Morgunblaðið - 07.06.2014, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 07.06.2014, Qupperneq 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2014 „Ó Guð vors lands“, það hlýtur að verða næst á dagskrá mennta- elítunnar að banna þjóðsönginn, það má varla mismuna með þessum eina þjóðsöng. Held að há- skólar landsins þurfi að íhuga hvers konar menntun þeir ástunda og út- skrifa. Flest virðist þið mennta ykkur frá lífinu og veruleikanum. Það mætti alveg velja eftir gáfna- prófi til inngöngu í háskólana. Það er orðið svo, að ég má ekki segjast elska mitt land og mína þjóð, og vilja því hið besta og vernda það. Þá er ég orðin rasisti, fasisti, þjóðernishyggjuöfgapúki, og svo er notað fína orðið „populismi“. Þið sem talið svona vitið ekki hvað þið eigið, landið okkar, og það ber að varast að kasta þessu fjöreggi fram og til baka í bjánahætti. Unga fólk, þið sem haldið að þið séuð svo miklir heimsborgarar, þið eigið að vita að grunnurinn að heimsborgaranum er heima fyrir. Elskið og virðið fyrst það sem þar er, og síðan heiminn. Viðtal við unga kjósendur í RÚV á kosn- ingadagskvöldi, tvær konur og einn karl. Hann hafði þó skoðanir en önn- ur daman sagði að „það gengi nú ekki að kjósa með móðurlífinu“, hlýtur að vera femínisti, en hin „o, þetta er svo leiðinlegt, það verður að poppa þetta upp“. Einmitt, gera stjórnmál að leik- skólaleik svo að þið náið að mynda ykkur skoðun. Það er víst í tísku að vera með kjánagang, en bara sorglegt. Reykvíkingar kusu Dag B. og hann mun sýna ykkur einræðistilburði. Með sér velur hann Björn B. og Halldór pírata, sem báðir eru úti á túni, en svo kemur rós Reykjavíkur, sjálf Sól- ey Tómasdóttir, sem að sjálfsögðu er ekki stjórntæk vegna fyrirlitn- ingar og hroka sem hún sýnir Framsókn. Ekki eru rædd hennar kosningamál, allir á jötuna, ókeyp- is til skólamála, og skyndiáhyggj- ur af fátækum börnum. Hvar hef- ur hún verið síðustu ár? Að konur VG skyldu koma því á að brjóta mannréttindi nýfæddra barna með því að setja þau á stofnun strax að loknu fæðingarorlofi, það er til skammar. Hvar er tengingin við börnin sem þið gasprið um á há- tíðisdögum? Fyrirlitning VG og Samfylk- ingar á samferðafólki sínu í stjórnmálunum á sér engar máls- bætur því enn er mál- og skoð- anafrelsi og ef þið getið ekki virt hvert annað finnið ykkur þá aðra vinnu. Ekki smita þjóðfélagið af þessari illsku. Jóhanna Sigurð- ardóttir talar um siðferði Bjarna og Sigmundar, en sýndu nú aðgát, kona. Rifjaðu upp með sjálfri þér þinn stjórnmálaferil. VG og Samfylking fara mikinn varðandi það að skilja ekki eftir skuldir til komandi kyn- slóða, en þetta sama fólk ætlar komandi kynslóðum að kljást við íslam. Skylda stjórnmálafólks er að vernda land og þjóð, en ekki að sýna af sér bjánahátt, – og hugsið til framtíðar. Kannski mun menntaelítan í framtíðinni syngja „Ég vil elska mitt land“ þegar hún hefur misst það. Og, já, Reykjavík er líka mín höfuðborg. STEFANÍA JÓNASDÓTTIR, Sauðárkróki. Veruleikafirring Frá Stefaníu Jónasdóttur Stefanía Jónasdóttir Það var vakin at- hygli mín á því að það er ekki hægt að gera kröfu í dóms- máli erlendis í ís- lenskum krónum. Af hverju ekki? Jú vegna þess að ís- lenska krónan hefur ekkert skráð verð- mæti – hún er ekki til. Þess vegna skrif- aði ég seðlabankastjóra og spurð- ist fyrir um hvað ylli að krónan væri hvergi skráð – nema á Ís- landi. Eftir fjöldamarga mánuði barst þetta svar: „Sæll Pétur. Fyrst af öllu vill Seðlabanki Ís- lands biðjast velvirðingar á því hve seint svör berast þér. Það er ekki á færi Seðlabanka Íslands að bæta úr þessu. Á Norðurlöndunum er sá háttur hafður á að gengi gjald- miðla er skráð í gegnum sameig- inlega skráningu Evrópska seðla- bankans (ECB). ECB hefur hins vegar ekki viljað skrá ís- lensku krónuna þar sem hún er ekki skiptanlegur gjaldmiðill er- lendis. Seðlabanki Íslands hefur verið í sambandi við ECB með það í huga að fá þessu breytt en ekki haft erindi sem erfiði. Virðingarfyllst, Seðlabanki Íslands.“ Ja, ég er steinhissa, ég hélt að ég byggi í alvörulandi. Hvað finnst þér, lesandi góður, er glóra í gjald- miðli okkar eða fyrir hvern er ís- lenska krónan? Er íslenska krónan einskis virði? Eftir Pétur Einarsson Pétur Einarsson »ECB hefur hins vegar ekki viljað skrá íslensku krón- una þar sem hún er ekki skiptanlegur gjaldmiðill er- lendis. Höfundur er lögfræðingur. Bréf til blaðsins Um leið og ég, harður stuðnings- maður Derby County, óska QPR velfarnaðar í úrvalsdeildinni ensku, er ég enn hugsi yfir því hvað knatt- spyrnan getur stundum verið grimm og ósann- gjörn. Eins og ágætur þjálfari Derby, Steve McClaren, sagði eftir leikinn: „Þetta var grimmasti leikur sögunnar.“ En ekki meira um það í bili, svona er knattspyrnan. Ungur leikmaður, Charles Frederick, „Charlie George“, vakti athygli mína á ár- unum kringum 1968-69, þá Arsen- al-leikmaður. Ég hreifst svo af áræði og snilld þessa drengs að þegar hann fór yfir til Derby County fylgdi ég honum sem stuðningsmaður. Síðan hef ég haldið með þessum frábæra klúbbi, „Hrútunum“, og fylgt þeim í gegnum sætt og súrt alla tíð síð- an. Ég beið nokkuð lengi eftir því að sjá leik með klúbbnum mínum, Charlie karlinn var löngu hættur þar þegar að því kom. Einn afa- strákurinn minn er harður Man- chester United (MUN)-aðdáandi og ég fór með hann á leik til Man- chester. Leikurinn var á „Gömlu tröð“, heimavelli MUN. MUN- menn voru þegar orðnir Eng- landsmeistarar er þessi leikur fór fram. Hann var í lokaumferðinni 5. maí 2001 við Derby County sem var í fallhættu. Ekki skemmdi það fyrir að Skagamaðurinn Þórður Guðjónsson kom inn á í seinni hálfleik sem leikmaður Derby. Mínir menn stóðu sig, vel skipu- lagðir og gáfu hvergi eftir og unnu Englandsmeistarana á þeirra heimavelli 1-0. Við félagarnir sát- um aftan við mark MUN, frekar ofarlega. Ég gleymi ekki augna- blikinu þegar Malcholm Christie negldi boltann í netmöskvana svo vældi vel í. Barthez, markvörður MUN, leit ekki vel út. Hann átti ekki möguleika. Markið kom seint í leiknum. Ég áttaði mig ekki strax á því þegar MUN-fylgjend- urnir fóru að syngja saman hátt í kór „City down - City down - City down“. Strákurinn hnippti í mig og sagði, flott afi, City er fallið en Derby er áfram í úrvalsdeildinni. Þessi sigur á Englandsmeist- urunum á þeirra heimavelli tryggði Derby áfram sæti í úrvals- deildinni en nágrannarnir, Mans- hester City, féllu niður. Að leiks- lokum horfðum við félagarnir á er meistararnir voru krýndir og Sir Ferguson, þjálfari þeirra, tók þátt í athöfninni með tvö afabörnin sín sér við hlið. Mögnuð stund og meiriháttar show. Mér er minn- isstætt eftir leikinn er leikmenn Derby keyrðu burt af svæðinu á rútu sinni, þá stóðu stuðnings- menn MUN heiðursvörð meðfram akstursleiðinni og klöppuðu og veifuðu ákaft og þökkuðu „Hrút- unum“ leikinn. Mér fannst á þeirri stundu að þeir gætu verið að veifa til mín. Manshester-borg var jú sannarlega þeirra. ÞORVALDUR JÓHANNSSON, stuðningsmaður Derby County og eldri borgari, Seyðisfirði Sá Derby County vinna MUN á Old Trafford Frá Þorvaldi Jóhannssyni Þorvaldur Jóhannsson Móttaka að- sendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsend- ar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðs- ins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Að senda grein Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem inn- sendikerfið er notað þarf notand- inn að nýskrá sig inn í kerfið. Ít- arlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn. Nánari upplýsingar veitir starfs- fólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. Heimili og skólar gera sitt besta, en eng- ilsaxneskt áreiti er mikið. Háskóli Íslands er eitt helsta vígi tung- unnar – eða hvað? Mig langar til að segja tvær stuttar sög- ur, sem ég held að eigi erindi. Fyrir nokkrum ár- um bað vinkona mín, sem kennir fornleifafræði við HÍ, mig að spjalla við nemendur sína um heimildir 16. aldar um klaustur. Ég tók vel í þetta, en þá kom babb í bát- inn. Háskóli Íslands er í alþjóðlegri samkeppni um stúdenta og kennsla í fornleifafræði fer fram á ensku. Þetta var þeim mun bagalegra, þar sem stuðningsheimildir um þetta eru efni á íslensku – íslensku 15. og 16. aldar. Nemendur í áfanganum voru tíu og af þeim voru tveir erlendir. Hvernig þeir áttu að skilja þessa fróðlegu texta var mér hulin ráðgáta – sem og hvernig hægt er að standa að kennslu í þessum fræðum án þess að geta lesið íslenska texta. Í þessu fagi var ís- lenskan sýnilega á und- anhaldi. Hin sagan er sú að ég var beðin um að þýða tæknilegan texta af þýsku yfir á íslensku. Textinn var í bæklingi, sem kom að notum við vinnu á bifreiðaverk- stæðum. Verkefnið var nokkuð snúið, en tókst engu að síður. Forstjóri fyrirtæk- isins, sem gekkst fyrir að gefa út þennan bækling á íslensku, hringdi í mig og þakkaði mér fyrir þetta og sagði við það tilefni eftirminnilega setningu: „Það var gott að þú gast komið þessu yfir á góða íslensku, því strákarnir á verkstæðunum skilja ekki annað mál.“ Draumar ársins 2007 rættust ekki. Ísland verður aldrei fjármálamiðstöð á heimsmælikvarða. Til þess erum við of fá og hagkerfið of lítið. Háskóli Ís- lands verður af sömu ástæðum aldrei í hópi 100 bestu háskóla í heimi. Er þá ekki of mikið að fórna íslenskunni sem kennslumáli í húmanískum fræð- um í þessu virðulega vígi tungu og mennta? Eru menn þarna ekki að elt- ast við alþjóðlega tálsýn? Það er ekki rétt að skilja strákana á verkstæðunum eina eftir með að gera kröfu til að íslenskan sé aðlöguð að tæknivæddum heimi. Íslenskir skattgreiðendur, sem standa undir rekstri háskólans, eiga rétt á því að stofnunin sinni af samviskusemi tungumálinu, sem er enn sameign okkar allra, hvort sem við vinnum á skrifstofum, verkstæðum, togurum eða traktorum. Og gott er að hafa í huga hið fornkveðna: Hollur er heimafenginn baggi. Hvert stefnir? Eftir dr. Vilborgu Auði Ísleifsdóttur Bickel Vilborg Auður Ísleifs- dóttir Bickel Bickel »Eins og margir aðrir Íslendingar er ég nokkuð toginleit yfir þróun okkar ástkæra ylhýra máls. Höfundur er sagnfræðingur. Svangur maður er auðmjúkur, hlýðinn og ljúfur í taumi. Þessi staðreynd var fram að síðustu kosn- ingum stýritæki stjórnenda þessa lands. Hungrið og fá- tæktin hefur ásamt lyginni verið það afl sem leitt hefur alþýð- una til verka og loforð um eitthvað betra, sem fyrir fram hefur verið ákveðið að svíkja, hafa verið hvatinn í bar- áttu fólksins við vindinn. Mahatma Gandhi sagði: „Fá- tæktin er versta birtingarmynd þrælahaldsins.“ Ekki er hægt að orða betur þennan hræðilega sann- leika, né útskýra. Þegar Íslend- ingar tóku við versluninni af Dön- um varð engin breyting á eðli hennar, og engir peningar fóru í umferð meðal almennings. Það varð ekki fyrr en með síldinni að farið var að greiða laun í peningum í stað inneignarreiknings. Það kostaði hundrað ára einokunarverslun áður en yfir lauk, það er að segja ef því er lokið. Í fimmtíu ár hef ég fylgst með verkalýðs- hreyfingunni „berj- ast“ fyrir hækkun lægstu launa. Aldrei verður sagt að sigur hafi unnist, en stóru orðin hefur ekki vant- að og loforðin til fá- tæklinganna, sem nú eru tíundi hluti þjóð- arinnar, eru enn hástemmd og verða um framtíð eina næringin sem fólkið og verkalýðshreyfingin nærast á. Leiðtogarnir vita það öll- um betur að ef kjörin batna og fólkið fær málungi matar rýrna völd þeirra í réttu hlutfalli. Það kom því úr hörðustu átt þeg- ar hundruðum milljarða hafði verið varið til lækkunar skulda gjald- þrota fjárfestingarfélaga að ný rík- isstjórn ákvað að leiðrétta hlut al- mennings vegna hækkunar lána, sem varð vegna gengisbreytingar í bankakreppunni samfara launa- lækkun. Vinstriöflin gjörsamlega trylltust og lokin fuku af öskutunn- unum. Átti nú að fara að gefa fólk- inu að éta? Átti að leyfa fólki sem ekkert kann með peninga að fara að verða bjargálna? Þvílík svívirða! Hvernig á svo að stýra þessum lýð? Fólkið í þessu landi valdi sér stefnu í síðustu kosningum. Það felldi þáverandi stjórnarflokka frá völdum og hafnaði því að aðeins fjármálafyrirtæki ættu lífsvon í þessu landi. Vinstriflokkarnir neita að hlíta þessum úrskurði fólksins, og öllum þeim skít sem kringum þá er, og hann virðist vera í töluverð- um mæli, er nú kastað á þá sem þjóðin kaus fyrir ári . Þeir vita sem er að fólk sem á fyrir mat lætur ekki vel í taumi, jafnvel þótt kjaft- mélin séu með göddum. Fátæktin og lygin Eftir Kristján Hall » Vinstriflokkarnir neita að hlíta þess- um úrskurði fólksins. Kristján Hall Höfundur er eftirlaunaþegi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.