Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.06.2014, Blaðsíða 39
Ristað brauð hefur verið hnossgæti að morgni í rúmlega 100 ár.
Brauðrist eins og við þekkjum hana, þar sem brauðinu er stungið
ofan í og það skýst síðan uppúr þegar það er tilbúið, var fundin
upp af Charles Strite árið 1919. Upprunalega brauðristin var
hinsvegar fundinn upp í Skotlandi 1893 af Alan MacMasters þar
sem brauðið stóð í hitalampa og grillaðist hægt en örugglega. Í
desember 1928 auglýsti raftækjaverslunin Júlíus Björnsson í
Morgunblaðinu brauðrist til sölu og þótti hún afbragðs hug-
mynd að jólagjöf hér á landi á þeim tíma.
Ári síðar, eða 1929, fann Otto Frederick Rohwedder frá
Bandaríkjunum upp brauðhnífinn sem sneiddi bakað brauð í
sneiðar. Í hartnær áratug skar fólk semsagt brauðið sitt
sjálft til að setja í brauðristina. Var brauðhnífurinn aug-
lýstur sem eitt mesta tækniundur í sögu bakaraiðnaðar.
Enn í dag er hægt að fá brauð frá bakaraíum óskorið
enda ekki allir sem vilja sjö til tíu millimetra þykka
brauðsneið.
Brauðrist kom á undan
brauðhnífnum
Auglýsing
fyrir sjálf-
virka brauð-
rist frá 1926
sem lofaði
að brenna
ekki brauðið.
15.6. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
Fólk er orðið verkfæri
sinna eigin verkfæra.
Henry David Thoreau – rithöfundur
Flestir í kringum þrítugsaldurinn kannast við TalkBoy
græjuna sem Macaulay Culkin notaðist við í kvikmynd-
inni Aleinn heima 2 (e. Home Alone 2) til að panta sér
hótelherbergi og leika á vonda hótelstjórann.
TalkBoy græjan var ekki búin til fyrr en 1993 en
myndin kom út um jólin 1992. Vegna þrýstings frá
börnum víða um heim ákvað Tiger Electronics að gera
græjuna sem var ekkert sérstaklega flókin. Hún var í
raun og veru bara diktafónn sem gat hægt á röddum
eða hraðað þeim.
TalkBoy var eins og flest kassettutæki á þessum tíma
með fimm tökkum og hægt var að hraða röddinni um
130% og hægja á henni um 76%. Deluxe módelið
fékkst síðan með fjölmörgum línum úr myndinni
Aleinn heima.
Töluvert var um að börn fengju TalkBoy að gjöf árið
1993 en tæknin breyttist ört á þessum tíma og áður en
Tiger Electronics náðu að átta sig voru örlitlir dikta-
fónar komnir á markað og nánast útrýmdu TalkBoy
sem leiktæki. Í dag þykir Deluxe útgáfan töluvert eft-
irsóttur safngrupir og kostar óopnaður TalkBoy rúm-
lega 50 þúsund krónur á eBay.
GAMLA GRÆJAN
Aleinn heima
TalkBoy
TalkBoy tækið var gert sem leikmunur fyrir myndina
Aleinn heima 2 og kom út ári síðar sem leiktæki.
Flower Power, frá franska fyrirtækinu Parrot, er skynjari sem stungið er
í blómapotta eða mold nálægt plöntu og gæti það verið svar þeirra sem
vilja vera með græna fingur en hafa ekki kunnáttuna til að halda plöntum
á lífi. Skynjarinn er 30 sentimetrar að lengd og stingst hann ofan í blóma-
pott eða moldina. Flower Power fylgist með plöntunum í pottunum eða
moldinni og lætur eigandann vita með smáforriti hvernig plöntunni líður.
Skynjarinn kemur svo með tillögur um hvers viðkomandi planta þarfn-
ast, hvort sem það er meiri eða minni birta, hvort moldin þurfi meira
eða minna vatn og svo framvegis. Allt til að halda plöntunni á lífi. Gögnin
eru send í snjallsíma notandans og hann getur gripið til nauðsyn-
legra ráðstafana sé þess þörf.
Smáforritið var þróað með frönskum, hollenskum og
bandarískum grasafræðingum og hægt er að velja
um yfir 6.000 plöntur til að fylgjast með, allt frá risa-
stórum trjám sem finnast í útlöndum til krydd-
jurtanna heima í stofu. Hægt er að nota skynjarann á margar
plöntur í einu þannig að ekki er nauðsyn að kaupa marga.
Skynjarinn notar blátönn (e. bluetooth) til að koma skila-
boðum til notandans og því er aðeins hægt að nota tækið í 5-25
metra fjarlægð. Það kostar 60 dollara eða rúmlega sjö þúsund krón-
ur og fæst það meðal annars á Amazon.com en smáforritið má sækja
fyrir hvaða snjallsíma sem er og kostar það ekki neitt.
HÖNNUN OG UPPFINNINGAR
Tækið fæst í bláu, brúnu og grænu
en fleiri litir eru væntanlegir.
Plöntusnjallt
í pottunum
Flower Power
hefur þegar
bjargað lífi
margra plantna
víða um heim
en tækið kom
á almennan
markað í byrj-
un árs.
TÖFF TÆKNISTAÐREYND
Sneitt brauð kom tíu árum á
eftir sjálfvirku brauðristinni.
**Uppítökuverð og skilmálamá sjá hér:
www.epli.is/uppitaka
Samsung
GalaxyS4 i9505
Uppítökuverð**
26.000.-
iPhone4s 16GB
Uppítökuverð**
22.000.-
Dæmiumuppítökuverð:
B
ir
t
m
e
ð
fy
ri
rv
a
ra
u
m
p
re
n
tv
ill
u
r
o
g
ve
rð
b
re
yt
in
g
a
r.
UPPÍTÖKU
TILBOÐ
Við viljumauðvelda
þér aðeignast nýjan
iPhone5seða iPad
miniRetina.
Til 19. júní tökum við Samsung og iPhone
síma ásamt spjaldtölvum af sömu gerðum
upp í iPhone 5s eða iPadmini Retina**
Smáralind | Sími 512 1330
Opið Sunnudaga 13-18