Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.08.2014, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.08.2014, Blaðsíða 30
12 stk. gulrætur, rifnar í langa strimla 8-10 msk. kasjú- hnetusmjör* 2 tsk. soyasósa 3 msk. tamarisósa 1 bolli vatn 4 stk. hvítlauks- geirar 4 msk. næringarríkt ger (eða parmesan- ostur) 4 msk. hampfræ Öllu hráefninu nema gulrótarstrimlunum er blandað saman í bland- ara eða matvinnsluvél. Sé sósan of þykk er meira vatni eða tamari- sósu blandað út í hana, annars kasjúhnetu- smjöri. Þegar sósan er tilbúin er henni bland- að vandlega saman við gulrótarstrimlana og rétturinn borinn fram. *KASJÚHNETU- SMJÖR 300 gr. kasjúhnetur ¼ tsk. salt Hráefnið er sett saman í blandara þar til falleg og mjúk áferð næst. Gulrótarpasta með kasjúhnetusósu 30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.8. 2014 Matur og drykkir TILRAUNARSTARFSEMI Í ELDHÚSINU Bauð vinkonun- um í vegan-mat * Ég get ekki sleppt íslenska fisknum,hann er bara of góður. VERKFRÆÐINEMARNIR RAGNHEIÐUR BJÖRK HALLDÓRS- DÓTTIR OG HANNA SIGRÍÐUR TRYGGVADÓTTIR HÉLDU SKEMMTILEGT BOÐ FYRIR VINKONUR SÍNAR HEIMA HJÁ ÞEIRRI SÍÐARNEFNDU. RAGNHEIÐUR OG HANNA BUÐU UPP Á GIRNILEGA VEGAN-RÉTTI SEM VÖKTU MIKLA LUKKU. Guðný Hrönn gudnyhronn@mbl.is Hanna Sigríður Tryggvadóttir (t.v.) og Hildigunnur Ólafsdóttir skáluðu við vinkonur sínar í Freixenet Mia-hvítvíni frá Spáni. Þ etta eru stelpur sem ég kynntist í verkfræðinni fyrir þremur ár- um,“ segir Ragnheiður og að þær vinkonur hafi verið duglegar að hittast og borða saman síðan þær kynntust. „Upphaflega hittumst við á mánaðar fresti, svo jókst álagið í verkfræðinni og við höfð- um ekki tíma til að hittast það reglulega,“ segir Ragnheiður. Ragnheiður segir fyrirkomulag matarboða þeirra vera skemmtilegt. „Sú sem býður heim í mat ákveður hvað er á boðstólnum og hinar koma og hjálpa til við að elda. Þannig myndast skemmtileg stemmning. Við eyðum löngum tíma saman í að undirbúa matinn, þessi undirbúningur gefur okk- ur tækifæri til að spjalla saman og smakka matinn til,“ segir Ragnheiður sem kveðst vera hrifin af vegan-mataræði (að borða ekki kjöt né fisk). „Ég er ekki vegan en við Hanna Sigríður vinnum saman og undanfarið höfum við verið duglegar að kynna okkur vegan-mataræði og skoða veg- an-uppskriftir. Þessir vegan-réttir eru alveg ótrúlega girnilegir og manni líður svo vel þegar maður er ekki að borða mikið kjöt,“ segir Ragnheiður. Þrátt fyrir að Ragnheiður sé búin að minnka kjötneyslu sína til muna að undanförnu telur hún sig ekki geta losað sig algjörlega við allt kjöt og dýraafurðir til frambúðar. „Ég gæti frekar ímyndað mér að vera „pescetarian“, ég get ekki sleppt íslenska fisknum, hann er bara of góður,“ segir Ragnheiður en percateri- an-mataræði snýst um það að leggja sér ekkert kjöt til munns nema fisk og annað sjávarfang. „Maður borðar kannski ekki fisk í hvert mál þegar maður er pescetarian en maður leyfir sér fisk,“ segir Ragnheiður. Það gekk vel að finna uppskriftir að vegan-réttum að sögn Ragnheiðar. „Það gekk eiginlega of vel,“ segir Ragnheiður og hlær. „Maturinn heppn- aðist líka mjög vel, þetta gekk vonum framar. Það voru allir ánægðir með það sem boðið var upp á, það var frábært, við vorum auðvitað sjö og það er áskorun að elda öðruvísi mat fyrir marga,“ segir Ragnheiður sem á erfitt með að elda sér venjulegan mat á venjulegum degi að eigin sögn. „En þegar kemur að því að taka á móti gestum þá get ég eytt heilu klukkustundunum í eldhúsinu og matreitt spennandi mat. Þetta eru tveir ólíkir hlutir, að elda venjulegan og einfaldan mat fyrir sjálfa sig og að elda nýjan og áhugaverðan mat fyrir aðra,“ segir Ragnheiður að lokum. SALATBLANDA 100 gr. lambhagasalat 100 gr. klettasalat 1 stk. grænt epli, skorið í smáa bita 100 gr. valhnetur SÓSA 5 msk. rauðvínsedik 2 msk. vatn 4 msk. ólífuolía 1 ½ tsk. sterkt sinnep salt og pipar eftir smekk Blandið öllu hráefninu saman þar til þykk og góð áferð næst.Blandið þá sós- unni við salatblönduna og berið fram. Sumarsalat með eplum og valhnetum 2 bollar frosið mangó 2 bollar frosinn an- anas 4 bananar 1 askja bláber Nokkur myntulauf Allt hráefnið fyrir utan bláberin og mynt- una er hrært saman í blandara þar til bland- an eru orðin mjúk og kekklaus eins og sor- bet-ís. Ísinn er þá bor- inn strax fram með bláberjum og ferskri myntu. Suðrænn sorbet með bláberjum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.