Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.07.2014, Qupperneq 43
27.7. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 43
Þau eru mörg virðuleg húsin í kringum Bústaðakirkju og fallegir og vel
grónir garðar sem fylgja, sérstaklega þeim sem eru aðeins eldri. Í þessu
húsi sem var byggt árið 1957 er 118 fermetra eign til sölu, þar af um 30
fermetra bílskúr.
108
REYKJAVÍK TUNGUVEGUR
Fyrir nákvæm-
lega 35 milljónir
er hægt að taka
að sér svolítið
spennandi verk-
efni í Kollafirði
sem tilheyrir póstnúmeri Kjal-
arness. Þar má nefnilega finna 2,5
ha. land sem er skógi vaxið og nefn-
ist Lundur. Á landinu stendur lítið
timburhús, 80 fermetrar, að verða
70 ára gamalt og þarf nánast að
endurbyggja. En það er ekki gulrót-
in heldur landið sjálft en árið 1962
hlaut þáverandi eigandi þess við-
urkenningu Friðriks konungs 8. fyrir
ræktun á landinu en hann byrjaði að
rækta skóg þar árið 1945.
Þess má geta að steypt tjörn er
við húsið – það er að minnsta kosti
þess virði að skoða þetta, það er
sjaldgæft að fá svona margra ára-
tuga stórt skógi vaxið land alveg
rétt við höfuðborgina.
116
KJALARNES
LUNDUR
Í póstnúmeri 112 er hægt að fá 147 fermetra eign í fjölbýlishúsi og um 20
fermetra bílskúr fyrir 35 milljónir og 200.000 krónum betur. Herbergin
eru fimm og þótt þetta sé fjölbýlishús er eignin á tveimur hæðum, sú efri
aðeins undir súð á hluta.
112
REYKJAVÍK GARÐHÚS
Í einu dýrasta og eftirsóttasta hverfi Reykjavíkurborgar, póstnúmeri
107, er hægt að fá fjögurra herbergja, rúmlega 93 fm íbúð á annarri
hæð við Hagamel. Inni í þeirri fermetratölu er herbergi í risi með að-
gangi að klósetti sem sumum gæti þótt hentugt að leigja út til að
dekka afborganir af lánum. Það er auðvitað nánast sundlaug í garð-
inum, Vesturbæjarlaugin.
107
REYKJAVÍK HAGAMELUR
Þeir sem þrá yfirmáta útsýni og helst af 8. hæð geta fengið slíkt fyrir 35
milljónir rétt tæpar í Kópavogi. Húsið er fremur nýtt, byggt árið 2007 og
eignin er 127 fermetrar að stærð, fjögurra herbergja og eigninni fylgir
sérstæði í bílageymslu hússins.
203
KÓPAVOGUR HÖRÐUKÓR