Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.08.2014, Síða 33

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.08.2014, Síða 33
Hver sem vill spila gamla góða tölvu- leikinn Pong getur nú komið sér fyrir á Arnarhóli með snjallsímann að vopni og spilað leikinn á veggjum Hörpu. Þar hefur verið komið fyrir þráðlausu neti sem spilarar tengjast í gegnum símana. Tölvuleikur á Hörpu 24.8. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33 * Konur erustærstaónýtta auðlind af hæfileikum sem heimurinn á. Hillary Clinton Í kjölfar tunglferðanna væntu margir þess að stutt væri í að almenningur gæti skotist út í geim. Menn leyfðu sér að dreyma um risageimstöðvar, útibú á tunglinu og jafnvel bæki- stöðvar á Mars. Ekkert af þessu hefur orðið að veruleika enn og eru margir orðnir óþreyjufullir að komast út í geim og upplifa ævintýrið og töfrana að sjá jörð- ina úr fjarska. Sú kynslóð sem upplifði það ung að sjá Neil Armstrong stíga sín fyrstu skref á tunglinu er nú farin að eldast og óttast sumir að með henni hverfi löngunin og draumurinn að gera geimferðir almennar. Einkafyrirtækin mætt á sviðið Getur það verið að drifkraftur- inn, ævintýramennskan og draumurinn um geimferðir hverfi með þeirri kynslóð sem nú er að komast á eftirlaun? Eftir að Bandaríkjamenn urðu fyrstir þjóða til að lenda mönnuðu geimfari á tunglið og koma öll- um heim, heilu og höldnu, dró verulega úr kappinu milli stór- veldanna. Síðasta tunglferðin var farin 1972 og síðan hefur áhug- inn á tunglinu verið takmark- aður. Það var ekki síst eftir fall Sovétríkjanna sem geimferðir urðu fyrst annars flokks áhuga- mál stjórnmálamanna í Banda- ríkjunum, en þau hafa verið leið- andi í geimrannsóknum og geimferðum frá því 1969 og því er það nokkurt áhyggjuefni fyrir áhugamenn um geimferðir og vísindi, ekki síst þá sem hefur lengi dreymt um að komast út í geim. Svo virðist þó sem menn geti farið að taka gleði sína á nýjan leik, því loksins hefur áhugi einkafyrirtækja á mönnuðum geimferðum vaknað og þeim fylgir fjármagn sem iðulega er ávísun á aukna tækniþróun og notendavæna þjónustu fyrir al- menning. Geimferðaþjónusta næstu ára Auðkýfingurinn Richard Branson stofnaði fyrirtækið Virgin Galac- tic með það í huga að bjóða al- menningi ferðalög út í geim. Hann lofaði því reyndar að fyrsta ferðin yrði farin árið 2010 en ekkert varð af henni og mátti svo sem búast við því að einhverjar tafir yrðu á fyrstu al- mennu einkageimferðunum. Nýj- ustu fregnir herma þó að fyr- irtækið muni seint á þessu ári eða á því næsta fara sína fyrstu ferð með ferðamenn út í geim. Enn sem komið er hefur ekkert verið gefið út um dagsetningu og óttast menn enn frekari tafir. Hvort sem fyrsta ferðin verður farin seint á þessu ári, snemma á því næsta eða síðar er ljóst að almenningur mun hafa tækifæri á því að ferðast út í geim á næstu árum.Verðmiðinn á ferð með Virgin Galactic er þó ekki fyrir alla, en ferðin kostar tæpar 30 miljónir króna. „Róm var ekki byggð á einum degi og fyrstu ferðirnar verða dýrar en með aukinni samkeppni, betri tækni og auknu framboði býst ég við að verðmiðinn eigi eftir að lækka,“ sagði sjálfur Branson í samtali við fréttamenn þegar hann var spurður út í nýju flaugina sem fyrirtækið er að ljúka smíði á. Hversu lengi al- menningur þarf að bíða eftir ferðum á viðráðanlegu verði er óvíst en meðan draumurinn um geimferðir er lifandi í hugum fólks og menn eins og Branson eru til staðar mun verðmiðinn á ferðum út í geim lækka og al- menningur mun fá tækifæri til að ferðast út fyrir gufuhvolfið. Hótel í geimnum Það er ekki nóg að koma fólki út í geim og til baka. Kröfu- harðir ferðamenn vilja gista í geimnum og upplifa þyngd- arleysið, útsýnið og ævintýrið lengur en í þær sex mínútur sem Virgin Galactic ætlar að bjóða upp á til að byrja með. Þrátt fyrir að geimferðir séu hvorki orðnar almennar né yfir höfuð byrjað að bjóða upp á slíkar ferðir fyrir almenning hef- ur fasteignamógúllinn Robert Bigelow áform um það hvernig mæta megi þeim markaði sem hann telur að verði kominn inn- an fárra ára. Það skal heldur engum dyljast að Bigelow ætlar sér að hagnast vel á geimferða- mennsku, en með öðrum hætti en Branson. Hann hefur látið þróa hylki sem auðvelt er að koma út í geim og setja saman. Þannig hyggst hann setja upp fyrsta geimhótelið. Fyrirtæki hans, Bigelow Aerospace, vinnur nú í samvinnu við NASA að prófunum á geimhylkinu og ef allt fer að óskum má búast við því að á næstu áratugum verði reist geimhótel fyrir almenna ferðamenn. Kynslóðin sem sá ung tunglfara lenda á tunglinu gæti því náð því að upplifa ferð út í geiminn og til baka. Geimferðir og ferðamennska DRAUMURINN UM AÐ KOMAST ÚT Í GEIM LIFIR ENN GÓÐU LÍFI Í HUGUM MARGRA SEM SÁU FYRSTU TUNGLFERÐIRNAR EN NÚ GÆTI DRAUMURINN ORÐIÐ AÐ VERULEIKA ENDA EINKAFYRIRTÆKI FARIN AÐ SJÁ FRAM Á MARKAÐ FYRIR GEIMFERÐAMENNSKU. Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is NASA vinnur með Bigelow Aerospace við að prófa hönnun fyrirtækisins en fyr- irhugað er að senda eitt hylki út í geim til prófana. Nóttin í geimhótelherbergi Bigelow verður þó væntanlega ekki ódýr og ferðakostnaðurinn ekki heldur. Ljósmynd/(NASA/Bill Ingalls) Geimflaug Virgin Galactict er langt komin og styttist í fyrstu ferðina. Ljósmynd© Virgin Galactic Sequel hliðartöskur 13-15” Fartölvutöskur sem passa vel fyrir fartölvuna, spjaldtölvuna og aukahluti. Verð13.990.- 11" verð frá 159.990.- 13" verð frá 179.990.- Apple TV Varpaðu myndefni og tónlist úr iPhone, iPad og tölvunni þinni þráðlaust í sjónvarpið. Verð 16.990.-

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.