Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.07.2014, Qupperneq 16
Ferðalög
og flakk
Ferðast í lúxuslest um Spán
*Fyrir áhugafólk um lestarferðalög er tilvalið aðskella sér í ferð með Al Andalus-lestinni umSpán. Vagnar lestarinnar voru smíðaðir í Frakk-landi árið 1930 og hafa nú verið gerðir upp íupprunalegri mynd. Innviðir lestarinnar erustórglæsilegir, klefarnir hannaðir í klassískum stílog minna á svítur lúxushótels. Hægt er að velja
um ýmsar leiðir en sagt er að ferðalagið í kring-
um Andalúsíu sé einstaklega eftirminnilegt.
„Jävla svenska sommar,“ tautaði ung stúlka á tvítugs-
aldri er hún steig á undan okkur úr lestinni og út í
rigninguna, sem þangað til fyrir þremur vikum var tíð-
ur gestur í Stokkhólmi. Svíar eru ekki ólíkir Íslend-
ingum að því leyti að þeir geta nánast dáið úr áhyggjum
yfir því hvort sumarið verður veðursælt og dæsa við
minnstu vindhviðu.
En herregud, eftir mikið áhyggjuflóð og þungar brúnir í
sænskum sumarhúsum skall á hitabylgja. Grátandi nakin
sænsk börn í sumarhúsum foreldra sinna tóku gleði sína á ný
og höfuðborgin fylltist af lífi og sólþyrstum ferðalöngum hvað-
anæva.
Þrátt fyrir veður-
sældina örlar enn á
tautandi Svía. Þetta
þykir orðið gott, jafn-
vel aðeins of heitt. Of
heitt í strætisvögn-
unum, of heitt í al-
menningsgörðunum
og aðeins of heitt í
híbýlum hins al-
menna borgara Gamla
stan. Það er mögulegt að ef maður bölvar sumrinu nógu
mikið gefi það eftir og hleypi sólinni í gegn, á hárréttu hitastigi.
Eða svona hér um bil.
Bestu kveðjur, Rúnar Ingi & Soffía Dóra
Espresso-bollinn selst illa yfir
sumartímann.
Herregud, hitabylgja!
Skálað fyrir sumrinu.
PÓSTKORT F
RÁ SVÍÞJÓÐ
Maðurinn í
belgnum spái
r
um næstu sól
-
arupprás.
Vínsmökkun getur flutt fólkheimshorna á milli í hug-anum en fyrir vín-áhugamenn jafnast ekkert
á við að heimsækja upprunastaði
bragðgóðra vína. Þar kynnast þeir
vínunum upp á nýtt, á þeirra heima-
slóðum, og skynja hvernig áferð þeirra
rímar við landsvæðið í kring, fólkið og
matarmenninguna. Vín er ein af mörgum
gjöfum náttúrunnar og hver og ein tegund ber
einkenni síns landsvæðis. Af þeim sökum geta
ferðamenn með áhuga á vínum dýpkað bæði upp-
lifun sína og skilning á drykknum með því að
heimsækja margvíslegar vínekrur um víða veröld.
Tímaritið Wine Enthusiast tók nýlega saman lista
yfir athyglisverða áfangastaði fyrir vínáhugamenn
og hér að neðan er að finna yfirlit yfir nokkra
þeirra:
Eyjahafseyjar, Grikklandi
Fáir tengja eyjarnar sérstaklega við vínsmökkun en á eyjunni Santorini er
stunduð öflug vínrækt, á Ambelos-fjalli á Samos er að finna fjölda vínekra og
á Krít eru rauðar og hvítar þrúgur af ýmsum toga ræktaðar. Á öllum eyj-
unum þremur eru kjöraðstæður hvað gistingu og matarmenningu varð-
ar. Þá eru samgöngur milli eyjanna greiðar og auðvelt að ferðast á
milli með ferjum eða í stuttum flugferðum. Besta veðrið er milli
apríl og október en sannir vín-nördar ættu að beina sjónum sín-
um að uppskerutímanum í ágúst.
Texas Hill Country, Bandaríkjunum
Stundum er sagt að í Texas sé allt stærra og vínekrurnar þar
standa sannarlega undir nafni. Ríkið er fimmti stærsti vínfram-
leiðandi Bandaríkjanna og vínræktarsvæðið sem kennt er við
Texas Hill Country í ríkinu miðju er hið næststærsta í landinu.
Þótt þar hafi að undanförnu sprottið upp fjöldi nýrra brugghúsa
og vínsmökkunarstofa hefur svæðið haldið sínum einkennum.
Ennþá eru kúrekahattar, þröngar gallabuxur og skotvopn í hlið-
arsætum pallbíla á hverju strái og á landsvæðinu í kring standa
kaktusar í nakinni einveru og benda til himins.
Mendoza, Argentínu
Austan við hátinda Andesfjalla, um 1.100 kílómetra vestur af höfuðborginni
Buenos Aires, flatmaga tugþúsundir vínekra í og við borgina Mendoza í Arg-
entínu. Svæðið í kringum borgina er umfangsmesta vínræktarsvæði Suður-
Ameríku og á undanförnum 15 árum hefur víntengdur túrismi þar aukist
gríðarlega. Mendoza-borg telst jafnframt ein af níu vín-höfuðborgum heims.
Á vínræktarsvæðunum er nú að finna fjölda nýrra hótela, glæsileg brugghús
og vandaða matargerðarlist.
Úmbría, Ítalíu
Héraðið er þekkt undir heitinu „Græna hjarta Ítalíu“ í ljósi þess að það er
eina hérað Mið-Ítalíu sem ekki hefur landamæri að sjó. Úmbría hefur meðal
annars landamæri við Toscana-hérað og ólíkt þekktari ferðamannastöðum
Ítalíu er landsvæði héraðsins að mestu leyti ósnortið. Þar er að finna fallegar
hæðir og græna dali þar sem bragðmiklar ólífur og vínþrúgur eru ræktaðar í
stórum stíl. Náttúrufegurðin er stórbrotin og þar er jafnframt að finna
nokkra glæsilega miðaldabæi sem hafa varðveist. Enginn vínáhugamaður getur
heimsótt Úmbríu án þess að bregða sér í smökkun til Montefalco, uppruna-
staðar Sagrantino de Montefalco, þekktustu afurðar héraðsins.
Languedoc, Frakklandi
Stærsta vínræktarsvæði heims er í Languedoc-Roussillon-héraði í Suður-
Frakklandi og þar eru ræktaðar margvíslegar þrúgur. Fá brugghús eru með
vínsmökkunarstofur sem eru opnar almenningi daglega en auðvelt er að
hringja og panta sérstaka tíma í slíkar smakkanir. Þær eru jafnframt iðulega
ókeypis. Vínflóra svæðisins er afar fjölbreytt og mörg þekkt vín eiga rætur
að rekja þangað. Aðdáendur bragðmikilla rauðvína ættu ekki að láta
framhjá sér fara að smakka tegundir frá Pic Saint Loup og Corbiéres.
Baden, Þýskalandi
Baden-Württemberg er hlýjasta og sólríkasta sambandsríki Þýskalands.
Það er í suðvesturhluta landsins og hefur landamæri við Sviss og Frakk-
land. Vínhéraðið sem kennt er við Baden er þekkt fyrir framleiðslu úrval-
svína. Mikil sól hefur í för með sér að Pinot-þrúgur eru í aðalhlutverki.
Mælt er með því að bregða sér í smökkun til Schloss Staufenberg í Dur-
bach, stórbrotins kastala sem enn er í eigu markgreifans af Baden. Boðið er
upp á kjallaraheimsóknir í kastalann þar sem vín úr tunnum eru smökkuð og
borin saman.
VÍNÁHUGAMENN GETA
AUÐVELDLEGA SAMÞÆTT
FERÐALÖG VIÐ ÁSTRÍÐU SÍNA
Paradísir
vínáhuga-
mannsins
Í FERÐALÖGUM UM VÍNHÉRUÐ
SKYNJA ÁHUGAMENN HVERN-
IG ÁFERÐ ÚRVALSVÍNA RÍMAR
VIÐ UPPRUNASTAÐI ÞEIRRA
Halldór Armand Ásgeirsson haa@mbl.is