Morgunblaðið - 07.06.2014, Page 36

Morgunblaðið - 07.06.2014, Page 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2014 Ármúli 32 | 108 Reykjavík | Sími 568 1888 | www.parketoggolf.is Brooklyn Pine Stærð: 8x243x2200mm Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þótt þú sinnir nú mikilvægu ábyrgðar- starfi er óþarfi að taka sjálfa(n) sig of hátíð- lega. Skrifaðu niður hugmyndir þínar en bíddu með ákvarðanatöku til morguns. 20. apríl - 20. maí  Naut Það er ekki nóg að hafa svörin á reiðum höndum ef maður getur ekki unnið rétt úr þeim. Félagi þinn kemur með tillögur. Allir samningar byggjast fyrst og fremst á mála- miðlunum. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú laðar fram það besta í öðrum með því að hrósa og uppörva. Farðu þér bara eilítið hægar og leyfðu öðrum að njóta sín líka. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú getur mætt hvaða áskorun sem er ef þú nýtir hæfileika þína. Notaðu tækifærið til að rifja upp gamlar minningar. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú munt sjá að misjafn sauður er í mörgu fé. Gakktu því beint til verks og gerðu hreint fyrir þínum dyrum. Gaumgæfðu alla möguleika og reyndu að forðast alla óþarfa áhættu. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Vertu ákveðin(n) og fastur/föst fyrir þegar kemur að samningagerð. Eyddu tíma í félagsskap einhvers af yngri kynslóðinni og þú færð forsmekk af paradís. 23. sept. - 22. okt.  Vog Ekki reyna að koma böndum á hugar- starfsemina í dag. Reyndu að sætta þig bæði við hið góða og slæma í aðstæðum þínum og virtu alla sem hlut eiga að máli. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Ekki takast eitthvað á hendur bara af því að það er áhugavert. Enginn að- hyllist þann sem eys svívirðingum á báða bóga. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Hlutir kunna oft að hverfa fyrirvaralaust svo þú skalt hafa auga á þeim sem þér er sárt um. Lífið er eins og listin og betra að leiða en stýra. 22. des. - 19. janúar Steingeit Líklega er farsælast að þú vinnir í einrúmi í dag. Sérstaklega ef þér finnst eins og aðrir séu fyrir þér. Þetta líður hjá. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Notaðu tímann til þess að hugsa um vináttuna. Samræður þínar við yfirmenn þína og aðra yfirboðara geta komið skemmti- lega á óvart. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það getur reynst nauðsynlegt að leita víða til þess að finna sannleikann og þá kann margt miður fallegt að koma í ljós. Sýndu þolinmæði og hugsaðu ekki of mikið um þetta. Í síðustu viku var gátan þessi eftirPál í Hlíð: Hann var pabba orfi á, oní jörðu rekinn sá. Neðst á bátnum aftast er, oft á göngu sárna fer. Hér kemur lausn Hörpu í Hjarð- arfelli: Ég tók í hæla tvo á orfi, tjaldhælana rak á kaf. Á siglutrésins hæl ég horfi. Hælsæri fæ göngu af. Helgi R. Einarsson leysti gátuna með þeirri athugasemd að eftirfar- andi vísa hefði orðið til yfir kosn- ingasjónvarpinu: Hællinn er á orfı́ með ljá, oft má hæl í jörðu sjá, hæll er kjölnum aftast á, ýmsa hæla göngur hrjá. Og enn kemur hér gáta eftir Pál í Hlíð: Ég giftur henni Gunnu var, get svo verið lélegt far, og líka mælieining er, oft ég skjólið veiti þér. Í skjólinu að sitja er gott, og súpa úr mér. Stefán Vilhjálmsson segir á Leirnum að stefnan sé tekin til æskustöðva um hvítasunnuna: Toga í mig fjörðinn finn, til ferðar senn mig gyrði, heldur sig nú hugurinn hálfur í Mjóafirði. Það fór svo fyrir mér sem oftar þegar ég blaða í ljóðum og vísum Bjarna frá Gröf að geta ekki hætt. „Guð í sjónvarpinu“ kallar hann þessa: Í útvarpinu atómskáldin ekki þykja góð, og ýmsir gjöra þeirra hlut nú smáan. Þó Drottinn kæmi sjálfur og læsi þeirra ljóð líklega myndu fáir hlusta á ‘ann en gaman væri í sjónvarpinu að sjá ‘ann. Ævidansinn: Allt í gegnum aldaraðir ekki breytast heimsins kynni, ýmist hryggir eða glaðir dansa menn um dauðans traðir. Drottinn stjórnar hljómsveitinni. Þessi staka skýrir sig sjálf: Kosningarnar koma senn, kurteisina bæta, nú heilsa allir heldri menn hverjum sem þeir mæta. Á þingpöllum: Ég þingmenn háa heyrði þar halda ræður dagsins, ég held þeir séu hornsteinar í heimsku þjóðfélagsins. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Á hvítasunnu í Mjóafirði og Drottinn í sjónvarpinu Í klípu „GOTT, ÞÚ KOMST MEÐ ÞITT EIGIÐ SKRIFBORÐ. Í FYRSTA VIÐTALINU VAR ÉG EKKI VISS UM AÐ ÞÚ VÆRIR RÉTTUR MAÐUR Í STARFIÐ.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÞÚ SAGÐIR MÉR AÐ HENGJA MYND AF MÖMMU ÞINNI Í HOLINU.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... summa alls sem þú ert mér. Umhyggja gæska Tillitssemi þolinmæðiblíðuhót húmor rómantík stöðugleiki ERTU EKKI AÐ BORÐA MATINN SJÁLFUR SEM ÞÚ ELDAÐIR? NEI, ÞAÐ GERI ÉG ALDREI! AF HVERJU? ÞAÐ ER ÞVÍ AÐ ÞAKKA AÐ ÉG ER ENN Á LÍFI, EFTIR ÖLL ÞESSI ÁR! ÉG ÞARF BARA TVENNT, LÍSA. ÁSTIR GÓÐRAR KONU ... OG ÓAÐ- FINNANLEGA SOKKASKÚFFU. ER HANN MEÐ ÞÉR, ÞESSI? NEI! Víkverji er kominn út úr skápnumsem slugsari: hann var að taka nagladekkin undan bílnum. Já, það er rosalegt að spæna upp malbikið á negldum dekkjum og það langt fram á sumar. Hann hugsar ekkert um umhverfið og annað fólk heldur ein- göngu um sjálfan sig. x x x Víkverji hefur enga afsökun fyrirþessum trassaskap aðra en þá að hann er slugsari. Í fyrstu og ann- arri atrennu var enginn tími laus á dekkjaverkstæðinu og þurfti því frá að hverfa. Samkvæmt skilgreiningu Íslenskrar orðabókar er það slórsöm manneskja. Það sem meira er þá er hann einnig: drollari, sluddi og sluss- ari. Það segir Samheitaorðabókin honum að minnsta kosti. Slussari – það er prýðis-nafngift á Víkverja. Hver sem rekst á hann á göngu má kalla á eftir honum: Slussari! x x x En annars þykir Víkverja alltafjafn gaman að leggja á bílastæð- inu við vinnustað sinn. Kagginn sem Víkverji ekur er græn lítil dolla með ryðblettum. Það eru nokkrar ámóta fagurgrænar kerrur í sama aldurs- flokki og drossía Víkverja sem bíða þolinmóðar við vatnið rauða eftir réttmætum eigendum sem hlaupa inn í þær í lok vinnudags og spæna í burtu. x x x Ástæðan fyrir einskærri kátínuVíkverja í morgunsárið er sú að hann leitar uppi flottustu bílana á planinu og rennir gamla græn við hlið þeirra. Jú, ástæðan er sú ein- læga trú Víkverja að eigendur margra milljóna króna bílanna hljóti að gleðjast yfir hlutskipti sínu að hafa slíkan grip til umráða, þegar rúmlega áratugargamall og lúinn skódi eyðir lunganum úr deginum við hlið þeirra. Samanburðurinn er fullkominn. x x x Annars ætlar Víkverji að nýtatækifærið og óska móður sinni til hamingju með daginn. Til ham- ingju með daginn, elsku mamma! víkverji@mbl.is Víkverji Allt sem faðirinn gefur mér mun koma til mín og þann sem til mín kemur mun ég alls eigi brott reka. (Jóhannesarguðspjall 6:37)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.