Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.06.2014, Page 13
Sverrir Steinn tengist gamla
Héraðsskólahúsinu á
skemmtilegan hátt. „Afi og
amma voru með fyrstu nem-
endum í Héraðsskólanum á
sínum tíma. Afi, Ólafur Þor-
láksson bóndi á Hrauni í Ölf-
usi, var nemandi frá 1929 til
1931 en Karl bróðir hans,
bóndi á sama bæ, var hér við
nám 1934 á sama tíma og
Helga Eysteinsdóttir úr
Vatnsdal. Karl tók hana sem
kaupakonu að Hrauni um
sumarið, þar sem afi náði í
hana. Ári síðar tók Helga svo
Brynhildi systur sína með sér
að Hrauni þar sem Karl bróð-
ir afa náði í hana! Þau giftu sig
og bjuggu öll á Hrauni þar til
yfir lauk.
„Ég hef verið leitandi síð-
ustu árin; hef reynt að finna
sannleika lífsins í öllu og ein-
hvern veginn var ég leiddur
hingað í Héraðsskólann og fæ
tækifæri til að gefa húsinu líf.
Mamma var hér í íþrótta-
kennaraskólanum en það var
ekki fyrr en eftir að ég kom
hingað að ég áttaði mig á
tengingu afa og ömmu við
húsið.“
Af því
afi hitti
ömmu
15.6. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
Járnbrautarlest merkt ítalska verk-
takafyrirtækinu Impregilo stendur í
hlaðinu við félagsheimilið Végarð í
Fljótsdal. Þar hefur Landsvirkjun
starfrækt sýningu fyrir þá sem um
svæðið fara og vilja kynna sér
Fljótsdalsvirkjun, sem framleiðir
alls 690 MW af rafmagni. Bygging
virkjunarinnar á árunum 2003 til
2007 er ein umfangsmesta fram-
kvæmd sem ráðist hefur verið í hér á
landi. Sérstaklega var gerð jarð-
ganga frá Kárahnjúkastíflu að virkj-
unarhúsinu í Fljótsdal krefjandi
verkefni.
Göngin eru tugir kílómetra á
lengd og lestir voru notaðar til flutn-
inga á framkvæmdatímanum. Að
honum afstöðnum var ein lestin skil-
in eftir við Végarð og er nú orðin
skemmtilegur safngripur.
Það er gaman að skoða hin miklu
mannvirki eystra. Áhugavert er að
koma að Kárahnjúkum, en þangað
eru um 60 km úr Fljótsdal á beinum
og breiðum slitlagsvegi. Leiðsögu-
maður á vegum Landsvirkjunar er
við Kárahnjúkastíflu á miðviku-
dögum og laugardögum, frá 14 til 17,
og segir gestum og gangandi frá
framkvæmdunum og náttúrunni,
sem á þessum slóðum er ægifögur –
þótt sumum þyki virkjunarmann-
virkin þar orka tvímælis.
FLJÓTSDALUR
Járnbrautarlestir eru sjaldséðar á Íslandi og því fangar sú sem er eystra augað.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Járnbrautarlest á teinum
Halldór Kiljan Laxness ermeistari blýantsins ímargra huga. Handskrif-
aði snilldina á blað og Auður kona
hans settist síðan við ritvél og
hreinritaði sögurnar og ljóðin og
leikritin. Áður en skáldið kynntist
Auði vélritaði hann hins vegar mik-
ið sjálfur og í gamla Héraðsskól-
anum á Laugarvatni er einmitt rit-
vél sem Laxness mun hafa notað
þegar hann vann þar að Sjálfstæðu
fólki á fjórða áratugnum. Stór hluti
bókarinnar var skrifaður fyrir aust-
an.
Á árum áður var rekið hótel í
gamla húsinu yfir sumartímann og í
fyrra var opnaður gististaður, hos-
tel, á nýjan leik og kenndur við
skólann. „Við erum tveir vinir sem
kynntust í verkfræði fyrir rúmlega
áratug sem stöndum að þessu. Með
hjálp fjölskyldna okkar og vina höf-
um við náð settu marki og viðtökur
hafa farið langt fram úr björtustu
vonum,“ segir Sverrir Steinn Sverr-
isson, sem rekur gisti- og veitinga-
staðinn ásamt Sveini Jakobssyni.
Ráðstefna stóð yfir þegar blaða-
maður sló á þráðinn til Sverris
Steins í vikunni og búið að bóka
brúðkaup og alls kyns veislur í
sumar.
Húsið leigja þeir af ríkinu. „Við
fengum góðfúslegt leyfi til að nota
eigur skólans og hér eru ýmsir
skemmtilegir munir, til dæmis
þessi ritvél sem staðið hefur inni á
skrifstofu en verður frammi í
gestamóttökunni þar sem líka verð-
ur kaffihús og lítil verslun.“
Héraðsskólinn lagðist af árið
1996 en gerðar voru heiðarlegar til-
raunir til að nota húsið; þar var
bókasafn menntaskólans, fé-
lagsmiðstöð fyrir nemendur skól-
anna og listsýningar á vegum Gull-
kistunnar.
„Húsið hafði lítið sem ekkert ver-
ið notað í 17 ár þegar við tókum við
því í fyrra og höfðum knappan tíma
til að standsetja. Við vinnum að
ýmsum framkvæmdum hægt og ró-
lega samhliða rekstrinum svo að
þetta er lifandi verkefni og mikið
að gera.“
Þeir ákváðu strax að vinna mark-
visst með sögu byggingarinnar og
staðarins. „Hugmyndin gengur út á
að fólk komi inn í gamla Héraðs-
skólann og hér er til dæmis ekki
hostel-stjóri heldur skólastjóri!“
segir hann.
„Við vildum reyna sem best að
koma með eitthvað nýtt í ferða-
þjónustuflóruna og ferðamenn, ekki
síður erlendir, eru ótrúlega hrifnir
af skólanum og sögu hússins og
finnst fróðlegt að heyra af þeim
stórmennum sem komið hafa við
sögu.“
Héraðsskólinn var stofnaður
1928, húsið er teiknað af Guðjóni
Samúelssyni og Jónas Jónsson frá
Hriflu tók af skarið eftir nokkrar
vangaveltur um að skóli yrði settur
á laggirnar á staðnum. Þá kemur
Nóbelsskáldið við sögu eins og að
framan greinir.
„Við viljum koma sögu svæðisins
til gestanna í máli og myndum og
höfum til dæmis fengið mikið
myndefni frá gömlum nemendum
og starfsfólki,“ segir Sverrir Steinn,
sem er bjartsýnn á framhaldið:
„Staðsetningin er sérstaklega
skemmtileg, stutt frá Reykjavík en
húsið er líka gríðarlega fallegt og
andinn engu líkur. Við viljum hefja
Laugarvatn upp til vegs og virð-
ingar sem heilsársferðamannastað,“
segir Sverrir Steinn.
SUÐURLAND
Í fingraför Laxness við Laugarvatn
TVEIR VINIR REKA GISTI-
STAÐ Í GAMLA HÉRAÐS-
SKÓLAHÚSINU Á LAUGAR-
VATNI. ÞAR ER GEYMD
RITVÉL SEM HALLDÓR
LAXNESS KU HAFA
HAMRAÐ Á ÞEGAR HANN
SKRIFAÐI SJÁLFSTÆTT FÓLK.
Sverrir Steinn með ritvél skólans sem sagt er að Nóbelsskáldið hafi notast við.
Morgunblið/Sigurður Bogi
Ný ríkisstjórn var kynnt í Héraðs-
skólahúsinu. Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson og Bjarni Benediktsson.
Morgunblaðið/Eggert
Guðný Sverrisdóttir hætti sem sveitarstjóri Grýtu-
bakkahrepps nú að loknum kosningum og auglýst hefur
verið eftir starfinu. Það verða örugglega viðbrigði fyrir
ýmsa, enda hefur Guðný gegnt starfinu í 27 ár!
Allir dagar án Guðnýjar
Gömlu góðu kassabílarnir verða dregnir fram sums staðar á landinu hinn 17. júní.
Keppni í akstri þeirra hefur verið auglýst bæði á Ísafirði og á Flúðum og hugsanlega
víðar. Á heimasíðu Ísafjarðarbæjar eru eigendur beðnir að huga að ökutækjum sín-
um og gera þau klár fyrir daginn.
Hugið að ökutækjunum
Gjafavöruverslun með íslenska & erlenda hönnun • skólavörðustíg 12 • sími 578 6090 • www. minja.is • facebook: minja
K
raftaverk
studio ROOF er hönnunarteymi
í Hollandi sem framleiðir margskonar listaverk
og hönnun úr endurunnum pappír. Verkin koma
á flötu spjaldi sem raðað er saman.