Morgunblaðið - 13.08.2014, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2014
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
N
æstkomandi sunnudag
fer fram seinni um-
ferð Íslandsmótsins í
kassabílaralli, en
fyrri umferðin fór
fram 1. júní síðastliðinn. Mótið er
samstarfsverkefni Bifreiða-
íþróttaklúbbs Reykjavíkur, Reykja-
víkurborgar, Fjölskyldu- og hús-
dýragarðsins og Skeljungs, en
sigurvegararnir verða krýndir 30.
ágúst næstkomandi þegar al-
þjóðlegt rall BÍKR fer fram.
„Við byrjuðum á þessu í fyrra
og héldum okkar fyrstu keppni fyrir
ári, 18. ágúst, en núna í ár ákváðum
við að hafa keppnina tvískipta til að
við gætum haft þetta Íslandsmót.
Þá eru veitt stig fyrir hverja keppni
og þeir sem fá flest stig samanlagt
verða Íslandsmeistarar,“ segir Guð-
mundur Höskuldsson keppnisstjóri.
Keppnin fer fram í Fjölskyldu-
og húsdýragarðinum á fjórum þar
til gerðum brautum og er keppt í
fjórum flokkum: 4–7 ára, 8–11 ára,
12–15 ára og 16 ára og eldri. „Það
eru bílabrautir fyrir sem við breyt-
um mikið fyrir keppnina. Við erum
að reyna að setja brautirnar þannig
upp að þetta sé eins og í venjulegu
ralli; það eru alls konar þrautir sem
þarf að ná í gegnum á tíma. Þetta er
mjög spennandi; þú hefur bara tak-
markaðan tíma til að klára brautina
og koma þér inn á næstu braut.“
Krefst hæfni og útsjónarsemi
Liðin samanstanda af öku-
manni, einum eða tveimum kepp-
endum sem ýta bílnum og liðsstjóra,
sem þarf að vera orðinn 18 ára gam-
Rallið krefst hæfni
og útsjónarsemi
Um helgina fer fram seinni umferð Íslandsmóts Bifreiðaíþróttaklúbbs
Reykjavíkur í kassabílaralli. Keppendur eru fjögurra ára og eldri en smíði
bílsins gjarnan fjölskylduverkefni og liðsfélagar systkini eða frændsystkini.
Það krefst lagni að komast í gegnum brautirnar á sem stystum tíma en
aðalatriðið er auðvitað að hafa gaman af.
Einbeiting Keppendur þurfa að þræða sig í gegnum fjölda þrauta á braut-
unum á sem allra stystum tíma. Verðlaun eru veitt fyrir flottasta bílinn.
Börn á öllum aldri Yngstu keppendur kassabílarallsins eru fjögurra ára
en þeir fara jafnan hægar yfir en eldri krakkarnir.
Creatingreallyawesomefreethings.com
er vefsíða Jamie Smith Dorobek, sem
er mikil áhugamanneskja um svokölluð
gerðu-það-sjálf verkefni, eða DIY eins
og það er skammstafað á ensku. Hún
leggur áherslu á að föndrið kosti sem
allra minnst og notar alls konar hráefni
sem fellur til á venjulegu heimili, s.s.
gamla muni og afgangsmálningu.
Vefsíðan er afar litrík og þar er að
finna fjöldann allan af myndum af
margskonar verkefnum þar sem not-
aðir hlutir fá nýtt líf. Hægt er að fletta í
gegnum færslur Jamie í tímaröð eða
velja milli flokka, s.s. árstíðabundin
verkefni. Einn skemmtilegasti flokk-
urinn er sá sem Jamie kallar Round
Ups en þar hefur hún safnað hug-
myndum um ákveðin verkefni saman,
t.d. 19 leiðir til að endurnýta barnarúm
og 28 hugmyndir að öðruvísi gestabók-
um.
Vefsíðan www.creatingreallyawesomefreethings.com
Föndur Á síðunni má m.a. finna hug-
myndir að því hvernig endurnýta má
áldósir á skemmtilegan máta.
Sniðugir hlutir úr ókeypis efni
Þann 16. ágúst nk. verður far-
in síðasta ganga sumarsins í
gönguferðadagskrá Hruna-
mannhrepps. Lagt verður af
stað frá félagsheimilinu á
Flúðum kl. 10, ekið inn í afrétt
og gengið niður með gljúfri
Stóru-Laxár, sem er rómað
fyrir náttúrufegurð. Endað
verður við Hrunakrók.
Gangan verður farinn í sam-
starfi við Upplit, menning-
arklasa uppsveita Árnessýslu.
Panta þarf í ferðina, þar sem
keyra þarf göngufólk inn á af-
rétt, og greiða 5.000 krónur
fyrir aksturinn og leiðsögn.
Gangan tekur um það bil 8
klukkustundir en nánari upp-
lýsingar má finna á www.sveit-
ir.is.
Endilega ...
... gakktu um
Laxárgljúfur
Morgunblaðið/Einar Falur
Fallegt Stóra-Laxá rennur um gljúfrið.
Hinn 29. júlí sl. komu í heiminn
pönduþríburar í Chimelong Safari-
garðinum í Guangzhou í Kína. Um er
að ræða stórviðburð, þar sem við-
koma meðal panda er afar lítil og
þetta mun vera í fyrsta sinn sem
pönduþríburar lifa allir fyrstu dag-
ana eftir fæðingu, að því er vitað er.
Það tók móðurina, Juxiao, fjóra
tíma að fæða húnana og var hún svo
örmagna eftir átökin að þeir voru
teknir frá henni og komið fyrir í hita-
kassa. Þeir vógu 83-124 grömm við
fæðingu og voru minni en mannslófi.
Kínverskur pöndusérfræðingur
sagði í samtali við AFP að of
snemmt væri að tala um að húnarnir
kæmust á legg en þeir væru a.m.k.
einu lifandi pönduþríburarnir sem
vitað væri um. Samkvæmt upplýs-
ingum frá dýragarðinum eru þeir við
góða heilsu.
Húnarnir komu undir með „nátt-
úrulegum“ hætti þegar móðir þeirra
og faðir voru pöruð saman í garð-
inum. Ekki verður hægt að kyngreina
þá fyrr en þeir eldast og verða þeir
nefndir þegar fram líða stundir.
Fyrstu pönduþríburarnir sem lifa
Komu undir með „náttúruleg-
um“ hætti í dýragarðinum
AFP
Tríó Húnarnir komu í heiminn í Guangzhou í Kína fyrir um hálfum mánuði.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á vef-
síðuna.