Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.07.2014, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.07.2014, Blaðsíða 45
27.7. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 45 Þá vindum við okkur til Ísafjarðar fyrir 35 milljónir í vestfirskt fjallaútsýni. Þar má finna sjö herbergja hús sem er um 250 fermetrar að stærð en það var byggt árið 1969. Þess má geta að eldhúsinnréttingin hefur fengið að halda sér í upprunalegu formi – mjög smart að mati húsbúnaðaráhuga- manna. Ný tæki eru þó komin og borðplötur. Þannig má elda nóg af pönnukökum og fara reglulega á skíði, sem verður ekki metið til fjár. ÍSAFJÖRÐUR MIÐTÚN 400 Ísafjörður 35 milljónir og eina umfram kostar einbýlishús og austfirskt fjallaútsýni á Eskifirði. Húsið var byggt árið 1977 og stendur nokkuð hátt uppi í kaup- staðnum, með átta herbergjum og er 267 fermetrar og svo má hengja föt út á snúrur og gera ýmislegt sér til dundurs á austfirskri lóð sem er meira en 800 fermetrar að stærð. Höfuðborgarbúar geta prófað skipti á eign- um. 735 Eskifjörður ESKIFJÖRÐUR FAGRAHLÍÐ Á Suðurnesjum eru margar eignir til sölu og meðal annars þetta fallega bárujárnsklædda hús við Suðurgötu, byggt árið 1938, en það er mikið endurnýjað. Ásett verð er 35 milljónir og einni betur. Húsið er samtals 189 fermetrar og í því eru 7 herbergi. 230 Reykjanesbær REYKJANESBÆR SUÐURGATA Ef við færum okkur norður á bóginn, alla leið til Húsavíkur, er til sölu eign fyrir meðalupphæðina, 35 milljónir, sem er 208 fermetrar, fimm her- bergja hús, byggt árið 1990. Lóðin er líka stór, um 800 fermetrar. Húsið stendur hátt svo að það er frábært útsýni yfir bæinn og sjóinn. Ef ein- hverjir ætla á Mærudagahátíðin núna síðustu vikuna í júlí er auðvitað hægt að fara í fasteignaskoðun í leiðinni. 640 Húsavík HÚSAVÍK STEKKJARHOLT Hafi fólk langað til að eignast hús eftir arkitektinn sem teiknaði Domus Medica, Hótel Sögu, Watergate-bygginguna á Íslandi og Háteigskirkju, svo fátt eitt sé nefnt, gæti þetta uppfyllt drauminn. Húsið er teiknað af Halldóri H. Jónssyni 1952 og var lengst af notað sem embættisbústaður dýralækna Borgarfjarðar en þess má geta að það eru ekki nema tvö ár síðan það var endurnýjað að mestu. Húsið er um 190 fermetrar að stærð. 310 Borgarnes BORGARNES GUNNLAUGSGATA Í Vestmannaeyjum er hægt að fá eitt þessara virðulegu gömlu íslensku bárujárnshúsa, meira en 100 ára gamalt, við Kirkjuveg fyrir meðalupp- hæð kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu og einni milljón betur eða 36 milljónir. Húsið er 264 fermetrar að stærð með 5 svefnherbergjum, 2 stofum og 2 baðherbergjum, nýjum sólpalli og gróinni lóð og hefur húsið verið mikið endurnýjað. 900 Vestmannaeyjar VESTMANNAEYJAR KIRKJUVEGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.