Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.08.2014, Page 47

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.08.2014, Page 47
hún birtist í samfélagsgerðinni. Nú til dags fara fæstir eina beina braut eftir að námi lýkur, hvort heldur sem er í listum eða öðru. Flestir púsla saman sinni lífsleið af miklu meiri fjölbreytileika en áður tíðkaðist – bregða sér í fleiri hlutverk.“ Hún bætir enn fremur við að Listaháskólinn þurfi að standa sig betur sem rannsóknarháskóli en í þeim efnum sé aftur ekki hægt að líta framhjá hlutverki hins opinbera. „Við þurfum að sinna hér raunverulegum rannsóknum eins og þeir fremstu úti í heimi gera. Hins vegar höfum við ekki úr sama rannsóknarfé að spila og aðrir skólar innan lands eða utan og höfum jafnvel fengið misvísandi upplýsingar í vetur um hvernig fjármagn til okkar er reiknað – að hvaða marki rannsóknarfé er innifalið í því. Við þurfum skýr svör til að móta rannsóknarstefnu út frá þeim fjárveitingum sem við fáum og verðum að geta áttað okkur á hvers við þurfum að afla sjálf til að efla rannsóknarþátt kennara og styrkja rannsókn- artengt nám. Skólinn hefur líka lengið beðið eftir svörum frá ráðuneytinu varðandi stofnun kvikmyndadeildar. Það væri bæði fagumhverfi kvikmyndanna og skólanum mikils virði að hrinda því í framkvæmd, samlegðin við aðrar greinar í skólanum er augljós og möguleikarnir sem hlytust af því miklir.“ Umskipti til hins verra í fjölmiðlum Fríða Björk starfaði um árabil sem menningar- ritstjóri og skríbent á Morgunblaðinu og fjallaði þar um flestar listgreinar. Hún segir að sér hafi verið falið að sjá til þess að allar listir fengju góða og uppbyggilega umfjöllun sem byggði á hug- myndafræði listanna sjálfra en ekki markaðs- lögmálum. Er talið berst að menningarumfjöllun fjölmiðla er Fríða ómyrk í máli um þá þróun sem hefur átt sér stað. „Það hafa orðið mikil umskipti til hins verra í fjölmiðlum frá aldamótum – net- miðlar hafa sótt í sig veðrið, sem er frábært, en ekki alveg áttað sig á vægi menningarinnar eins og hún var ræktuð í prentmiðlum fyrri áratuga. Það sinnir enginn djúpri og faglegri greiningu á listum fyrir almenning eins og gert var. Því mið- ur. Umfjöllunin er handahófskennd og markaðs- miðuð, fyrst og fremst. Hún felst yfirleitt í kynn- ingu á verkum eða viðburðum, einhverju sem auglýsingar eða samfélagsmiðlar gætu sinnt. Fjöl- miðlar þjóna menningunni best með því að kryfja, gagnrýna og greina og eiga að leita til sérfræð- inga við það. RÚV stendur sig vel en meiri sam- keppni hefði faglegt aðhald í för með sér.“ Hugmyndir um hinn frjálsa og skapandi lista- mann sem fær hugmyndir sínar frá nafnlausri uppsprettu innra með sér og hið akademíska há- skólaumhverfi fara ekki alltaf saman og því er ekki úr vegi að spyrja Fríðu hvert hlutverk lista- háskóla sé gagnvart nemendum sínum. „Hlutverk listaháskóla er að gera nemendum kleift að nýta hæfileika sína til fullnustu út frá sinni persónu- legu listrænu sýn. Skólinn kennir á þá miðla sem nemandinn þarf að tileinka sér, veitir nauðsynlega þjálfun, setur starfið í hugmyndafræðilegt sam- hengi og fyllir upp í bakgrunnsþekkingu þá sem þarf til að geta verið frumlegur og skapandi á eigin forsendum. Námið er mikil ögrun fyrir nem- endur, krefst bæði vinnusemi og dirfsku þar sem óttinn við tabúla rasa er kannski helsti farar- tálminn, rétt eins og í allri annarri skapandi vinnu.“ Þegar nemendur Listaháskólans útskrifast blasir iðulega við þeim ókannað land og leiðir þeirra að námi loknu eru jafnmisjafnar og þeir eru margir. Listamenn samtímans eru oftar en ekki sínir eigin vinnuveitendur með því að skapa verkefni sín sjálfir. Allir eiga það þó sameiginlegt að ætla sér að vinna að listrænni sköpun. Mér leikur hugur á að vita hvert hlutverk listrænnar sköpunar í samfélaginu er í augum Fríðu Bjarkar. „Ekkert samfélag þrífst án listrænnar sköpunar, það er margsannað og einföld staðreynd. Þar sem listin er bæld, t.d. vegna pólitískra ofsókna, styrj- alda, spillingar eða neyðar af öðru tagi, þrífst hún sem aldrei fyrr. Kalda stríðið færði aldeilis sönn- ur á það beggja megin járntjaldsins. Listin er ein- faldlega svo ríkur þáttur í mannlegu eðli, hvort sem menn vilja viðurkenna það eða ekki. Hlu- verk listarinnar getur verið hvað sem er – það fer eftir málefnum, orðræðu og fagurfræði hvers samtíma. Ég man þó ekki eftir neinni list sem hefur haft ill áhrif á heiminn eða umhverfi sitt – það er þá ekki list heldur eitthvað annað. Jafnvel mjög ögrandi list í einhverjum skilningi hefur góð áhrif þar sem hún neyðir fólk til að taka af- stöðu, til að hugsa, til að átta sig á umhverfi sínu og stöðu.“ Skiptir máli að mennta listamenn hér á landi? Íslendingar eyða ekki miklum opinberum fjár- munum í listir og íslenskir listamenn eru vanir þeirri hugsun að gengið sé út frá því að þeir gefi vinnu sína. Fríða Björk bendir á að Íslendingar setji heldur ekki mikla fjármuni í menntun á há- skólasviði. Í ljósi þessara aðstæðna er rétt að velta því upp hvers vegna það sé mikilvægt að listamenn hljóti menntun sína hér á landi? „Það má alveg eins spyrja af hverju það skipti máli að við búum á Íslandi. Við erum hér í þessu samfélagi af því að okkur finnst það skipta máli í heimsmyndinni. Listin er þáttur í því rétt eins og heilbrigðiskerfið, vegakerfið, vistkerfið og landfræðilega legan uppi við heimskautsbaug. Við gætum sent alla sem vilja mennta sig í list- um til útlanda, en við getum líka sagt öllum að hlusta bara á geisladiska og lagt niður lifandi tónlistarflutning. Það kunna flestir að lesa á ensku, svo það er kannski í einhverjum skilningi óþarfi að skrifa bækur á íslensku – samt vitum við að það er lífsnauðsynlegt. Við getum ekki án þess verið að tjá okkur um sjálf okkur og til- vistina. Svo má ekki gleyma því að við höfum ýmislegt fram að færa og erum vonandi ekki svo sjálf- hverf að við stundum listmenntun eða listsköpun einungis fyrir sjálf okkur. Við höfum heilmiklu að miðla og auðgum heimsmenninguna með því að vera til, rétt eins og aðrir annars staðar. “ Ég velti fyrir mér hvaða sýn rektorinn hafi til íslenskrar menningar og lista. Er eitthvað sem einkennir hana sérstaklega, aðgreinir hana frá listalífi annarra þjóða? „Eitt einkenni er hvað íslensk list er orðin al- þjóðleg, þótt það hljómi eins og þversögn. Og það er bara fínt. Við erum hluti af stærri heild. En það sem einkennir hana helst er kannski þessi vilji til að hefjast handa, frumkrafturinn. Hins vegar skortir okkur oft þrek til þess að fullvinna hugmyndir og taka þær eins langt og hugsanlega væri hægt að fara með þær. Oft er orsökin skortur á fjármunum. Það eru ekki til peningar til að fullvinna hluti eða halda verk- efnum gangandi, of langt seilst til að gera mikið úr litlu. En íslenskir listamenn búa líka yfir hug- rekki – hæfileika til að láta vaða. Hugsanlega tengist það því hvernig fólk hér er alið upp. Það er vant að ganga í mörg störf, að það sé þörf fyrir það. Ungt fólk fær að spreyta sig og það er vettvangur fyrir afraksturinn þótt hann sé óþroskaður. Hér er auðvelt að koma sér á fram- færi á meðan í milljónasamfélagi þarf kannski að vinna árum saman án þess að nokkur taki eftir því. Við sjáum margt á tilraunakenndum stigum sem er jákvætt og skemmtilegt.“ Fríða Björk er gift Hans Jóhannssyni hljóð- færasmið og eiga þau saman tvö börn, Elínu Hansdóttur myndlistarmann og Úlf Hansson tónskáld. Því er ljóst að Fríða Björk er áfram umvafin listum og menningu að loknum vinnu- degi. Líf listamannsins er oft og tíðum ekki auð- velt og þægilegt. Hvaða áhrif skyldi það hafa á æðsta stjórnanda listaháskóla að eiga tvö börn sem bæði eru starfandi listamenn? „Þetta er ein órofin keðja hjá okkur, listir eru partur af heimilislífinu og þannig hefur það alltaf verið. Elín og Úlfur hafa eflaust mótast af okkur Hans í upphafi en það eru hreinar línur að þau móta foreldra sína mikið í dag. Við deilum áhuga okkar, alveg sama hvaða listgrein ber á góma. Listirnar sameina okkur sem jafningja.“Morgunblaðið/Eggert * Eitt einkenni er hvað íslensk list er orðin alþjóðleg,þótt það hljómi eins og þversögn. Og það er bara fínt.Við erum hluti af stærri heild. 24.8. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 47

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.