Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.07.2014, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.07.2014, Blaðsíða 28
Lambahakk er feitt og gott og hentar því einkar vel í kjötbollur. Morgunblaðið/Kristinn S veinn hefur í nógu að snúast þessa dagana en ásamt því að reka AALTO Bistro rekur hann veitingastaðinn Borðstofuna í Hannesarholti. Þá hefur Sveinn einnig verið áberandi á sjónvarpsskjánum undanfarið en hann sá um matreiðslu- þættina Fagur fiskur ásamt Áslaugu Snorradóttur. „Það var rosa- lega skemmtilegt að vinna með Áslaugu. Það má eiginlega segja að ég hafi ratað óvart í sjónvarpið, mér var boðið að taka þátt í þessu verkefni og ég ákvað bara að skella mér á það. Maður er alltaf að bæta í reynslubankann,“ útskýrir Sveinn sem kann ágætlega við sig í sjónvarpinu. Börn og unglingar mættu vera ófeimnari við að borða fisk að mati Sveins sem tók þátt í landsátakinu Fiskídag sem snýst um að fá ungu kynslóðina til að borða meiri fisk. „Við gerðum nokkra stutta þætti sem sýndir voru á RÚV, þar eldaði ég fisk með börnum,“ seg- ir Sveinn sem hefur lengi velt fyrir sér hvers vegna börn á vissum aldri forðast gjarnan að borða fisk. „Fiskurinn okkar er ómetanleg auðlind.“ Sveinn er eflaust þekktastur fyrir að framreiða gómsæta fiskirétti en hann hefur einnig gaman af því að matreiða kjöt. „Ég elda mik- inn fisk en svo er líka gaman að elda kjöt, lambakjöt er til dæmis frábær afurð. Lambahakkið er feitt og gott og hentar til dæmis vel í kjötbollur,“ segir Sveinn sem er ánægður með þá framþróun sem hefur átt sér stað í matvælaframleiðslu undanfarið. „Það er gaman að sjá hvað íslensk matarframleiðsla hefur tekið miklum framförum, fólk hefur verið hugmyndaríkt undanfarið og það er að skila sér.“ LAMBAKJÖT ER FRÁBÆR AFURÐ Lambahakkið hentar vel í kjötbollur Sveinn Kjartansson matreiðslumeistari rekur AALTO Bistro í Norræna húsinu. Morgunblaðið/Kristinn Matur og drykkir Gler fram yfir plast *Margir vilja meina að æskilegt sé að forðastað nota plastílát undir mat vegna eitur-efna sem plast inniheldur. Þá er mæltgegn því að hita mat í plastílátum í ör-bylgjuofni. Ástæðan er sú að þegar plastiðhitnar flytjast eiturefni úr plastinu í matinn.Glerílát eru þá sögð vænlegri kostur fyrir þá sem huga að heilsunni. Annar kostur þess að nota gler í stað plasts er að það er umhverfisvænna. Kjötbollur 1 kg lambahakk 2 laukar 2 hvítlauksrif Safi úr 1/4 sítrónu 1 msk. grænmetiskraftur Mintublöð af 6 stönglum 1 ½ tsk. cumin 1 tsk. allrahanda krydd 2 msk. ólífuolía Salt og pipar Setjið lamabahakk í stóra skál. Maukið vandlega saman lauk, hvítlauk, sítrónusafa, mintublöð, grænmetiskraft og ólífuolíu í matvinnsluvél. Blandið maukinu vel saman við lambahakkið, bætið cum- ini og allrahanda kryddi sam- an við. Saltið og piprið eftir smekk. Mótið blönduna í bollur og steikið á grill- eða steik- arpönnu. Gott er bera ofnbakaðar nýjar kartöflur fram með bollunum ásamt salati með hvítum baunum, döðlum, grillaðri papriku og hvítlauks- sósu. Á AALTO er einnig borin fram Merqes-pylsa með bollunum, þær eru- bragðmiklar arabískar lamba- pylsur. Hvítlaukssósa 3 hvítlauksrif 1 bolli majónes 2 tsk. dijon-sinnep ¼ tsk. hunang 1 bolli þeyttur rjómi Maukið hvítlaukinn vel. Blandið majónesi, sinnepi og hunangi saman við hvítlauk- inn. Bætið síðan þeyttum rjóma varlega saman við. Gott er að útbúa sósuna nokkrum klukkustundum áð- ur en hún er borin fram. LAMBAKJÖTBOLLUR OG HVÍTLAUKSSÓSA SVEINN KJARTANSSON, MATREIÐSLUMEISTARI OG SJÓNVARPSKOKKUR, HEFUR OPNAÐ NÝJAN OG VINALEGAN VEIT- INGASTAÐ, AALTO BISTRO, Í NORRÆNA HÚSINU. Á AALTO BISTRO ER BOÐIÐ UPP Á HOLLAN OG BRAGÐGÓÐAN MAT OG ER ÍSLENSKT LAMBAKJÖT OG FERSKUR FISKUR ÁBERANDI Á MATSEÐLINUM. Guðný Hrönn gudnyhronn@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.