Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.06.2014, Page 40
Tíska
Tískudívur selja af sér spjarirnar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
*Laugardaginn 14. júní verður haldinn fatamarkaður á LoftHostel, sem staðsett er í Bankastræti 7. Þar munu nokkrar afflottustu tískudívum landsins selja fallegar flíkur sem horft ereftir. Jeffrey Campbell skór og föt úr Aftur eru meðal annarssem þær Anna Jóna Dungal, Elsa María Blöndal, HeiðrúnJónsdóttir, Sunna Ben og Unnur Skúladóttir munu bjóða uppá þennan laugardag.
Spáð er þurru veðri í Reykjavík þennan laugardag og því
tilvalið að gera góð kaup í sumarbyrjun.
E
f þú fengir að eiga fataskáp einhvers, hver myndi það vera og af hverju? Rachel
Zoe, ekki spurning. Hún á eitt fallegasta safn af „vintage“-hönnunarkjólum sem ég
veit um – fyrir utan allt hitt, hún á sennilega eitt af öllu sem er „eitthvað“ og er með
flottan smekk sem höfðar til mín. Skápurinn hennar er MJÖG stór og ég er viss um
að ég gæti eytt mánuði þar án þess að leiðast eitt andartak.
Áttu þér uppáhaldsflík? Já, ég elska slárnar frá Andreu. Þær eru flottar við allt – hlýjar,
þægilegar og töff. Ég á auðvitað eina í hverju prenti sem við höfum hannað og ég held mikið
upp á þær. Ég nota þær fínt og hversdags, fer með þær í öll ferðalög, nota þær sem teppi
þegar ég þarf og vef þeim utan um börnin mín ef þeim er kalt og við einhversstaðar úti. Þetta
er eitthvað sem við erum með allan ársins hring í nýjum og nýjum litum og prentum eftir árs-
tíðum.
Hvað var fyrsta hönnunarflík sem þú keyptir þér? Ég man eftir að hafa fengið fallegan
DKNY-trefil sem mér þótti mjög vænt um í afmælisgjöf frá Svövu Johansen en það var þegar
ég var ung og nýbyrjuð að vinna í tískubransanum. Þegar ég var lítil var ég alltaf í heima-
saumuðum gersemum sem mamma mín og amma saumuðu handa mér, að mörgu leyti voru
það kannski flottustu fötin sem ég gat fengið í þá daga. Allt eftir óskum mínum ..... lit, sídd og
snið, gæti ekki óskað mér betri föt en það.
Hver er uppáhaldsverslunin þín? AndreA boutique.
Manstu eftir einhverjum tískuslysum sem þú tókst þátt í? Ætli ég hafi ekki um það bil tek-
ið þátt í þeim flestöllum. Ég hef alltaf verið óhrædd við að fara í það sem mig langar til og
hef ekki beint valið klassísk föt í gegnum tíðina, en allt eru þetta þó börn síns tíma og þóttu
alls ekki tískuslys þá. Ég verð að viðurkenna að ég loka stundum augunum þegar ég skoða
gömul myndaalbúm, og fæ smá hláturskast.
Hvað kaupir þú þér alltaf þó að þú eigir nóg af því? Royal Copenhagen.
Áttu einhverja dýrmæta flík sem þú tímir ekki að nota? NEI. Ég nota öll fötin mín, líka
þau sem eru fín. Ég lít á það þannig að ef ég tími ekki að nota þau tími ég ekki að kaupa þau.
Hvað er nauðsynlegt í snyrtitöskuna? Neo Strata-kremin eru æðisleg, mæli hiklaust með
þeim. Estee Lauder DayWearPlus, Bear minerals-steinefnafarði, YSL-gullpenninn, Lancome
eyeliner, Lancome-maskari og Loreal-gloss.
Ég bý svo vel að eiga gullmola af vinkonu sem fylgist vel með öllu sem er að gerast í
snyrtivöruheiminum og segir mér svo hvað ég á að kaupa, þannig að þetta er auðvelt val hjá
mér.
Áttu þér eitthvert gott stef, ráð eða mottó þegar kemur að fatakaupum?
Vandaðu alltaf valið alveg sama hvort varan er dýr eða ódýr - Ekki kaupa hana
nema að þú sért viss um að þú fílir þig í henni, við erum nefnilega alltaf sæt-
astar þegar okkur líður vel. Það er ekki hægt að vera „overdressed“, svo not-
aðu öll fötin þín, líka þau sem eru í fínni kantinum.
Ef þú fengir aðgang að tímavél sem gæti flutt þig aftur til árs að eigin
vali og þú fengir dag til að versla, hvaða ár myndirðu velja og hvert
færirðu? „Studio 54 a la Diane von Fürstenberg“
er ofarlega á lista en ég væri líka til í smá
diskó og smá hippatímabil, ég get eig-
inlega ekki gert upp á milli en ég færi
klárlega á litríkt tímabil þar sem nóg
væri af mynstruðum síðkjólum og sam-
festingum.“
Andrea Magnúsdóttir,
fatahönnuður, heldur
uppá slárnar sínar sem
hún segir ávallt koma
að góðum notum.
Morgunblaðið/Þórður
Lancome
maskari er
nauðsynlegur í
snyrtitöskuna.
Andrea hefði ekkert á móti
því að kíkja á Studio 54.
Andrea fær
ekki leið á því
að kaupa Royal
Copenhagen.
Rachel Zoe er ávallt
smart að mati Andreu.
AFP
MIKILVÆGT AÐ VANDA VALIÐ ÞEGAR KEMUR AÐ FATAKAUPUM
Við erum alltaf
sætastar þegar
okkur líður vel
ANDREA MAGNÚSDÓTTIR FATAHÖNNUÐUR HANNAR SÉRLEGA
FALLEG FÖT OG SELUR Í VERSLUN SINNI ANDREU Á STRANDGÖT-
UNNI Í HAFNARFIRÐI. ANDREA SEGIR NAUÐSYNLEGT AÐ NOTA
ÖLL FÖTIN SÍN, LÍKA ÞAU SEM ERU Í FÍNNI KANTINUM.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is