Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.08.2014, Page 49
24.8. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49
Síðasti sýningardagur Um-
merkja sköpunar í Hafn-
arborg er á morgun, sunnu-
dag. Á sýningunni eru valin
verk úr safneign, en sýningin kynnir
aðföng síðustu tíu ára en verkin eru
unnin á árunum frá 1952–2014.
2
Rakel Pétursdóttir, safna-
fræðingur leiðir gesti um
sýninguna Húsafell Ásgríms í
safni Ásgríms Jónssonar að
Bergstaðastræti 74 í dag kl. 14. Ás-
grímur Jónsson (1876 – 1958) er
einn brautryðjenda íslenskrar mynd-
listar og varð fyrstur íslenskra málara
til að gera myndlistina að aðalstarfi.
4
Fjölbreytt tónlistardagskrá
verður í Ráðhúsi Reykjavíkur í
dag, laugardag, milli kl. 14 og
19.30 í tilefni Menningar-
nætur. Klukkan 17 tekur Dagur B.
Eggertsson borgarstjóri við listaverka-
gjöf eftir Kristínu Gunnlaugs-
dóttur fyrir hönd Reykjavíkurborgar.
5
Blásið verður til haust-
markaðar á Árbæjarsafni á
morgun, sunnudag, kl. 13-16
og verður frítt inn á safnið.
Þátttakendur geta komið með bæði
grænmeti og handverk og selt á
markaðnum. Unnið verður á bað-
stofuloftinu, í smiðjunni og boðið upp
á steiktar lummur í eldhúsinu auk
guðsþjónustu í safnkirkjunni kl. 14.
3
Halldór Björn Runólfsson,
safnstjóri Listasafns Íslands,
leiðir gesti um yfirlitssýningu
Sigurjóns Ólafssonar, Spor
í sandi. Sigurjón var meðal allra
áhrifamestu listamanna Íslands á eft-
irstríðsárunum, en grunninn að list-
sköpun sinni lagði hann í Danmörku á
fjórða og fimmta áratug liðinnar aldar.
MÆLT MEÐ
1
Ég ætlaði að teikna alla orðabókina enþegar ég byrjaði var ég fljótur að áttamig á því að það yrði ævistarf. Ég
ákvað því bara að halda mig við A-ið. Ég var
að vinna hátt upp í tuttugu myndir á dag í
tvö ár. Svo komu náttúrlega einhverjir dagar
þar sem ég gerði ekki neitt. Þetta eru rúm-
lega þrjú þúsund teikningar, þrjú þúsund
orð,“ segir myndlistarmaðurinn Halldór
Ragnarsson, sem gefur um þessar mundir út
verkið ,,A“ á prenti, en hann hyggst þar að
auki gefa verkið út í bók.
Gjörningurinn í forgrunni
„Ég byrjaði að vinna verkið árið 2006. Maður
var orðinn svolítið hugmyndasnauður svo ég
ákvað að grípa bara til íslensku orðabókar-
innar. Verkið sjálft gengur náttúrlega svolítið
út á þolinmæði, að einhver hafi gefið sér tíma
í að gera þetta. Teikningarnar eru eftir allt
saman kannski ekkert aðalatriðið, gjörningur-
inn er í raun í forgrunni. Myndlist mín hefur
einmitt alltaf verið svolítið tengd tímanum og
leiðindum yfir höfuð,“ segir Halldór kíminn.
„Ég er búinn að láta prenta hluta af verk-
inu fyrir mig, svo er stefnan sett á að gefa
þetta út í bók. Ég auglýsi eiginlega bara hér
með eftir nógu klikkuðu forlagi sem væri til í
að leggja í þetta. Vonandi verður þetta komið
á hreint fyrir jól. Þessu myndi svipa til al-
fræðiorðabókar með myndum. Ég hef verið
að skoða myndirnar upp á síðkastið og sumar
þeirra eru svolítið abstrakt,“ segir Halldór.
Myndlistarsýning í haust
Aðspurður kveðst Halldór ekki ætla að færa
sig yfir í næsta bókstaf nú þegar A-inu er
lokið.
„Það eru komin nokkur ár síðan ég kláraði
verkið og mér fannst kominn tími á að þetta
færi aftur í bók, hugmyndin er einmitt
sprottin úr bók. Verkið er líka vel til þess
fallið. Þetta á vonandi eftir að taka sig vel út
á pappír, teikningar við öll íslensk orð sem
eiga upphafstafinn A, hvort sem þau eru
fyrnd eða ekki,“ segir hann. Áhugasamir geta
haft samband við Halldór í gegnum heima-
síðu hans.
„Á heimasíðu minni, hragnarsson.com, er
hægt að hafa samband við mig og nálgast
prent af verkinu,“ segir Halldór, en hann er
auk verksins „A“ með ýmislegt á sinni könnu.
„Maður er alltaf að vinna að einhverju. Ég
verð til að mynda með einkasýningu í
Reykjavík fyrir jól ásamt því að taka þátt í
ýmsum verkefnum; til að mynda í sýningunni
Mucho Grandi sem er hluti af dagskrá Menn-
ingarnætur í ár,“ segir hann að lokum.
MYNDLISTARBÓK Í BÍGERÐ
Teiknaði þrjú þúsund orð
MYNDLISTARMAÐURINN HALLDÓR
RAGNARSSON EYDDI TVEIMUR ÁR-
UM ÆVI SINNAR Í AÐ TÚLKA ÖLL
ÍSLENSK ORÐ SEM BYRJA Á BÓK-
STAFNUM A MEÐ TEIKNINGUM.
Myndlistarmaðurinn Halldór Ragnarsson
hyggst gefa út bók með verkum sínum.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
og uppfullar af skordýrum á sumrin. Það
er ekkert skrýtið að það hafi fært sig
um set, enda er vesturströnd Kanada
miklu byggilegri en slétturnar. Það var
til lítils að fara úr einu harðbýlinu í ann-
að.“
Auk Vesturfara mun Egill áfram
stjórna Kiljunni á RÚV í vetur og verð-
ur sá þáttur með svipuðu sniði og verið
hefur. „Síðan verð ég með einhverja að-
komu að útvarpi, mun hjálpa eitthvað til
á Rás 1. Það er allt orðið svo opið og
skemmtilegt í Efstaleitinu eftir að Magn-
ús Geir [Þórðarson útvarpsstjóri] kom og
flæði milli útvarps og sjónvarps að
aukast. Það var vel til fundið að taka
niður skilrúmin.“
Egill Helgason sjónvarpsmaður segir rækt Vestur-Íslendinganna við bókmenntir og menningu hafa komið sér mest á óvart.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Egill ræðir við Óla Narfason bónda á Víðivöllum.
* Taugin er römmog áhuginnmiklu meiri en ég
gerði mér í hugarlund.
Ísland lifir áfram
þarna fyrir vestan.