Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.08.2014, Síða 11

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.08.2014, Síða 11
Ljósmynd/Pétur Halldórsson Verulega sér á birkiskógum á Al- menningum við Þórsmörk eftir sauðfjárbeit í sumar. Sumstaðar eru tré uppnöguð og munu með áfram- haldandi beit eyðast. Þetta kemur fram í frétt sem birt var í vikunni á vefsetri Skógræktar ríksins. Haft er eftir Hreini Óskarssyni skógarverði á Suðurlandi að mest sé þetta áberandi þar sem tilbúinn áburður hafði verið borinn á land. Almennt sjái lítið á eldri skógi nema að neðstu greinar hafi verið nagaðar upp til agna. Hreinn segir að fé hafi víða farið um Almenninga í sumar og eitthvað slæðst yfir á Þórsmörk. Féð haldi sig mest í uppgræðslusvæðum og landi sem er lítt gróið þar sem það étur nýgræðing. Birki hafi á síðustu 20 árum breiðst út mjög víða um Almenn- inga. Áframhaldandi friðun myndi stuðla að mikilli útbreiðslu birkis á Almenningum. Með þessu gæti land- ið staðist betur áföll vegna ösku og annarra eyðandi afla. ALMENNINGAR Skemmdir í skógrækt 24.8. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11 Alls fjörutíu einbreiðar brýr eru eft- ir á Hringveginum. Hjá Vegagerð- inni hefur nokkur áhersla verið lögð á að breikka þessar brýr eða smíða nýjar í þeirra stað. Hefur brúm þessum, sem þykja vera skyldagildr- ur og ekki í samræmi við kröfur dagsins í dag, því fækkað jafn og þétt síðustu árin. Sé leiðin um landið þrædd rétt- sælis út frá Reykjavík þá er staðan góð á Vesturlandi og norður um. Fyrsta einbreiða brúin sem komið er að er yfir Reykjadalsá í Suður-Þing- eyjarsýslu, það er rétt áður en ekið er upp á Mývatnsheiði. Þegar á Austurland er komið tekur svo hver einbreiða brúin við af annarri, þær eru til dæmis margar í Lóni og Suð- ursveit. Miðað við hringferð er brúin á Jökulsá á Sólheimasandi síðust. Á síðasta ári byggðu menn úr vinnuflokki Vegagerðarinnar nýja tvíbreiða brú yfir Aurá, skammt frá Lómagnúpi. Brýrnar yfir Skeiðar- ársand eru einbreiðar með útskot- um. Önnur er þó raunin með brúna yfir Hornafjarðarfljót. Hún er bæði löng og mjó, en komið er á áætlun að reisa nýja í hennar stað og hafa því verkefni verið markaðar fjárveit- ingar. HRINGVEGURINN Brúin yfir Jökulsá í Lóni er einbreið, verður þó sjálfsagt breikkuð í fyllingu tím- ans, enda eru svona mannvirki slysagildrur og ekki í samræmi við kröfur í dag. Morgunblaðið/Sigurður Bogi 40 einbreiðar brýr Þessi ár hér fyrir austan fjallhafa verið góð, en nú taka viðný og spennandi viðfangs- efni,“ segir sr. Sveinn Valgeirsson prestur á Eyrarbakka. Hann tekur nú í septemberbyrjun við embætti prests við Dómkirkjuna í Reykjavík eftir að hafa þjónað eystra frá árinu 2008. Áður var hann sóknarprestur vestur á fjörðum í tæp 13 ár, þjón- aði þá Barðaströnd, Bíldudal og Tálknafirði og sat á síðastnefnda staðnum. Sjónvarpsstjarna Sveinn varð þjóðkunnur árið 2002 þegar hann bar sigur úr býtum í spurningaeinvíginu Viltu vinna milljón, frægum sjónvarpsþáttum á Stöð 2. „Einhverjir virðast enn í dag muna vel eftir þessum þáttum og ég get illa vikist undan því að hafa komið þar fram,“ segir Sveinn og hlær. Sigursæl þátttaka í þáttunum skilaði honum fimm milljónum kr. inn á reikninginn, peningum sem var auðvelt að koma í lóg. „Ríkið tók einhver ósköp í skatta, ég borgaði upp námslánin mín, Tálknafjarðarkirkja fékk smáræði og restina gat fjölskyldan notað til að gera sér dagamun.“ Gott og raunsætt fólk Í kalli Eyrarbakkaprests eru þrjár kirkjur, það er Eyrarbakki, Stokks- eyri og Gaulverjabær í Flóa. Sál- irnar á svæðinu eru ríflega 1.200 – um 500 manns í sínu hvoru þorpinu og svo um 200 í sveitinni. „Hér býr gott fólk, raunsætt með báða fætur á jörðinni og með mikinn metnað fyrir hönd síns byggðarlags enda vel meðvitað um þá ríku sögu sem er á þessum stöðum. Það eru forréttindi að hafa kynnst því,“ seg- ir Sveinn sem hefur messað þriðju til fjórðu hverja helgi í hverri kirkju. Fermingarbörn hvers árs hafa gjarnan verið 15–20 og fjöldi jarðarfara á svipuðu róli. „Það sem hefur gert starfið hér skemmtilegt er ekki síst samneytið við fólkið. Flestir þekkjast og hér í búðinni og nú í félagsheimilinu hafa verið nánast fastar samkomur á morgnana þar sem fólk lítur við og fer yfir málefni dagsins. Það sam- félag er öllum mikils virði.“ Boðskapur leggur línur Veturinn 2012 til 2013 þjónaði sr. Sveinn í afleysingum við Dómkirkj- una í Reykjavík og hefur því nokkra reynslu af því starfi, sem hann tek- ur formlega við nú. „Dómkirkjan er í senn sóknarkirkja fólksins í 101, hún hefur ákveðið hlutverk sem miðborgarkirkja og er svo kirkja biskupsins yfir Íslandi og þar af leiðandi þjóðarhelgidómur. Starfið helgast auðvitað nokkuð af því, en líka hinum almennu störfum, svo sem messuhaldi, fermingarfræðslu, giftingum og fleiru slíku. Þá leitar fólk mikið til kirkjunnar þegar það er komið í öngstræti með sín mál – og hefur lítið dregið úr þeim þætti í starfi presta.“ Sveinn við að þrátt fyrir að marg- ir kjósi að standa utan kristinna safnaða og sumir telji að áhrif krist- innar trúar í samfélaginu eigi að fara dvínandi skipti kirkjan fólkið miklu máli, ekki síst þegar á reynir. Þá leggi boðskapur hennar línurnar og hafi haft mikil áhrif á þá gerð þessa samfélags okkar. EYRARBAKKI Milljónaprestur í Dómkirkjuna Spjall á förnum vegi við bensínstöð á Eyrarbakka. Sr. Sveinn Valgeirsson sókn- arprestur, t.h., og Haukur Jónsson útgerðarmaður fara yfir mál líðandi stundar. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Í hverju byggðarlagi landsins eru fallegar kirkjur. Á Stokkseyri er kirkjan í miðju þorpinu og boðskapur trúar á vissan hátt áttaviti og hringsjá fólksins. Starf í skólum landsins hefst öðrum hvorum megin við helgina. Starf Menntaskólans á Akureyri hefst þó ekki fyrr en 15. september. Skráðir nemendur í vet- ur verða um 750, sem er svipað og undanfarin ár. Akureyri Grundarfjarðarbær stendur nú fyrir ljósmyndasamkeppni. Fólk að störfum er þema keppninnar í ár. Tilgangur þessa er að bærinn hafi úr myndum að moða við kynningarstarf og einnig að vekja áhuga bæjarbúa á myndasmíðum. Grundarfjörður Ármúla 24 • S: 585 2800 CONIA COPPER Danmark Opið laugardag kl. 11:00 – 16:00. www.rafkaup.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.