Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.07.2014, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.07.2014, Blaðsíða 35
SPORTÍS MÖRKIN 6 108 REYKJAVÍK S:520-1000 SPORTIS.IS 25% AFSLÁTTUR! 27.7. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35 EIKJUVOGUR 29 - 104 RVK. - S:694-7911 www.facebook.com/spennandi www.spennandi.com OPIÐ: MÁN-FIM: 12-18 - FÖS: 12-16 40% AFSLÁTTUR AF VÖLDUM VÖRUM GALLABUXUR Í slenska framsóknarsumrið heldur sínu striki og ef allt fer sem horfir verða næstu tvö sumur eins eða jafnvel lengur. Það fer allt eftir því hver úrslit kosninganna verða 2017. Þeir sem ætla að halda áfram að væla yfir vætunni ættu að setja næsta sumarleyfi í veðurfarslega áhættustýringu … Það hvarflar stundum að mér að þeir sem röfli mikið yfir veðrinu séu kannski ekki staddir alveg á nógu góðum stað. Líf þeirra sé ekki nógu inni- haldsríkt og sé tilbreytingasnautt á köflum. Þeir sem eru í ljósinu og leggja sig fram við að hafa tilveruna sína nokkuð góða og fallega taka yf- irleitt ekki eftir því hvernig viðrar – því lífið stendur og fell- ur ekki með veðurfarinu. Það eru aðrir hlutir í lífinu sem hafa meiri vigt og stýra því hvort hamingjan elti okkur á röndum eða ekki. Lífið getur nefni- lega alveg verið sólarströnd þótti úti rigni. Ég er hluti af þeim hressa hóp sem hrein- lega elskar sólina. Það má ekki sjást sólar- glæta á himni þá er ég rokin í sund, en um leið er ég mjög meðvituð um skaðsemi sólarinnar. Ef einhver hefði sagt við mig fyrir tíu árum að ég yrði farin að bera á mig 50 SPF fyrir fer- tugt þá hefði ég haldið að viðkomandi væri eitthvað veikur. Eftir að hafa upplifað mátt sólarinnar og hvað hún getur haft skaðleg áhrif á húðina þorir maður ekki annað en að vera alltaf með vörn. Það er lítill sjarmi yfir því að verða eins og gamall leðursófi í framan … Þegar stelpur eru komnar á minn aldur er ekki hægt að fela fyrri lífsstíl. Það er mjög auðvelt að sjá hvort þær hafi legið mikið í ljósum eða verið mikið á baðströndum á sínum sokkabandsárum. Þið getið ímyndað ykkur hvað er vont að fatta það núna. Af hverju sagði okkur þetta enginn á sólbaðsstofuárunum? (Það vann önn- ur hver Gugga á sólbaðsstofu … líka ég). Ég er mjög meðvituð um að vandaðar stúlkur eiga nú ekki að vera að ræða um útlit sitt í tíma og ótíma og alls ekki vera með það á heilanum. En ég veit bara ekki um neina stelpu sem langar að líta út fyrir að vera eldri en hún er (nema hún sé 17 ára og þurfi að komast í Ríkið). Það eru þó alveg nokkrar jákvæðar hliðar á sólarleysi. Ég er nú ekki bú- in að taka saman hvað vísitölufjölskyldan getur sparað háar fjárhæðir á rigningunni en fyrir þá sem eru vanir að fjárfesta svo- lítið í nýjum sumarfötum þá getur þetta munað töluverðu í heimilisbókhaldinu fyrir utan hvað maður sparar mikla peninga á að kaupa ekki grillolíu, kol eða gas. Maður hefur bara alls ekki þurft að kaupa sér neina lekkera sumarkjóla, engar stuttbuxur og enga hlýraboli. Ég drusl- aðist reyndar til að kaupa mér sandala í byrjun sumars sem voru án efa mistök. En þeir eru nú svo góðir í sniðinu að ég gæti jafnvel notað þá sem inniskó þegar ég fer á Hrafnistu ef veð- urfarið verður svona þangað til. Ég meina, fyllti hællinn á þeim er ekki svo hár. Í stað þess að spranga um berleggjaður í erma- lausum bol og sand- ölum hefur maður varla farið úr háu leðurstígvélunum, sokkabuxunum og ullarjakkanum. Og ég er alls ekki að kvarta. Ef það má setja eitthvað út á rigninguna þá er það helst hvað hún á það til að rústa blásnu hári mikið. En þá er nú bara um að gera að setja hárið í snúð – þá má rigna fyrir allan peninginn án þess að greiðslan fari úr skorðum. En það er nú ekki eins og ævintýrin gerist bara á björtum sumarnóttum því ævintýrin geta líka bankað uppá í rigningu. Í stað þess að spranga um berleggjuð um miðbæ Reykjavíkur og tanað mig í drasl í sundi hef ég í sumar prófað að rigna nánast niður með gorítexklæddum skeggjuðum svarthærðum manni á Þingvöllum, labbað Reynisfjöruna hönd í hönd í rigningu, látið lesa fyrir mig og lesið sjálf staflana af íslenskum skáldverk- um, horft á nokkrar skemmtilegar bíómyndir, látið klóra mér á bakinu og notið þess að gera allt sem hægt er að gera inni á heimili þegar veðrið er ekki sérlega útivistarvænt … Er hægt að kvarta eitthvað yfir því? martamaria@mbl.is Þarftu veður- farslega áhættu- stýringu? Hunter-stígvélin koma sér vel í íslenska fram- sóknarsumrinu. Maður hefur ekki þurft að hafa neinar áhyggjur af bikiníförum þetta sumarið. Þessi úlpa frá 66 Norður hefur verið töluvert not- uð í sumar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.