Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.07.2014, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.7. 2014
Í síðustu viku var hægt að fá þriggja herbergja íbúð við Hringbraut á um
35 milljónir. Íbúðin er á þriðju hæð og er um 102 fermetrar að stærð og
inni í þeirri fermetratölu var meðal annars herbergi í risi sem væri hægt
að leigja út. Hringbraut er vissulega mikil umferðargata en það má taka
með í reikninginn þegar verið er að skoða eignir við slíkar götur hvort
garður er baka til eins og tilfellið er hér til dæmis.
101
REYKJAVÍK HRINGBRAUT
Það er hægt að búa alveg við sjóinn í Reykjavík, meira að segja aðeins fá-
eina metra frá, í Bryggjuhverfinu nánar tiltekið. Í póstnúmeri 110 er fyrir
35 milljónir hægt að fá þá nálægð og búa í 100 fermetra íbúð með 30 fer-
metra bílskúr og af svölum er hægt að drekka kaffi og horfa yfir sjóinn á
morgnana.110
REYKJAVÍK BÁSBRYGGJA
Í Austurbæ Reykjavíkur, nánar tiltekið í húsi byggðu árið 1943 við
Bollagötu, er hægt að kaupa um 96 fermetra hæð, fjögurra herbergja í
þríbýli fyrir rúmlega 35 milljónir. Sé verið að hugsa til sólar má geta
þess að eigninni fylgja suðursvalir sem má ef til vill nota næsta sumar
og sumur. 105
REYKJAVÍK BOLLAGATA
M
örgum þykir fátt
skemmtilegra en að
skoða fasteignaauglýs-
ingar og láta sig
dreyma. Eignirnar sem
til sölu eru á landinu eru ýmiss konar og
forvitnilegt er að skoða hversu fjöl-
breyttar þær geta verið þrátt fyrir að
þær kosti að sama – íbúðir í blokk-
arbyggingum, hæðir í fjölbýlishúsum,
raðhús, stór einbýlishús og grónar lóðir.
Sunnudagsblað Morgunblaðsins ákvað
að nota eina tölu sem viðmið og fara á
stúfana í fasteignaleit. Við gáfum okkur
að í vasanum væru 35 milljónir; rétt
rúmlega sú upphæð sem er meðalupp-
hæð gerðra kaupsamninga á höfuðborg-
arsvæðinu síðustu 12 vikurnar. Sam-
kvæmt Fasteignaskrá voru að meðaltali
gerðir 127 kaupsamningar á höfuðborg-
arsvæðinu á viku á þessu 12 vikna tíma-
bili og meðalupphæð í milljónum á hvern
samning var 34,8 milljónir. Þess ber að
geta að meðalupphæð kaupsamninga þýð-
ir ekki það sama og meðalverð eigna. Er
það vegna þess að hver kaupsamningur
getur snúist um fleiri en eina eign, og
svo eru eignir í misgóðu ástandi, mis-
gamlar og þar fram eftir götunum.
Vissulega hefði mátt notast við ýmsar
tölur sem viðmiðunarverð í þessari fast-
eignaskoðunarskemmtun en ákveðið var
að velja þessa leið. Lesendur geta þó
sjálfir skemmt sér við að nota önnur við-
mið til að bera saman hvað þeir geta
fengið fyrir sömu upphæð. Mætti þar til
dæmis nota meðalfasteignamat íbúðar-
húsnæðis, fjölbýlis og sérbýlis fyrir
næsta ár, sem er 32,9 milljónir, en inni á
vef Þjóðskrár Íslands má sjá Fasteigna-
mat ársins 2015 fyrir allar eignir á Ís-
landi.
Þrátt fyrir að notast hafi verið við
meðalupphæð kaupsamninga á höfuð-
borgarsvæðinu var vissulega leitað út
fyrir borgarmörkin enda alltaf for-
vitnilegt að skoða hvaða heimili er hægt
að fá úti á landi fyrir sama pening og
maður fær í bænum. Að lokum ber þess
að geta að miðað var við að eignir sem
valdar voru mættu kosta um milljón
meira eða minna en 35 milljónir.
Hvað
færðu
fyrir 35
milljónir?
EF Í VASANUM LEYNDUST UM 35 MILLJÓNIR – SÚ UPPHÆÐ
SEM ER MEÐALTAL ÞEIRRA KAUPSAMNINGA SEM GERÐIR VORU
UM FASTEIGNIR SÍÐUSTU 12 VIKURNAR Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
– HVERNIG HEIMILI GÆTIRÐU EIGNAST?
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Ótrúlegt en satt – í Reykjavík má finna tæplega 240 fermetra hús á 35
milljónir. Sá galli er á gjöf Njarðar að í staðinn þarf fólk að leggjast í tals-
vert miklar endurbætur að innan sem utan en þetta er þá ágætis tæki-
færi fyrir handlagna sem treysta sér í slíkt. Húsið er raðhús, níu her-
bergja, með útgang út í garð og þá er arinn í stofu. 111
REYKJAVÍK NORÐURFELL