Morgunblaðið - 07.06.2014, Síða 23

Morgunblaðið - 07.06.2014, Síða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2014 Spáð í spilin Strákarnir að skoða fótboltamyndir af leikmönnum á Heimsmeistaramótinu í fótbolta í Brasilíu. Eggert Í Kastljósi miðviku- daginn 28. maí sl. var fjallað um starfshætti Alcoa á Íslandi. Alvar- legar ásakanir voru bornar á fyrirtækið, sem margar hverjar voru byggðar á röng- um forsendum. For- svarsmönnum Alcoa var ekki boðið í viðtal vegna umfjöllunar- innar og gafst því ekki kostur á að svara þeim ásökunum sem á það voru bornar í síðasta Kastljósþætti vetrarins. Álver Alcoa Fjarðaáls á Reyð- arfirði var reist á árunum 2003-2007. Upphafleg fjárfesting nam um 220 milljörðum króna að núvirði, og frá því að álverið hóf starfsemi árið 2007 hefur verið fjárfest enn frekar í rekstrinum, fyrir um 13 milljarða króna. Fjárfestingarsamningur Alcoa og ríkisstjórnar Íslands frá 2003 var ein af forsendum þess að Alcoa réðist í svo viðamikið verkefni á Íslandi. Eðli fjárfestingarsamningsins er að treysta grundvöll fjárfestingarinnar til lengri tíma, til hagsbóta fyrir báða samningsaðila, það er, að rekstrarumhverfi fyrirtækisins sé skýrt en jafnframt að fyrirtækið leggi sitt af mörkum til uppbygg- ingar í samfélaginu. Þessi markmið hafa gengið eftir og hefur fyrirtækið aflað þjóðarbúinu tæpra 200 millj- arða króna frá árinu 2008, þar af um 33 milljarða á síðasta ári, í formi skatta og opinberra gjalda, launa, innkaupa frá innlendum birgjum á vöru og þjónustu auk samfélags- styrkja. Skattar og op- inber gjöld námu 1,5 milljörðum króna 2013 og frá 2007 hefur Alcoa greitt tæpa níu millj- arða í skatta hér á landi. Það er hluti af eðlilegu ferli þegar er- lendir aðilar fjárfesta háar upphæðir til langs tíma að gera um það fjárfestingarsamning, enda hefur þeirri veg- ferð verið haldið áfram og nýir fjárfesting- arsamningar verið undirritaðir á Íslandi bæði á þessu og síðasta ári. Allt uppi á borðum Ljóst var frá upphafi að fjár- magna þyrfti þá dýru framkvæmd sem bygging Fjarðaáls var. Í fjár- festingarsamningnum sem stjórn- völd og Alcoa gerðu með sér árið 2003 er heimild Alcoa á Íslandi til lántöku frá móðurfélaginu skýr. Samningurinn er opinbert skjal og innihald hans á ekki að koma þeim sem kynna sér það á óvart. Samn- ingurinn var samþykktur á Alþingi og ekkert ófyrirséð hefur gerst við framkvæmd hans eða fjármögnun á Íslandi. Alcoa hefur virt samninginn í einu og öllu. Fjármögnun Alcoa Bygging Fjarðaáls og rekstur fyrstu árin voru fjármögnuð með lánsfé frá móðurfélagi þess. Fyr- irtækið er enn skuldsett, en auk upphaflegrar fjárfestingar hefur fé- lagið fjármagnað viðbótarfjárfest- ingar eftir að byggingu álversins lauk og taprekstur fyrri ára. Alcoa á Íslandi nýtur hagstæðra lánakjara í gegnum móðurfélag sitt. Vextir lán- anna eru markaðsvextir, þeir byggja á millibankavöxtum, LIBOR, að við- bættu álagi sem óháður aðili, Deutsche Bank, reiknar og gefur út fyrir hvern ársfjórðung. Ákvörðun vaxtanna er í samræmi við alþjóð- legar reglur OECD. Í lok árs 2012 námu vextirnir 2,38% en voru að meðaltali um 3,5% það ár. Árin 2010 og 2011 voru vextirnir innan við 3%. Ekki er óalgengt að íslensk fyr- irtæki fjármagni sig á vöxtum sem eru nærri 7%. Af þessu má sjá að Al- coa Fjarðaál flytur ekki fjármagn til móðurfélagsins í gegnum óeðlilega háar vaxtagreiðslur. Þvert á móti eru kjörin afar hagstæð, gegnsæ og ákvörðuð í samræmi við við- urkenndar alþjóðlegar reglur. Hagkvæmni Fjarðaáls Álver Alcoa Fjarðaáls á Reyð- arfirði er í hópi tæknilega fullkomn- ustu álvera heims og reksturinn er kostnaðarlega hagkvæmur, þ.e. kostnaður við framleiðslu á hverju tonni af áli er mjög samkeppn- ishæfur. Þrátt fyrir þetta gerir hár fjárfestingarkostnaður og afkoma undir upphaflegum væntingum það að verkum að fyrirtækið hefur ekki skilað hagnaði undanfarin ár. Botninum náð Á nýlegum ársfundi Samáls kom fram í máli Kelly Driscoll frá grein- ingarfyrirtækinu CRU að hann teldi að botninum væri náð í áliðnaði og vænta mætti hækkandi álverðs á næstu árum samfara vaxandi eft- irspurn og minnkandi álbirgðum. Samkvæmt spá CRU mun álverð, sem í dag er um 1.800 dalir á tonnið, ná 2.200 dölum árið 2016. Með bættri afkomu munu skapast tæki- færi til greiðslu tekjuskatts til lengri tíma. Uppsafnað tap fyrri ára, sem einnig hefur áhrif á tekjuskatts- greiðslur, fyrnist á tíu árum, en í til- viki Fjarðaáls var það mest á upp- hafsárunum, til og með árinu 2007. Með hæstu tekjuskatts- greiðendunum Fyrirtæki í áliðnaði eru á meðal hæstu tekjuskattsgreiðenda á Ís- landi. Sambærileg félög hafa farið í gegnum sams konar ferli og Alcoa á Íslandi eftir mjög kostnaðarsamar fjárfestingar. Alcoa tjaldar til langs tíma á Íslandi og líkt og önnur fyrir- tæki sem starfrækt hafa verið til fjölda ára mun Alcoa minnka sínar skuldir og lækka afskriftir. Með batnandi afkomu mun fyrirtækið væntanlega skipa sér ofarlega á lista tekjuskattsgreiðenda á Íslandi þeg- ar fram líða stundir, að auki við það mikla framlag sem kemur frá fyrir- tækinu nú þegar eftir aðeins fárra ára starfsemi. Ómálefnaleg umræða Umfjöllun Kastljóssins hinn 28. maí sl. um starfsemi Alcoa á Íslandi þótti undirrituðum vera ómálefnaleg auk þess sem það kom á óvart að þingmaður virtist ekki hafa kynnt sér fjárfestingarsamninginn sem Al- þingi samþykkti. Það er óviðunandi að þingmaður haldi því fram op- inberlega að fyrirtæki sem virðir í einu og öllu gerðan samning stundi bókhaldsbrellur og að stjórnendur þess séu siðlausir. Dylgjur fyrrver- andi ríkisskattsstjóra, um að fyrir- tækið gæti flutt fjármuni úr landi til móðurfélagsins án þess að það kæmi fram í bókum þess til að forðast skattgreiðslur, voru ekki síður ómál- efnalegar. Ársreikningar Alcoa á Ís- landi og Fjarðaáls eru endurskoð- aðir og áritaðir. Þeir eru aðgengilegir og í þeim koma fram allar fjármagnsfærslur til og frá fé- laginu. Ábyrgð og reglufylgni Alcoa er gildisdrifið fyrirtæki og leggur mikla áherslu á samfélags- lega ábyrgð og reglufylgni. Það hegðar sér ekki með þeim hætti sem lýst var í Kastljósi. Við erum stolt af framlagi fyrirtækisins til íslensks samfélags, en tekjuskattur er ein- ungis einn liður í því framlagi. Sam- kvæmt skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands frá 2012 stendur ís- lenskur áliðnaður undir 25% af heildarútflutningi þjóðarinnar og skilar um 7% til landsframleiðsl- unnar, fyrir utan afleidd áhrif. Alcoa á Íslandi hefur mikil og jákvæð áhrif á íslenskan efnahag með öflun gjald- eyristekna, innkaupum á innlendri vöru og þjónustu, greiðslu skatta og opinberra gjalda, sköpun 900 vel launaðra starfa og almennum og víð- tækum stuðningi við samfélagið á Austurlandi. Eftir Magnús Þór Ásmundsson » Það er óviðunandi að þingmaður haldi því fram opinberlega að fyr- irtæki sem virðir í einu og öllu gerðan samning stundi bókhaldsbrellur og að stjórnendur þess séu siðlausir. Magnús Þór Ásmundsson Höfundur er forstjóri Alcoa á Íslandi. Það munar um minna Fyrrverandi formað- ur Samfylkingar hrökk við og talaði nokkuð stórt um siðareglur og siðferði, þegar fréttist, að tveir ráðherrar ætl- uðu að vera viðstaddir opnun Norðurár. Þótti mörgum lítið tilefni, en sumir fjölmiðlar reyndu að gera sér mat úr því með litlum árangri. Ýmislegt hefur verið rætt og ritað um siðareglur og siðferði í sambandi við styrki til stjórn- málaflokka og stjórnmálamanna í formi fjárstyrkja og gjafa, jafnvel veisluhalda og vináttuheimboða. Ekki eru margir, sem hafa hreinan skjöld í þeim efnum, og flestir hafa misst sjón- ar á siðferði, þegar á hefur reynt í þessum efnum, jafnvel þjóðhöfðingjar. Í umfjöllun fjölmiðla hefur ótrúlega lítið verið fjallað um þetta. Á sínum tíma var forseta lýðveldisins hlíft við umfjöllun um það, að hann beitti um- deildu neitunarvaldi í fjölmiðlamálinu til að þjóna útrásarvíkingum Baugs- veldisins, en þeir voru þá orðnir vinir Samfylkingarinnar. Samfylkingin var þá gengin á mála hjá Baugsveldinu og var líka hlíft. Einn af helstu leiðtogum þess flokks, Össur Skarphéðinsson, hafði með réttu a.m.k. tvisvar skorað á forsætis- ráðherra, Davíð Oddsson, að beita sér fyrir því, að ríkisstjórn og Alþingi kæmu böndum á samþjöppun fjöl- miðlavaldsins í höndum Baugsveld- isins, og var sannarlega full ástæða til þess. Þegar Alþingi fjallaði um frum- varp að lögum þar að lútandi eftir vandlegan undirbúning brá svo við, að forysta Samfylkingar sneri við blaðinu. Nú hafði runnið upp fyrir mönnum á þeim bæ, að vinátta og fjár- magn eins helsta fjárglæframanns í bankakerfinu var í húfi. Þá beitti Sam- fylkingin forseta lýðveldisins þrýst- ingi, með skírskotun til dekurs hans við vinstri öflin á Íslandi, og fékk hann til að beita því neitunarvaldi, sem hann hafði fengið í arf frá einveldiskonungum dönskum; valdi, sem engum af fyrirrenn- urum hans hafði dottið í hug að beita og nauðga þannig vilja Al- þingis og þjóðarinnar. Tilgangurinn helgaði meðalið. Allt var þetta gert til að Samfylk- ingin yrði ekki af vináttu og stuðningi fjárglæframannsins, sem þá réð ríkj- um í 365 miðlum og a.m.k. einum af bönkum landsins. Þetta er rakið á mjög skýran hátt í bók Björns Bjarna- sonar, Rosabaugur yfir Íslandi, og ætti að vera skyldulesning allra, sem vilja vita, hvað gekk á, þegar stuðn- ingur við Samfylkinguna var sem mestur úr herbúðum þeirra manna, sem einir bera ábyrgð á bankahruninu á Íslandi. Þrátt fyrir þetta og þrátt fyrir lítils- virðingu fyrir kjósendum í öllu, sem máli skiptir, skal nú Samfylkingin leidd til valda í Reykjavík. Hún verður þá leidd til valda í samvinnu við flokk, sem varð til vegna metorðagirndar formanns þess flokks. Eins og allt er í pottinn búið er því eðlilegt, að leiðtogi Samfylkingarinnar í Reykjavík hafi tvær siðferðishækjur að ganga við sem borgarstjóri. Siðferði Samfylkingar Eftir Axel Kristjánsson » Þegar Alþingi fjallaði um frumvarp að lögum þar að lútandi eftir vandlegan und- irbúning brá svo við, að forysta Samfylkingar sneri við blaðinu. Axel Kristjánsson Höfundur er lögmaður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.