Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.05.2014, Qupperneq 59
18.5. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59
Í skáldsögunni Og fjöllin endur-
ómuðu eftir Khaled Hosseini
er rekin sextíu ára saga fátækt-
ar, stríðsátaka og landflótta í
Afganistan en um leið sögð
saga fjölskyldna og fólks sem
tekst á við veröldina með ólík-
um hætti. Fátækur faðir sér
ekki annað ráð en að selja unga
dóttur sína ríkum hjónum en
það setur mark sitt á ungu
stúlkuna og eldri bróður henn-
ar fyrir lífstíð.
Fyrri bækur höfundar, Flug-
drekahlauparinn og Þúsund
bjartar sólir, hlutu metsölu og
öfluðu honum heimsfrægðar.
Þessi skáldsaga hefur sömu-
leiðis slegið rækilega í gegn og
trónað á metsölulistum er-
lendis. Hún kemur nú út í kilju.
Metsölubók í
kilju
Ekki er algengt að norrænir rithöfundar komist
ofarlega á metsölulista í Bretlandi en þess finnast
þó nokkur dæmi. Tveir norrænir höfundar eru að
vekja þar athygli með bókum sínum. The Son er
nýjasta spennusaga Norðmannsins Jo Nesbø, en
hún er í efsta sæti á lista Sunday Times yfir inn-
bundnar bækur og þess má geta að enska útgáfan
selst mjög vel hér á landi. Hin er bók sem nefnist
á ensku The Girl who Saved the King of
Sweden eftir hinn sænska Jonas Jonasson, en
hún komst nýlega í fjórða sæti á kiljulista Sunday
Times. Sú bók kom út á íslensku í fyrra og nefn-
ist Ólæsinginn sem kunni að reikna og seld-
ist gríðarvel, eins og fyrsta bók höfundar, Gaml-
inginn sem skreið út um gluggann og hvarf.
Nesbø hefur í nokkurn tíma átt góðu gengi að
fagna í hinum enskumælandi heimi og Jonasson er
að ná þar fótfestu en Gamlinginn vakti þó nokkra
athygli í Bretlandi við útkomu og Ólæsinginn sigl-
ir í kjölfar þeirra vinsælda. Þetta góða gengi Jon-
asar hlýtur að vera honum hvatning til frekari af-
reka en víst er að margir bíða spenntir eftir
næstu skáldsögu hans, sem verður sú þriðja í
röðinni.
NESBØ Á TOPPNUM HJÁ SUNDAY TIMES
Nýjasta skáldsaga Jo Nesbø er á metsölulista Sunday Times
og þar er líka bók eftir Jonas Jonasson.
Ein þekktasta og vinsælasta
sjálfsævisaga sem skrifuð hef-
ur verið á Íslandi er Dægra-
dvöl Benedikts Gröndals, en
hún er skrifuð á seinustu
áratugum 19. aldar. Bókin
kemur nú út í kilju. Þetta er
frábærlega vel skrifað verk,
fullt af merkilegum mannlýs-
ingum og einstaklega
skemmtilegt. Önuglyndi höf-
undar er nánast ómót-
stæðilegt. Ein af þeim bókum
sem fólk verður að lesa. Tær
snilld!
Snilldarverk
Benedikts
Gröndals
Kuggur,
Dægradvöl og
furstinn góði
NÝJAR BÆKUR
DÆGRADVÖL GRÖNDALS ER KOMIN Í KILJU
OG EKKI NÓGSAMLEGA HÆGT AÐ MÆLA
MEÐ ÞEIRRI BÓK. SIGRÚN ELDJÁRN SENDIR
FRÁ SÉR TVÆR BÆKUR UM KUGG. BASIL
FURSTI ER ENN Á KREIKI OG LENDIR Í ÆSI-
LEGUM ÆVINTÝRUM. METSÖLUBÓK KHALED
HOSSEINI ER SVO KOMIN Í KILJU.
Vestfirska forlagið hefur endur-
lífgað hinn snjalla Basil fursta og
gefur nú út 8. heftið um æsileg æv-
intýri hans. Eins og í fyrri bókum á
Basil hér í höggi við skúrka og ill-
menni og Svarti prinsinn kemur
mjög við sögu. Eins og bóka-
forlagið bendir sjálft á eru bæk-
urnar um Basil fursta enginn verð-
launaskáldskapur, en skemmtilegar
eru þær. Engum ætti að leiðast.
Basil fursti og
Svarti prinsinn
Tvær nýjar bækur um Kugg eru komnar út, en
höfundur þeirra er Sigrún Eldjárn. Fyrri bókin
er Listahátíð og sú seinni Ferðaflækjur. Í
Listahátíð ákveður mamma Málfríðar að taka
þátt í Listahátíð og Kuggur, Mosi og Málfríður
hjálpa til. Í Ferðaflækjum býður Málfríður
mömmu sinni, Mosa og Kuggi í ferðalag á nýja
jarðknúna bílnum sínum. Á leiðinni þurfa þau að
glíma við ýmiss konar þrautir og ferðaflækjur.
Kuggur og félagar í ævintýrum
* Ég get staðist allt nema freistingar.Oscar Wilde BÓKSALA 6.-13. MAÍ
Allar bækur
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Skuggi sólkonungsÓlafur Arnarnson
2 Iceland Small World- lítilSigurgeir Sigurjónsson
3 155 Ísland áfangastaðir í alfaraleiðPáll Ásgeir Ásgeirsson
4 Átta gönguleiðir í nágr. ReykjavíkurEinar Skúlason
5 Nikký og slóð hvítu fjaðrannaBrynja Sif Skúladóttir
6 ParadísarfórnKristina Ohlsson
7 Frosinn - ÞrautirWalt Disney
8 Maxímús Músíkús kætist í kórHallfríður Ólafsdóttir/Þórarinn Már
Baldursson
9 Eða deyja ellaLee Child
10 Húsið við hafiðNora Roberts
Kiljur
1 ParadísarfórnKristina Ohlsson
2 Eða deyja ellaLee Child
3 Húsið við hafiðNora Roberts
4 Sannleikurinn um mál Harrys QJoël Dicker
5 DægradvölBenedikt Gröndal
6 HHhHLaurent Binet
7 Marco- áhrifinJussi Adler Olsen
8 SkuggasundArnaldur Indriðason
9 ÓlæsinginnJonas Jonasson
10 AfbrigðiVeronica Roth
MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR
Hver dregur dám af
sínum sessunaut.
Sigurður dýralæknir – afmælisrit
holar@simnet.is
Vísindamaðurinn, sagnamaðurinn og gleðimaðurinn, í góðri merkingu þess orðs,
Sigurður Sigurðarson, dýralæknir frá Keldum, verður 75 ára þann 2. október næst-
komandi. Af því tilefni kemur út hjá Bókaútgáfunni Hólum seinni bindið af æviminning-
um Sigurðar og er það jafnframt afmælisrit hans. Þar segir hann
frá lífshlaupi sínu, allt frá dýralæknanáminu í Noregi til þessa
dags, og dregur fram í dagsljósið ógrynni sagna af skemmti-
legu fólki og skemmtilegum viðburðum, þótt vissulega hafi
hann fengið sinn skerf af mótlæti og meðal annars verið
hótað lífláti. Þá er vísum vitaskuld varpað fram, enda liggur
kveðskapur honum létt á tungu og er hann lipur vísnasmiður.
Í fyrrnefndu afmælisriti verður að sjálfsögðu heillaóskaskrá
– Tabula gratulatoria – og býður útgefandi öllum þeim
sem sýna vilja Sigurði sóma að skrá nafn sitt þar
og eignast um leið bókina. Verð hennar verður kr. 6.480
m/sendingargjaldi og er tekið við áskrifendum í
netfanginu brynjar@holabok.is
og í síma 698-6919.