Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.08.2014, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.08.2014, Blaðsíða 44
Tímalína 44 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.8. 2014 2012 2013 2014 Á toppi ferilsins Þriðja plata Timberlake,The 20/20 Experience, kom út í mars 2013.Timberlake var tilnefndur til Grammy- verðlauna fyrir plötuna sem kom út í tveimur hlutum en hinn hluti plötunnar ber heitið The 20/20 Experience – 2 of 2. Plöturnar hlutu gríðarlega góða dóma en lagið „Suit & tie,“ sem er aðallag plötunnar, syngur Justin Timber- lake ásamt Jay Z. Þetta var fyrsta lag sem söngvarinn tók opinberlega eftir fjögurra ára pásu frá söngnum. Þann 19. október 2012 gekk Justin Tim- berlake að eiga Jessicu Biel við hátíðlega athöfn í Puglia á Ítalíu. Justin lýsti brúðkaupinu sem töfrandi stund í samtali við tímaritið People. Brúðurin ljómaði í fallegum, bleikum kjól úr hátískulínu tískuhússins GiambattistaValli en brúð- guminn klæddist sérgerðum smóking frá Tom Ford. Í brúðkaupinu söng Timberlake frumsamið lag til nýju eiginkonunnar. AFP Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Justin Timberlake gantast við mótleikkonu sína úr kvikmyndinni Friends with benefits, Milu Kunis, og grípur um brjóst hennar á MTV verð- launaafhendingunni. Kvikmyndirnar In time, sem Timberlake fer með aðalhlutverkið í ásamt leikkonunni Amöndu Seyfried, og Bad Teacher sem hann leikur í ásamt fyrrverandi kærustu sinni, Cameron Diaz, voru ein- nig frumsýndar sama ár. Justin Timberlake trúlofaðist kærustu sinni til fimm ára, Jessicu Biel og bað hennar með sérgerðum trúlofunarhring í árlegu skíðaferðalagi parsins til Montana í Bandaríkjunum. 2011 HANN ER EIN SKÆRASTA STJARNA HEIMS. ERFITT ER AÐ FINNA STARFSTITIL Á JUSTIN TIMBERLAKE, ÞAR SEM HANN HEFUR KOMIÐVÍÐAVIÐ EN ÞEKKTASTUR ER HANN ÞÓ FYRIR SÍNA FÖGRU RÖDD.TIMBERLAKE ER EINNIG KNÁRVIÐSKIPTA- MAÐUR, FLOTTUR LEIKARI OG HEFUR LÁTIÐ GOTT AF SÉR LEIÐA MEÐ ÝMSUM GÓÐGERÐARVIÐBURÐUM OG FRAMLÖGUM ÚR EIGINVASA. S öngfuglinn og stórstjarnan Justin Timberlake er einstaklega hæfi- leikaríkur maður. Eins og mörgum er kunnugt hóf hann feril sinn þegar hann tók þátt í tveimur hæfileikakeppnum sem var sjónvarpað, Star Search og The All- New Mickey Mouse Club. Eftir þáttaraðirnar varð hann hluti af vinsælli popphljómsveit, strákabandinu ‘N sync, en þar var hann yngstur meðlima og jafnframt aðalsöngvari. Þegar ‘N sync leið undir lok árið 2002 gaf Timberlake út sína fyrstu breiðskífu, Justi- fied. Sú plata markaði upphafið að farsælum ferli og talið er að hann sé á toppi ferils síns í dag. Hann hefur gefið út fjórar plötur og un- nið með fjölbreyttu tónlistarfólki, þar á meðal Madonnu, Janet Jackson og Snoop Dogg. Splunkunýtt lag, Love never felt so good, eftir Michael Jackson er unnið í samstarfi við Tim- berlake. Lagið var í bígerð þegar Jackson féll frá. Hins vegar var ákveðið að gefa lagið út og Timberlake fenginn til þess að syngja með í því. Lagið hefur vægast sagt slegið í gegn. Hann hefur leikið í fjórum kvikmyndum sem hafa fengið ágætis dóma og þykir hinn prýðilegasti leikari. Ekki er líf hans þó eintómur leikur, söngur og dans því stór- stjörnunni vegnar einnig einstaklega vel í viðskiptum. Hann á hlut í þremur vinsælum veitinga- stöðum í Bandaríkjunum, tveir af þeim eru í New York, Destino og Southern Hospitality og einn í Californiu, Chi. Þá stofnaði hann fatamerki ásamt æskuvini sínum, Juan Ayala, árið 2005 og hefur gengið vel síðan þá hjá þeim félögum. Ein lína þeirra félaga var hönnuð með Elvis Presley í huga enda útskýrði Ayala að Elvis væri hin fullkomna blanda af sér og Timberlake. Árið 2007 keypti Timberlake golfvöll í heimabæ sínum, Millington í Tennessee í Bandaríkjunum. Golfvellinum, Big Creek Golf Course, var tímabundið lokað og gerður upp því Timberlake vildi að golfvöllurinn yrði umhverfisvænn. Fyrir vikið hlaut hann nokkrar viðurkenningar og verðlaun fyrir framlag sitt til umhverfisins. Golfvöllurinn hefur verið mikið í notkun og hefur Timber- lake staðið fyrir ýmsum golfviðburðum í tengslum við góðgerðarmál. En Timberlake sinnir góðgerðarmálum ekki aðeins á vell- inum. Hann hefur gefið frá sér og safnað ótrúlegum fjárhæðum fyrir ýmis málefni og er eftirsóttur í að sinna slíkum hlutverkum í ljósi þess að hann er óumdeildur og þykir góð fyrirmynd. Við bjóðum Justin Timberlake velkominn til Íslands!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.