Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.08.2014, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.8. 2014
Heilsa og hreyfing
Þ
að fór vel á með þeim Helmu Rut
Einarsdóttur sálfræðingi og Val-
gerði Margréti Magnúsdóttur
hjúkrunarfræðingi þar sem þær
sátu í hlýlegri og bjartri móttöku Heilsu-
borgar, en þar hafa þær undanfarin fimm
ár starfrækt námskeið um jákvæð tengsl
við líkamann og það sem ofan í hann fer.
Rólegt og afslappandi umhverfi Heilsu-
borgar virðist eiga vel við þær Helmu og
Valgerði, sem byrja að segja frá því
hvernig þær kynntust og hvar hugmyndin
að námskeiðinu vaknaði. „Við störfum báð-
ar á Reykjalundi og kynntumst þar þegar
ég hóf störf árið 2006, en Valgerður hafði
þá unnið þar frá aldamótum,“ segir
Helma, en hún er yfirsálfræðingur á
offitusviði og Valgerður aðstoðardeild-
arstjóri á verkjasviði. „Í okkar daglega
starfi á Reykjalundi höfum við notast við
þær nálganir sem við kennum á námskeið-
inu, en markmiðið er að fólk öðlist já-
kvæðari og heilbrigðari tengsl við líkama
sinn og matarvenjur,“ segir Valgerður.
Þær eru sammála um að nálgunin sem
þær notist við eigi fullt erindi til almenn-
ings og það hafi verið hvatning þeirra til
að setja upp námskeiðið hjá Heilsuborg.
Þegar ekki er byrjað
á réttum enda
Lífsstílsbreytingar geta verið erfiðar og
gamlir ósiðir banka reglulega upp á og
minna á sig. Valgerður segir marga fara
of geyst af stað og setja sér háleit mark-
mið þar sem einblínt sé á hegðunina sem
fólk vill breyta, þ.e. hreyfingu og matar-
æði. „Reglurnar sem fólk setur sér geta
verið harðar sem verður oft til þess að
fólk heldur þær ekki út og dettur í gamla
farveginn aftur. Í kjölfarið kemur oft mik-
il dómharka í eigin garð, sem ýtir enn
frekar undir það að fólk gefist upp og
missi trúna á sér,“ bendir Valgerður. Hún
segir virka fyrir suma að fara þetta á
hörkunni og það sé þá gott mál „Við
Helma erum ekki að predika eina rétta
leið heldur að bjóða þeim upp á valkost
sem ekki hafa náð varanlegri hegð-
unarbreytingu með því að einblína á hegð-
unina og vilja byrja á hinum endanum,
þ.e. skoða sjálfa sig betur með opnum
hug. Þá er unnið með raunverulegar
ástæður fyrir óheilbrigðum venjum og
lögð áhersla á að fólk læri að samþykkja
sjálft sig með öllum sínum veikleikum og
styrkleikum.“
Ekkert æfingaplan og engin vikt
Þær brosa og horfa hvor á aðra þegar
spurt er um mælingar og matarplan og
svara saman að það sé engin vikt og ekk-
ert matarplan. Þá stendur enginn yfir
þátttakendum og telur armbeygjur. Hins
vegar hvetja þær þátttakendur hiklaust til
að hreyfa sig enda mikilvægt að stunda
reglulega hreyfingu. „Nálganir okkar á
námskeiðinu byggjast á gagnreyndum sál-
fræðimeðferðum sem við tengjum saman
og hver og einn getur fundið hvað höfðar
mest til sín og hentar best,“ segir Helma,
sem segir árangursmat á þessum aðferð-
um sýna mjög góðar niðurstöður. „Með-
ferðarnálganir sem við byggjum nám-
skeiðið á eru þjálfun svengdarvitundar,
sem kennir að hlusta betur á og auka
meðvitund um líkamann, hversu svöng við
erum og hversu södd, og hvort um raun-
verulega svengd er að ræða eða tilfinn-
ingasvengd. Þá notumst við líka við hug-
ræna atferlismeðferð sem gengur út á að
skoða tengsl milli hugsana, hegðunar og
líðanar og kynnast þeim heimi sem í hug-
anum býr.“
Þá er ekki allt upptalið því að Val-
gerður bætir því við að einnig sé unnið
með núvitundaræfingar og þjálfun góðvild-
ar í eigin garð. „Dómharka og mikil
sjálfsgagnrýni getur kallað fram skömm í
okkur og dregur úr sjálfstrausti okkar og
getu til að vinna í heilsunni. Þess vegna
þjálfum við góðvild í eigin garð, þar sem
við sýnum sjálfum okkur og öðrum stuðn-
ing, skilning og virðingu. Auk þess gerum
við núvitundaræfingar sem ganga út á að
æfa sig í að vera vakandi fyrir því sem
er að gerast hér og nú, vera í núinu án
þess að dæma og borða með núvitund.
Núvitund, eða mindfulness eins og það
nefnast á ensku, hefur sýnt sig að vera
öflugt verkfæri sem hjálpar líka fólki að
takast á við ýmis önnur vandamál, eins og
kvíða, depurð, streitu o.fl.“
Námskeið Valgerðar og Helmu er því
allt annað en hefðbundið námskeið sem
finna má hjá flestum líkamsræktarstöðvum
og í raun ný nálgun fyrir þá sem vilja
taka upp heilbrigðari lífsstíl. „Okkur finnst
skipta máli að það sé fjölbreytni í því
sem boðið er upp á en við vildum sjá
fleiri vinna með þessa þætti því oft er
það hugurinn sem hindrar okkur í að ná
árangri,“ segir Helma.
Baráttan við staðalímynd
og fordóma
Það er bæði fegurð og styrkur í fjöl-
breytileikanum og augljóst að það sem
hentar einum er öðrum ekki fær leið til
árangurs. Engu að síður er oft sett fram
staðalímynd um vöxt og útlit sem ekki
allir geta uppfyllt. Helma segir það allt of
algengt að litið sé svo á að allir sem eru
í offitu þurfi sömu meðferð til að léttast.
„Í auglýsingum og umfjöllun fjölmiðla er
of oft fjallað um það hvað við eigum að
gera til að missa svo og svo mörg kíló á
ákveðnum tíma og hvernig við eigum að
líta út til að vera ánægð með okkur sjálf.
Allt þetta gerir okkur erfiðara fyrir að
öðlast heilbrigð og friðsamleg tengsl við
matarvenjur okkar. Við megum ekki
gleyma því að offita er afleiðing eða
birtingarmynd mismunandi orsakaþátta.
Orsakirnar geta verið eins margar og ein-
staklingarnir eru margir og því verður að
skoða þær, af hverju er þetta svona, hvað
er þetta að segja mér, hverjar eru orsak-
irnar og vinna út frá því frekar en að
einblína á að breyta einkennunum. Við er-
um mjög gjörn á að reyna að setja alla í
sama kassann,“ segir Helma og Valgerður
tekur undir með henni og bætir við að
sumir séu frá náttúrunnar hendi feitlagnir
en hreyfi sig reglulega og lifi heilbrigðu
lífi. „Fólk verður að fá að vera eins og
það er. Það sem oft vantar eru grundvall-
arbreytingar á eigin viðhorfi gagnvart því
spennandi ferðalagi sem það er að taka
upp heilbrigðari lífsvenjur. Það má segja
að þungamiðjan í námskeiðinu okkar sé sú
að vinna með og breyta viðhorfi fólks
bæði til sjálfs sín og til þessa verkefnis
og ekki má gleyma mikilvægasta þætt-
inum á leiðinni að heilbrigðari lífsstíl –
stórum skammti af mildi eða kærleika í
eigin garð.“
HAMINGJA OG HEILBRIGÐI TIL FRAMBÚÐAR
Heilbrigði með mildi og kærleik
Helma Rut, sálfræðingur, ásamt vinkonu sinni og starfsfélaga Valgerði Margréti, hjúkrunarfræðingi, í
móttöku Heilsuborgar þar sem þær bjóða upp á nýja nálgun fyrir alla sem vilja bæta heilsuna.
Morgunblaðið/Eggert
HELMA RUT EINARSDÓTTIR SÁLFRÆÐINGUR OG VINKONA HENNAR VALGERÐUR MARGRÉT MAGNÚSDÓTTIR HJÚKRUNARFRÆÐINGUR
HAFA SÉRHÆFT SIG Í HEILBRIGÐUM LÍFSSTÍL OG HAFA ÁRALANGA REYNSLU Í AÐ AÐSTOÐA FÓLK AÐ BYGGJA UPP HEILBRIGT LÍF TIL
LANGFRAMA, M.A. MEÐ VINNU SINNI Á REYKJALUNDI. MEÐ REYNSLU OG ÞEKKINGU SÍNA AÐ VOPNI SETTU ÞÆR SAMAN NÁMSKEIÐ
SEM ER ÓLÍKT ÖLLU ÖÐRU SEM ALMENNT ER Í BOÐI FYRIR FÓLK Á LÍKAMSRÆKTARSTÖÐVUM.
Vilhjálmur Andri Kjartansson vilhjalmur@mbl.is
*Dómharka og mikilsjálfsgagnrýni geturkallað fram skömm í okk-
ur og dregur úr sjálfs-
trausti okkar og getu til
að vinna í heilsunni. Þess
vegna þjálfum við góðvild
í eigin garð.
Lágkolvetnakúrinn var vinsæll hér um tíma, margir töldu sig ná góðum árangri með
minna af kolvetni á disknum. Engu að síður telur Landlæknisembættið að hæfilegt sé að
50% til 60% af orkunni sem við tökum inn komi úr kolvetnum. Þó má ekki meira en 10%
koma úr viðbættum sykri.
Kolvetnissnautt mataræði?