Morgunblaðið - 07.06.2014, Síða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2014
Félagar úr Thorvaldsensfélaginu
afhentu í vikunni sumarbúðunum í
Reykjadal peningagjöf að upphæð
1,5 milljónir króna til styrktar
starfseminni. Peningarnir eru af-
rakstur sölu jólafrímerkis félags-
ins en það var selt í hundraðasta
sinn fyrir síðustu jól.
Sumarstarf Reykjadals, sem
rekinn er af Styrktarfélagi lam-
aðra og fatlaðra, hófst í sl. viku og
mun standa fram í ágúst. Árlega
dvelja þar um 250 börn og ung-
menni sem geta ekki vegna fötl-
unar sinnar sótt aðrar sumar-
búðir.
Fram kemur í tilkynningu að
Thorvaldsensfélagið hafi gefið út
jólamerki fyrir hver jól frá árinu
1913. Merkin eru myndskreytt af
mörgum af þekktustu listamönn-
um þjóðarinnar en ágóðann hefur
félagið gefið til góðgerðarmála í
þágu barna.
Í Reykjadal Félagar úr Thorvaldsensfélaginu afhentu fjárstyrkinn.
Styrktu Reykjadal
Afrakstur sölu á jólamerki Thor-
valdsensfélagsins í fyrra nam 1,5 millj.
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Nokkur dæmi eru um endurtalningu
atkvæða í sveitarstjórnarkosningum
hér á landi frá fyrri árum. Sú um-
fangsmesta var í hinum sögulegu
borgarstjórnarkosningunum í
Reykjavík vorið 1978. Þá voru öll at-
kvæði, önnur en þau sem kjörstjórn
hafði sérstaklega úrskurðað um,
endurtalin. Samtals voru þetta um
47 þúsund atkvæði.
Yfirstjórnin sagði að ástæðan fyrir
endurtalningunni væri níu atkvæða
munur sem komið hefði í ljós á af-
hentum kjörseðlum og nokkur brögð
hefðu verið að því við talninguna að
kjörseðlar hefðu flokkast ranglega.
Geysispennandi kosninganótt
Vera má að það hafi einnig haft
áhrif að tiltölulega fá atkvæði réðu
því að Sjálfstæðisflokkurinn missti
að þessu sinni hálfrar aldar meiri-
hluta sinn í borgarstjórn. Það var þó
ekki flokkurinn sem óskaði eftir end-
urtalningunni, heldur var það
ákvörðun yfirstjórnar.
Talningin í borgarstjórnarkosn-
ingum 28. maí 1978 var geysispenn-
andi. Alveg fram undir morgun leit
út fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn
héldi meirihluta sínum. Svo virtist þó
sem á þriðja hundrað atkvæða vant-
aði, en þau fundust óvænt í dögun
meðal tómra kjörkassa. Sigurvegari
kosninganna var Alþýðubandalagið
sem fékk 13.844 atkvæði eða 29,8%
og fimm borgarfulltrúa. Sjálfstæð-
isflokkurinn fékk 22.100 atkvæði eða
47,4%. Alþýðuflokkurinn fékk 6.250
atkvæði eða 13,4% og Framsókn-
arflokkurinn 4.308 eða 9,4%.
Meirihlutinn féll
Morgunblaðið greindi frá úrslit-
unum með „styrjaldarletri“ á forsíðu
þriðjudaginn 30. maí: „Vinstri stjórn
í Reykjavík.“ Sjálfstæðismönnum
var enda mjög brugðið. Þeir höfðu
ekki átt von á því að tapa meirihlut-
anum og þorri kjósenda hafði lagst
til hvílu eftir kosninganóttina sann-
færður um að meirihlutinn hefði
haldið velli.
Engar breytingar urðu á full-
trúafjölda flokkanna við endurtaln-
inguna. En svolítill munur reyndist á
upphaflegum lokatölum og endur-
talningunni. Alþýðuflokkurinn tap-
aði ellefu atkvæðum og Sjálfstæð-
isflokkurinn níu, en
Framsóknarflokkurinn bætti við sig
einu og Alþýðubandalagið átján at-
kvæðum.
Ekkert yfirlit til
Ekki er kunnugt um að til sé nein
samantekt á því hvenær endurtalið
hefur verið í kosningum hér á landi.
Leit í gömlum blöðum á vefnum
timarit.is leiðir hins vegar í ljós að
nokkur dæmi eru um slíkt frá fyrri
árum. Ekki eru fyrir hendi skýrar
reglur um það hvenær rétt sé að end-
urtelja. Yfirleitt hafa kjörstjórnir
látið framboðslista eiga frumkvæði
að því að óska eftir endurtalningu, en
það var þó ekki í kosningunum til
borgarstjórnar Reykjavíkur 1978.
Umfangsmesta endurtalningin var 1978
Yfirkjörstjórn tók ákvörðun um að endurtelja, alls 47
þúsund atkvæði Breytti engu um fulltrúafjölda flokkanna
Endurtalið Frétt Morgunblaðsins 30. maí 1978 um endurtalningu atkvæða í
borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík. Talið var í Austurbæjarskóla.
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911
www.facebook.com/spennandi - www.spennandi.com
Opið: Mán. - fim: 12 - 18 og fös. 12-16
3322 & Innate - frönsk hönnun vor 2014
Eldur kviknaði í vélarrúmi í línu-
veiðibát sem var staddur út af Að-
al-vík um kl. 19 í gærkvöldi. Þrír
menn voru um borð í bátnum, sem
var á landleið, en samkvæmt upp-
lýs-ingum frá Slysavarnafélaginu
Landsbjörg tókst að slökkva eldinn
og var báturinn dreginn til Bolung-
arvíkur. Engan sakaði um borð.
Björgunarskip og hrað-
skreiður bátur sendir frá Bol-
ungarvík
Björgunarskip frá Bolungarvík
og frá Ísafirði voru kölluð út auk
nærstaddra skipa og báta sam-
kvæmt upplýsingum frá Lands-
björg.
Einnig var sendur hraðskreiður
bátur úr Bolungarvík með dælur,
björgunarsveitarmenn og slökkvi-
liðsmenn, en útkallið var á fyrsta
forgangi.
Í tilkynningu sem Landsbjörg
sendi frá sér segir, að björgunar-
skipin hafi verið farin úr höfn um
15 mínútum eftir að kallið kom.
Skipverjarnir þrír sáu í mynda-
vélum þegar vélarrúmið fylltist af
reyk. Lokuðu þeir þá vélarrúminu
og ræstu sjálfvirkan slökkvibúnað.
Stuttu síðar var nærstaddur bátur
kominn á staðinn og tók línuveiði-
bátinn í tog og sigldi með hann til
hafnar í Bolungarvík í fylgd björg-
unarskipanna.
Búist var við skipunum til hafnar
um klukkan 21:30 í gærkvöldi.
Eldur kom upp í
línuveiðibát
Þrír um borð og sakaði þá ekki