Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.08.2014, Qupperneq 42

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.08.2014, Qupperneq 42
Viðtal 42 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.8. 2014 R isastór hestur úr tré tekur á móti blaðamanni í anddyrinu á heimili Anítu Margrétar Aradóttur í Reykjavík. Aníta er hálf ringluð eftir langt ferðalag heim og tímamismun milli landa, en hún er nýkomin frá Mongólíu, þar sem hún keppti í lengstu og hættulegustu kappreiðum heims, Mongol Derby. Aníta lenti í 19. sæti í keppninni og komst heil á húfi í mark, sem er ekki sjálf- gefið. Auk þess er hún fyrsti Íslendingurinn sem tekur þátt í keppninni og vakti það at- hygli. Aníta er þaulreyndur knapi og tamninga- maður. Hún rakst á umfjöllun um keppnina á Facebook og las sér til um hana. „Ég skoðaði eitthvert myndband og sá síðan „Sign-up“ takka. Ég var ekki lengi að smella á hann og fylla út umsókn.“ Aníta bjóst ekki við að verða valin, því að hundruð manna sækja á ári hverju um að fá að taka þátt í keppninni en aðeins um 35 komast að. Í ár voru kepp- endur að vísu 48 og telur Aníta ástæðuna vera að breskir hermenn, þar á meðal líf- verðir Englandsdrottningar, hafi sótt um í seinna lagi. „Þeir áttuðu sig þó á því, keppn- ishaldarar, að við vorum í rauninni allt of mörg. Á einum tímapunkti þurfti að stöðva alla keppnina eins og hún lagði sig, því að læknar og dýralæknar áttu erfitt með að halda utan um hópinn því við vorum svo dreifð. Sumir riðu mjög hratt, aðrir miðlungs á meðan enn aðrir drógu lestina.“ „Þetta var svo ótrúleg upplifun, það er eiginlega ekki hægt að lýsa þessu,“ segir Aníta og hlær en lofar þó að reyna eftir fremsta megni. Mongol Derby-kappreiðarnar voru fyrst haldnar árið 2009 á sléttum Mong- ólíu. Knapar ríða 1.000 kílómetra og er ferða- leiðin mótuð eftir gamalli reiðleið frá tímum Genghis Khan frá 1224. Aníta segir landslagið að vísu afar svipað því íslenska og leið henni stundum eins og hún væri stödd á Íslandi. Þá segir hún hestunum þar einnig svipa til ís- lenska hestsins. Um 1.500 hestar eru notaðir í keppninni og hver hestur aðeins riðinn einu sinni. Keppnin samanstendur af 25 stöðvum þar sem knapar fá nýjan hest og eru um 40 kílómetrar á milli allra stöðva. Hljómar krefj- andi, enda er ekki gefið að knapar nái að klára keppnina. Margir detta úr leik, slasast, veikjast, þreytast eða gefast upp. Í ár duttu 10 úr keppni, sem er þó óvenju há tala miðað við kappreiðar síðustu ára. Datt aldrei af baki „Okkur var sagt í byrjun að einn stæði upp úr sem sigurvegari en í rauninni væru allir sigurvegarar sem næðu að koma í mark,“ segir Aníta. „Einnig var okkur gert að sætta okkur við það að við myndum öll detta af baki á einhverjum tímapunkti. Hestarnir sem voru notaðir í keppnina voru allir mjög lítið tamdir svo að þetta var eiginlega gefið. Ég hélt mér hins vegar á baki allan tímann og var nokkuð ánægð með það.“ Aðeins fjórir knapar héldust á baki alla leiðina, af 48 kepp- endum, og voru það allt konur. Aníta segir að ótrúlegasta fólk hafi tekið þátt í keppninni. Fagfólk, hestafólk, minna reyndir, lífverðir, hermenn og fólk með ævintýraþrá. Fólki gekk einnig jafn misjafnlega og það var margt og ótrúlegasta fólk náði að klára keppnina. „Það er engin uppskrift að þessu. Það var ein kona þarna sem var eins og kart- öflupoki á baki, en hún náði að klára. Önnur grét allan tímann og átti mjög erfitt með að vera þarna. Þetta tók svakalega á hjá mörg- um, einhverjir voru sérstaklega óheppnir og sumir lentu bara hræðilega illa í því. Það var í rauninni líka spurning um heppni hvers konar hesti hver lenti á. Ég hugsa að ég hafi verið yfirhöfuð frekar heppin. Best var að fá hest sem komst mjög hratt en var heill í hausnum. Sumir hestarnir voru allt of latir á meðan aðrir voru snælduvitlausir. Það segir sig sjálft að það er ekki gaman að vera á hesti þar sem jaðrar við að maður sé í lífs- hættu.“ „Hesturinn steig á andlit hennar“ Mikil von var bundin við lífverði Englands- drottningar en Aníta segir að þeir hafi verið einstaklega óheppnir. „Það kom mörgum á óvart að þeir stóðust ekki væntingar. Þeir voru alltaf að detta af baki, það var sparkað í andlitið á einum og einn þurfti að fara með sjúkraflugi því talið var að hann hefði háls- brotnað, sem var þó sem betur fer ekki raun- in. Enn annan var bara einhvern veginn búið að teipa sundur og saman. Hann var allur í sárum og sárabindum, greyið. En þetta eru reiðmenn sem eru alltaf í kyrrstöðu eða ríða hægt. Ef þú ætlar að taka þátt í þessari keppni þarftu að vera með reynslu að ríða hestum á einhverjum hraða upp og niður fjöll og firnindi, upp ár, hæðir og hóla. Það er ekki nóg að kynna að sitja hest, þú verður að kunna að ríða hratt.“ Fleiri lentu í erfiðleikum í keppninni og sumir urðu fyrir misalvarlegum slysum. Varð Aníta vitni að einu slíku. „Ein sem ég var að ríða með lenti á stjórnlausum hesti. Hann rauk með hana frekar lengi þangað til hest- urinn hrasaði og hún datt ofan í holu. Hún viðbeinsbrotnaði og ég veit að hún var í að- gerð í vikunni. Önnur lenti í því að detta af baki og hesturinn steig á andlit hennar. Hún náði samt að setja hendurnar fyrir andlitið þannig að hann steig ofan á höndina á henni, sem brotnaði við það. Hún kláraði samt keppnina. Eftir slysið var farið með hana upp á slysó og gert að brotinu, þar sem hún fékk umbúðir, en hún sagði bara: „Ég ætla að halda áfram!“ Svo að hún kláraði keppnina með brotna hönd.“ Blindruku með börnin Fyrstu dagar keppninnar voru nýttir í að- lögun. Keppendum var greint frá reglum og útskýrt hvernig öllu yrði háttað. Þá tóku tug- ir barna þátt í 60 kílómetra kappreiðum til þess að gefa keppendum Mongol Derby smjörþefinn af því sem koma skyldi. „Það var alveg svakalegt þegar mongólsku börnin fóru á bak. Ég hef bara aldrei séð svona. Börnin riðu mörg hver berbakt, hjálmlaus, skólaus og á þvílíkum hraða. Sumir hestarnir blind- ruku með börnin áður en keppnin byrjaði og þau bara rifu í faxið á þeim og reyndu að beygja og stjórna hestinum, þetta var ótrú- legt. Sumir hestarnir komu til baka með eng- in börn á baki og þá höfðu þau dottið af baki einhversstaðar og þurftu bara að koma sér heim. Foreldrarnir kipptu sér ekkert við þetta. En svona er lífið þarna,“ segir Aníta. Drengurinn sem hafnaði í þriðja sæti í kapp- reiðinni er sex ára gamall og Aníta segir að þarna hafi verið börn frá fjögurra ára aldri. „Það er magnað að ekki verði fleiri slys en raun ber vitni. Þetta þykir ekkert hættulegt því hugarfarið er þannig hjá Mongólum. Hestar sem þykja hættulegir hér heima eru daglegt brauð fyrir þeim. Kúrekarnir í villta vestrinu hafa sko ekki roð við þeim,“ segir Aníta og hlær. „Í rauninni finnst heimamönn- um við Vesturlandabúar alveg fáránlegir og gera grín að okkur. Við erum mikið varin, með hjálm og brynju, og þau kalla okkur bara aula.“ Er mikill munur á hestamennsku þarna og hér heima? „Já, rosalega mikill munur. Hugarfarið er mun villtara. Þarna eru ekki hesthús heldur ganga hestarnir lausir, graðhestar, merar og geldingar úti um allt. Hestarnir dreifast síðan um slétturnar marga kílómetra í burtu og þá þurfa þeir að smala. Það getur tekið langan tíma en þarna eru rosalegir smalamenn og eru veiðistangir þeirra stórar og þungar með lykkju á endanum sem þeir kasta á fullri ferð og reyna þannig að snara hestinn, þeir halda ekki einu sinni í tauminn á meðan. Þetta er ekki svona eins og hér heima, þá myndast oft tengsl milli manns og hests, vinatengsl. Í Mongólíu er allt miklu harðara og hlutirnir gerðir hastarlega. Hins vegar er mikil virðing borin fyrir hestinum og fyrir þeim er hann heilög skepna. Ég heyrði oft að fólk taldi þá fara illa með hestana og jaðra við dýraníðslu en ég var ekki sammála því. Þetta er bara öðruvísi líferni og svolítið basl.“ Fékk umdeildan næturgest Keppendur fengu hýsingu hjá innfæddum og þurftu að bera svefnpoka og dýnu með sér á Toppaði lífverði Englands- drottningar OFURKNAPINN ANÍTA MARGRÉT ARADÓTTIR ER KOMIN HEIM HEIL Á HÚFI EFTIR AÐ HAFA RIÐIÐ, FYRST ALLRA ÍSLENDINGA, 1.000 KÍLÓ- METRA Í LENGSTU OG HÆTTULEGUSTU KAPPREIÐ HEIMS Í MONG- ÓLÍU. HESTAMENNSKA HEFUR ÁTT HUG HENNAR OG HJARTA FRÁ BLAUTU BARNSBEINI OG NÝTUR HÚN ÞESS AÐ KYNNA ÍSLENSKA HESTINN Á ERLENDRI GRUNDU. Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is Aníta Margrét Aradóttir vílaði ekki fyrir sér að ferðast til Mongólíu og keppa í 1.000 kílómetra kappreiðum, þeim lengstu og hættulegustu í heimi. * Önnur lenti í því aðdetta af baki ogsteig hesturinn á andlit hennar. Hún náði samt að setja hendurnar fyrir andlitið þannig að hann steig ofan á höndina á henni, sem brotnaði við það. Hún kláraði samt keppnina.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.