Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.06.2014, Qupperneq 16
Þ
að er ekki óþekktur frasi að vísa í
lögregluna þegar börnin haga sér
illa, í þeirri von að þau átti sig á
því að ef þau verði ekki stillt og
prúð komi sjálf lögreglan og segi
þeim til syndanna, nú eða jafnvel taki þau
með sér niður á lögreglustöð.
Guðmundur Ingi Rúnarsson varðstjóri
teiknaði skemmtilega skopmynd fyrir nokkru
þar sem sést snotur skopmynd af lögreglu-
manni auk skilaboða til foreldra. „Hugmyndin
að þessu kom frá Þóri, kollega mínum, og
fannst honum sniðugt að reyna að ná til fólks
með óhefðbundnum hætti. Teikning eða skop-
mynd blasti þá við,“ segir Guðmundur sem
hefur einnig teiknað fyrir styrktar- og sjúkra-
sjóð Landssambands lögreglumanna. Hann
segist stundum verða var við það þegar hann
rekst á foreldra með börnin sín að þau noti
lögregluna sem ákveðið agatæki. „Jú, maður
lendir reglulega í því að fólk segi við börnin
sín í návist okkar að nú verði þau að haga sér
vel því annars þurfi þau að fara með löggunni.
Það er voðalega þægilegt að nota það, því
þetta virkar, en börnin ættu ekki að vera
hrædd við að hringja á lögregluna ef eitthvað
kemur fyrir.“
Vildu ná til fólks
Facebooksíða lögreglunnar nýtur mikilla vin-
sælda og hefur einnig vakið athygli erlendis.
Átta manns standa að baki síðunni og eru þau
dugleg að halda henni lifandi og skemmtilegri
en einnig setja inn ýmsar tilkynningar og
annað. „Við vildum ná til fólks og sýna að
löggan er sniðug, ekki aðeins alvarleg.“
Á myndinni er skemmtileg skopmynd af
lögreglumanni sem ber ákveðin skilaboð til
foreldra sem og annarra. Guðmundur segist
hafa verið að teikna fígúruna frá blautu
barnsbeini í ýmsum myndum og nú sé hann
kominn í lögreglubúning. Aðspurður segist
hann þó ekki hafa gefið fígúrunni sinni nafn
ennþá. „Þegar þú minnist á það þá ætti hann
auðvitað að heita eitthvað, í ljósi þess að hann
er búinn að vera til svo lengi. Kannski fær
hann nafn eftir þetta samtal, það gæti gerst,“
segir Guðmundur kátur.
Lögreglan er engin Grýla
„Við höfum haft þetta á tilfinningunni að fólk
geri þetta reglulega; noti lögregluna sem
ákveðna Grýlu. En við erum með Grýlu nú
þegar, hún er ágæt og býr í Esjunni og er
ekki með facebooksíðu eins og við. Það er
ágætt að nota bara Grýlu í eitthvað svona en
ekki lögregluna,“ segir Þórir Ingvarsson,
rannsóknarlögreglumaður hjá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu og jafnframt einn að-
standandi facebooksíðu lögreglunnar. „Ég
held að fólk átti sig bara ekki á því að ef
börnin eru hrædd með því að hóta að siga
löggunni á þau, þá er spurningin sú hvort
barnið hringi á lögregluna þegar hætta steðj-
ar að, það er ekkert flóknara en það.“
FÓLK HEFUR TILHNEIGINGU TIL AÐ NOTA LÖGREGLUNA SEM AGATÓL
„Löggan kemur og tekur þig!“
Þessir hressu lögreglumenn, Guðmundur Ingi Rúnarsson og Þórir Ingvarsson, vildu miðla boðskap til fólks á óhefðbundinn hátt og tókst vel upp.
Morgunblaðið/Eggert
LÖGREGLAN Á HÖFUÐBORGAR-
SVÆÐINU HVETUR FÓLK TIL ÞESS
AÐ HRÆÐA EKKI BÖRNIN SÍN MEÐ
ÞVÍ AÐ SEGJA AÐ LÖGGAN KOMI
OG TAKI ÞAU EF ÞAU VERÐI EKKI
STILLT, ÞVÍ EF EITTHVAÐ KÆMI FYRIR
ÆTTU ÞAU EKKI AÐ VERA HRÆDD
VIÐ AÐ LEITA TIL LÖGREGLUNNAR.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.6. 2014
Fjölskyldan Hvar og hvenær? Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, sunnudag kl. 9-17.Nánar: Árlegur skemmtidagur fornbílafólks þar sem félagar fornbíla-
klúbbsins mæta með bíla sína milli kl. 9 og 10 í garðinn. Pylsur verða grill-
aðar eftir hádegi og munu bílarnir verða til sýnis til kl. 17.
Fornbílar viðraðir um helgina
Hinn ástsæli Brúðubíll setur í botn á
fyrsta gíri um helgina. Það er nokkuð
ljóst að þegar sést til Brúðubílsins er
sumarið komið. Á laugardeginum
verður hann staddur við Fróðengi í
Grafarvoginum kl. 10, og í Tónabæ í
Safamýrinni kl. 14. Á sunnudeginum
mætir hann galvaskur á Klambratún
við Flókagötu kl. 10 og færir sig að
sundlaug Vesturbæjar kl. 14.
Helga Steffensen hefur stjórnað
leikhúsi Brúðubílsins í hvorki meira
né minna en 34 ár og var sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu árið
2007 fyrir framlag sitt til leiklistar og menningar í þágu barna. Margir sem
áttu góðar stundir með Brúðubílnum eru farnir að mæta með sín börn til að
berja fjörugu brúðurnar augum. Lilli api, sem við þekkjum flest, verður á
svæðinu, hressari en nokkurntíma fyrr, auk allra hinna. Veðurspáin virðist
vera prýðileg svo það er um að gera að ná í skottið á Lilla apa og félögum.
OJA OJA AHAHA!
Brúðubíllinn með Helgu Steffensen í fararbroddi er ómissandi fyrir alla krakka.
Morgunblaðið/Ernir
Brúðubíllinn á fullri ferð
Lilli api hefur verið með frá upphafi.
KOLAPORTIÐ
kolaportid.is
Einstök stemning í 25 ár
Opið laugardaga og sunnu
daga
frá kl. 11-17