Rykiel og vann
þar sem aðstoðarkona yfirhönn-
uðar prjónadeildar tískuhússins.
„Ég hef alltaf haft áhuga á
prjóni en skilningur minn á
prjónavöru og ferlinu í prjóni
jókst mikið eftir dvölina í París.
Þeir eru beintengdir við verk-
smiðjuna og við gerum rann-
sóknir á áferðum og munstrum
og það er sent í verksmiðjuna og
er tilbúið tveim dögum seinna.
Það var rosalega gaman að kynn-
FATNAÐUR ER TÆKNILEGT FYRIRBRIGÐI
Krefjandi en skemmtilegt ferli
ast því hvernig þetta fer fram í
þessum stóru tískuhúsum.“
Sigga segir að hjá Soniu Rykiel
hafi hún áttað sig betur á að í
fatahönnun skiptir ekki bara máli
að vera hugmyndarík, heldur sé
einnig mikilvægt að geta útfært
hugmyndir og vera í samstarfi við
aðra fagaðila. „Ferlið sjálft í
framleiðslu er gríðarlega krefj-
andi. Fatnaður er tæknilegt fyr-
irbrigði. Það helst allt í hendur,
tækni og sköpun.“
Ný töskulína væntanleg
Í samstarfi við Leðurverkstæðið,
Sigurjón Kristensen og Arne
Friðrik Karlsson, hefur Sigga
hannað nýja og spennandi útgáfu
af leðurtösku sem fyrirtækið
framleiddi um 1960 og var gíf-
urlega vinsæl á sínum tíma.
„Þetta er sjálfbær vara, allt
framleitt á Íslandi og ég hlakka
til að halda áfram að þróa það.
Ég mun reyna að nýta eingöngu
íslenskar afurðir í framleiðslu á
töskunni.“ Töskulínan er vænt-
anleg með haustinu.
Sigga Maija í Jör
Sigga leggur nú lokahönd á fram-
leiðslu fatalínunnar.
„Ég er meðfylgjandi sjálfbærni
og ég ætla að reyna að framleiða
sem mest hérna heima. Síðan
verður restin af línunni framleidd
í Evrópu.“
Sigga Maija hefur sölu á lín-
unni í verslun Jör í haust.
Sigga Maija sótti
innblástur til Par-
ísar um 1920.
Morgunblaðið/Eggert
Fiona Cribben
fatahönnuður
hannar fallega
skartgripi sem
hún útfærði í anda
línunnar.
Línan er meðal
annars unnin úr
silki, prjóni,
mokkaskinni og
leðri.
Sigríður María Bjarnadótt-
ir fatahönnuður segir efni
og textíl stóran þátt í
hönnunarferlinu.
SIGRÍÐUR MARÍA SIGURJÓNSDÓTTIR FATAHÖNNUÐUR
MUN Í HAUST HEFJA SÖLU Á SINNI FYRSTU FATALÍNU FYR-
IR FYRIRTÆKI SITT, SIGGA MAIJA. SIGGA KYNNTIST FRAM-
LEIÐSLUFERLI Á FÖTUM ÞEGAR HÚN STARFAÐI HJÁ SONIU
RYKIEL OG SEGIR MIKILVÆGT AÐ GETA ÚTFÆRT HUG-
MYNDIR OG VERA Í SAMSTARFI VIÐ AÐRA FAGAÐILA.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Spennandi út-
færsla á prjóni.
18.5. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 43
Kringlunni 4 | Sími 568 4900
Gallabuxur