Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.08.2014, Qupperneq 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.08.2014, Qupperneq 15
* Barnið á að prófa töskunaáður en hún er keypt. * Það þarf að prófa töskunabæði í útifatnaði og án hans. * Taskan á að vera á bakinu, ekki liggja árassinum. * Hún á að fylgja hrygg barnsins, alla leið. * Hún á alls ekki að vera of stór og áekki að vega þyngra en kíló þegar hún er tóm. * Taskan, fyrir utan hugsanleganflöskuhaldara, á ekki að vera breiðari en axlirnar á barninu. * Það á að vera hægt aðfesta hana saman yfir brjóstið. * Hún á ekki að veraóþarflega djúp. * Taskan á að vera meðsérstakt rými fyrir nestisbox, drykki, pennaveski og bækur. * Rýminu á að vera skiptupp svo bækur geti staðið við upp við hrygginn. * Það þarf að vera auðveltað nota rennilásinn og smellurnar, líka fyrir barnið. * Endurskinsmerki þurfa að vera sýnileg á öllumhliðum töskunnar. Það er spennandi að fá fyrstu skóla-töskuna en mikilvægt er að útlitiðráði ekki eitt för heldur að taskan sével hönnuð. Sem betur fer fer það oft saman en mikilvægast er auðvitað að barninu finnist taskan flott og þægileg. Dönsku neytendasamtökin ForbrugerLabo- ratoriet, forbrugerlab.dk, prófa marga hluti fyrir börn eins og skólatöskur, útigalla, regn- galla, barnavagna og stígvél, svo eitthvað sé nefnt. Margar þessar vörur fást hérlendis svo það er vel þess virði að skoða vefinn. Þar er líka að finna góð ráð þegar taska er valin og tekin eru saman hér í ramma. Ekki er það heldur alltaf svo að dýrustu skólatöskurnar séu þær bestu og er hægt að skoða próf nokkur ár aftur í tímann á vefnum. Ennfremur mæla samtökin með því klippa óþarflega langa enda af töskunum, sem verða til þegar axlaböndin eru stytt. Annað mik- ilvægt ráð er að fylla ekki brúsann fyrir skóla, þannig verður taskan þyngri að óþörfu. Líka er það góð hugmynd að fara í gegnum inni- hald töskunnar með barninu reglulega til að taka út allan óþarfa. Í skólum hérlendis er stærstur hluti skóla- bókanna yfirleitt geymdur í skólanum svo börnin bera ekki mikla þyngd á milli. Engu að síður þarf að pakka íþróttadóti og nesti og það þarf að gera vel. Dönsku samtökin mæla til að mynda ekki með því að leikfimiföt séu geymd ofan á eða utan á töskunni, þannig skapast röng þyngdardreifing. Það er víst að það er betra að vanda til verka. Ef taskan passar barninu er það áreið- anlega miklu ánægðara með að bera hana á bakinu. VANDA ÞARF VALIÐ Á SKÓLATÖSKU Nokkur góð ráð Það er gaman að eiga fallega tösku sem passar vel. MIKILVÆGT ER AÐ SKÓLATASKAN HÆFI BARNINU, SÉ EKKI OF ÞUNG OG RÉTT SÉ PAKKAÐ Í HANA. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is 24.8. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 Hvar og hvenær: Laugargarði, Laugardal, við hlið Fjölskyldugarðsins, milli klukk- an 11 og 17 á sunnudag. Nánar: Hægt verður að kaupa grænmeti beint úr garð- inum og eldað verður úr garðinum. Garðyrkjustöðvarnar Sunna, Engi og Akur verða líka á staðnum. Café Flóra verður með súpu á staðnum. Bændamarkaður í Laugardal* Allt sem þarf er trúog traust. Pétur Pan Skírnartertur að hætti Jóa Fel – nýr stíll frá París PANTANIR Í SÍMA: 588 8998 joifel@joifel.is Ragna Sara Jónsdóttir er forstöðumaður samfélags- ábyrgðar hjá Landsvirkjun en hún er í fæðingarorlofi sem stendur. Maðurinn hennar heitir Stefán Sigurðsson og er forstjóri Vodafone. Þau eiga fjögur börn, Valgerði 12 ára, Tómas níu ára, Jakob tveggja ára og Önnu Karólínu sex mánaða. Þátturinn sem allir geta horft á? Síðastliðinn vetur var það Brooklyn Nine-Nine sem sýnt er á RÚV. Þar fer lög- reglumaðurinn Jake Peralta á kostum ásamt félögum sín- um á lögreglustöðinni í Brooklyn. Persónusköpunin í þátt- unum er frábær og hver fjölskyldumeðlimur á sinn uppáhaldskarakter. Einnig er mitt fólk hrifið af Hrað- fréttum og Simpson-fjölskyldunni og svo reynum við auðvitað að horfa á fréttir saman. Maturinn sem er í uppáhaldi hjá öllum? Fyrir nokkrum árum fórum við fjölskyldan til Víetnam. Þar gerðum við ýmislegt skemmtilegt og fórum meðal annars á mat- reiðslunámskeið. Þegar heim var kom- ið vorum við mjög dugleg að elda víet- namskan mat, en víetnömsk matargerð er dásamleg vegna þess að nánast allt í henni er bragðgott og svo er hann líka mjög hollur. Ferskar víetnamskar vor- rúllur og salat með nautakjöti og ferskum kryddjurtum eru í uppáhaldi hjá okkur. Eftir að bættist við fjölskylduna höfum við haft minni tíma fyrir þetta þótt það sé mikil eftirsjá í því, og núna er óhætt að segja að heimagerð pitsa og mexíkóskur matur sé það sem flestir í fjölskyldunni séu ánægðir með. Skemmtilegast að gera saman? Ég spurði stóru börnin mín að þessu og niðurstaðan varð þessi: Að ferðast saman bæði innan- og utanlands. Okkur finnst það gaman vegna þess að þá er öll fjölskyldan saman og hversdagsverkin eru skilin eftir heima. Við upplifum nýja hluti og prófum eitthvað sem við héldum að við myndum aldrei gera (eins og að smakka steiktar engisprettur). Við höf- um verið dugleg við að ferðast og drifið okkur til ýmissa landa eins og Víetnam, Bandaríkj- anna, Túnis, Frakklands, Sví- þjóðar, Noregs og Spánar svo eitthvað sé nefnt. Innanlands fannst okkur sérstaklega gaman að fara um Norðaust- urland og hálendið, en þar gengum við bæði um Jökulsárgljúfur og inn að Öskju, sem er einn magnaðasti staður sem við höfum komið á. Það eru alltaf nýjar upplifanir handan við hornið og allir njóta þess. Borðið þið morgunmat saman? Oft hittumst við við morgunverðarborðið en ekki alltaf allir saman. Á þessum tímapunkti eru ólíkar þarfir inn- an fjölskyldunnar svo það er ekki þannig núna að við setjumst niður við stórt morgunverðarborð og borðum saman. Meira þannig að eldaðir séu mis- munandi grautar fyrir fólk eftir því á hvaða aldri það er. Hvað gerið þið saman heima ykkur til dægrastytt- ingar? Í sannleika sagt þyrftum við frekar dægralengingu en dægrastyttingu á þessu heimili. Það er mikið að gera hjá flestum, skóli og tómstundir, vinna og félagslíf. Við setjumst til dæmis mjög sjaldan niður og spilum, eins og það getur nú verið gaman. Það sem þó hristir alla saman er góð tónlist og hress dans með. Þá brosa allir! EFTIRLÆTI FJÖLSKYLDUNNAR Ragna Sara Jónsdóttir Skemmtilegast að ferðast saman Stundum fylgir leikfimi- taska en þá þarf að gæta að þyngdardreifingunni. Morgunblaðið/Frikki Töskurnar á meðfylgjandi myndum eru frá Alpine og Jeva. Svona band yfir brjóstið er nauðsynlegt. Það er gott að hafa hólf fyrir brúsann.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.