Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.05.2014, Qupperneq 44
Fjármál
heimilanna
196 stundir að jafnaði
*Íbúar jarðarinnar þurfa að hafa mismikið fyr-ir laununum og á milli landa getur verið veru-legur munur á lengd vinnuvikunnar. ÍbúarSuður-Kóreu státa af því að vinna flestarklukkustundir af öllum þjóðum, að jafnaðirösklega. 196 klst. á mánuði. Grikkir eyðalíka miklum tíma í vinnunni eða um 171 klst.
á mánuði, samkvæmt Forbes. Tékkar vinna
166 klst. að jafnaði og Ungverjar 165 klst.
Aron Bergmann Magnússon leik-
myndahönnuður, hugmyndasmiður
og teiknari hjá Janúar, er búinn að
koma sér vel fyrir eftir nýafstaðna
flutninga en fyrirtækið er nú til
húsa við Lækjartorg. Þessa dagana
fer vinnudagurinn m.a. í að hanna
nýtt rými fyrir Ölgerðina og undir-
búa málverkasýningu sem Aron
heldur í sumar.
Hvað eruð þið mörg í
heimili?
Aðra hvora viku erum við þrjú: ég
og litlu prinsessurnar mínar Chloe
Anna og Ísmey Myrra.
Hvað áttu alltaf til
í ísskápnum?
Kaffi sem er lífsnauðsynlegt, hafra-
graut, ost, djús og slatta af bön-
unum.
Hvað fer fjölskyldan með
í mat og hreinlætisvörur
á viku?
Ætli það sé ekki um 35 þús. á viku
en er minna þá viku sem ég er einn
í búinu.
Hvar kaupirðu helst inn?
Ég skipti því á milli Krónunnar og
Bónuss en þegar það er matarboð
laumast ég í kjötborðið í Melabúð-
inni eða Nóatúni.
Hvað freistar mest
í matvörubúðinni?
Ég er mjög veikur fyrir góðu
brauði, helst nýbökuðu og góðu
áleggi á það.
Hvernig sparar þú
í heimilishaldinu?
Þar sem ég elda mikið þegar stelp-
urnar mínar eru hjá mér á ég það til
að elda aðeins of mikið, þá hendi ég
oft afgöngum í box og beint í kælinn
og er duglegur að hita það upp
þegar ég nenni ekki að elda fyrir
mig einan.
Hvað vantar helst
á heimilið?
Væri ekkert á móti heitum potti
inni í stofu eða eldavél með gasi.
Finnst ótrúlega gaman að elda á
gashellum.
Eyðir þú í sparnað?
Held að helsti sparnaðurinn hjá
mér sé að leggja bílnum eftir vinnu
og reyna að hjóla allt sem ég get
miðsvæðis.
Skothelt sparnaðarráð?
Reyndu að nota allan þann mat
sem þú átt á heimilinu. Það er alltaf
hægt að henda í dýrindis máltíð úr
því sem er í ísskápnum og er að
renna út. Og núna þegar sólinn er
með okkur megnið af deginum er
sniðugt að minnka rafmagnsnotkun
og notast við birtuna sem er úti.
ARON BERGMANN MAGNÚSSON
Vantar heitan pott í stofuna
Aron segist vera mjög veikur fyrir góðu brauði.
Aurapúkinn hefur yndi af að spara
peninga, en hann er líka meðvit-
aður um mikilvægi þess að spara
tíma. Tímasóun er eitthvað sem
aurapúkanum gremst ákaflega og
er hann vanur að reikna í huganum
út tapað tímakaup í hvert skipti
sem tími fer til spillis.
Púkinn sperrti því eyrun þegar
hann heyrði eitt sinn bandaríska
útvarpsmanninn Garrison Keillor
úr þáttunum A Prairy Home
Companion gefa eftirfarandi ráð:
„Settu stóran disk við útidyra-
hurðina, nálægt rafmagns-
innstungu, og þegar þú kemur heim
skaltu setja bíllyklana og veskið á
diskinn og stinga farsímanum í
hleðslu. Geymdu líka aukaeintak af
gleraugum í diskinum. Sá tími sem
þú sparar með því að þurfa ekki að
leita að þessum hlutum hvern ein-
asta dag mun duga þér til að skrifa
Stríð og frið eða Messu í B-moll.“
Þetta heyrði púkinn fyrir nokkr-
um árum og hefur síðan þá aldrei
týnt lyklum eða veski.
púkinn
Aura-
Lykladiskur
sparar tímaE
ru skáparnir í eldhúsinu
fullir af gömlum linsubaun-
um sem enginn á heimilinu
nennir að matreiða? Var
eldað of mikið fyrir saumaklúbbinn
og ísskápurinn fullur af afgöngum
sem tekur heila eilífð að klára? Er
í búrinu veglegt safn af niðursoðnu
grænmeti og ávöxtum sem enginn
vill snerta?
Væri ekki gott að skipta þessum
mat út fyrir eitthvað sem heimilis-
meðlimir vilja frekar borða?
Þar kemur fésbókarhópurinn
Matarbýtti til bjargar. Hafdís
Bjarnadóttir stofnaði hópinn í byrj-
un árs og eru meðlimir í dag orðnir
um 460 talsins.
„Upphaflega hugsaði ég mér að
hópurinn gæti verið hentugur fyrir
þá sem búa einir eða með fáum í
heimili, og sitja oft uppi með
matarafganga þegar eldað er. Þeir
gætu þá komist í samband við aðra
í sömu sporum og skipst á afgöng-
um. Sjálf hef ég notað hópinn m.a.
eftir að hafa keypt kjöt úti í búð og
uppgötvað að það var of salt fyrir
minn smekk. Frekar en að henda
afgöngunum vildi ég athuga hvort
kjötið gæti ekki nýst einhverjum.“
Gefið og skipt
Síðan þá hefur hópurinn þróast og
þroskast og segir Hafdís að í dag
bjóði fólk þar gefins, eða falast eft-
ir skiptum, á bæði afgöngum af
elduðum réttum og ýmsu hráefni
fyrir eldhúsið. „Um daginn auglýsti
t.d. kona á vegg hópsins að hún
hefði skráð sig í klúbb og fengið
reglulegar sendingar af tei og ætti
nokkra ósnerta pakka af tei sem
henni þætti ekki gott. Ég fékk
sumt af þessu tei og er alsæl, enda
mjög hrifin af spennandi og óvenju-
legum teblöndum.“
Þeir sem sjá spennandi auglýs-
ingu á vegg hópsins geta sett inn
athugasemd og gert tilboð, eða
sent auglýsandanum einkaskilaboð.
„Það er óformleg regla að sá sem
eldar fær hinn til sín, með tómt
ílát, en annars ræður fólk því alveg
sjálft hvaða hátt það hefur á
matarbýttunum. Ef fólk er ánægt
með skiptin er líka gott að þakka
fyrir sig í kommentakerfinu.“
Með þessu segir Hafdís hægt að
spara í matarinnkaupunum og ekki
síður hægt að hreinsa rækilega úr
skápum og skúffum í eldhúsinu
sem oft vilja fyllast af alls konar
óþarfa. „Hver kannast ekki við að
eiga t.d. inni í skáp stauk af kryddi
sem var aðeins hægt að kaupa í
risastórri pakkningu, til þess eins
að setja teskeið út í smákökudeig
um síðustu jól? Kannski er einhver
þarna úti sem vill einmitt þetta
krydd og notar það mikið.“
Býttidagur í vinnunni
Hún mælir með því að félaga-
samtök og vinnustaðir spreyti sig á
matarbýtta-módelinu. „Við héldum
vel heppnaðan býttiviðburð í sam-
starfi við Kvenfélagasamband Ís-
lands. Fólk gat komið þangað með
sitt afgangshráefni og tekið með
sér heim eitthvað gagnlegra. Á
vinnustöðum mætti halda býttidag
eða býttiviku og er fólk þá að spara
sér að þurfa að fara sérstaka auka-
ferð á bílnum til að framkvæma
vöruskiptin.“
MATARBÝTTIHÓPURINN HEFUR FARIÐ VEL AF STAÐ
Skiptast á mat á Facebook
MEÐ MATARBÝTTUM ER HÆGT AÐ SPARA Í MATARINNKAUPUNUM OG
HREINSA ÚT ÚR SKÁPUNUM ÓSNERTAN MAT OG HRÁEFNI
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is
„Það er óformleg regla að sá sem eldar fær hinn til sín, með tómt ílát, en annars
ræður fólk því alveg sjálft hvaða hátt það hefur á matarbýttunum,“ segir Hafdís.
Morgunblaðið/Eggert