Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.06.2014, Page 50
Viðtal
50 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.6. 2014
ég get unnið 3-4 daga í viku, og ég hef því
haft tækifæri til að vera mikið með krökk-
unum og njóta þess.
Ég hef þó leyft mér að vinna í leikhúsi um
það bil annað hvert ár því mér finnst það
nauðsynlegt og gefandi, en að vinna meira í
leikhúsinu er of slítandi með fjölskyldulífinu,
sérstaklega þegar maður er einstæð móðir.
Maður kemur heim á miðnætti og vaknar
svo klukkan sex til að smyrja nesti. Nú eru
þau Gudrun og Bror að verða stærri og ég
er því að taka að mér fleiri verkefni tengd
leikhúsinu. Núna er ég til dæmis að byrja
æfingar í London, en í ágúst leik ég í sam-
starfsverkefni Þjóðleikhúss Skotlands og
Þjóðleikhússins í London í verki þar sem ég
leik drottningu.“ Nánar tiltekið Margréti,
dóttur Kristjáns I. Danakonungs, en þegar
hún giftist James III., konungi Skotlands,
varð hún drottning Skota.
„Ég hef minni áhyggjur af börnunum
núna og svo eiga þau líka föður. Þau spjara
sig. En auðvitað er þetta pínu skrýtið. Við
byrjum að æfa í London núna strax eftir
helgi. Þú sérð handritið sem ég er með hér í
töskunni,“ segir Sofie og dregur upp þykkt
handrit með löngum einræðum. Hún hlær
þegar hún segist yfirleitt ekki læra línurnar
sínar fyrir fram en nú hreinlega sé ekki ann-
að í boði.
Upplifir stundum enn
að vera á skjön
Sofie er barn tveggja arkitekta og ólst upp í
hippalegu kommúnusamfélagi í Freder-
iksberg en sótti þó um tíma grunnskóla í allt
annars konar umhverfi en hún þekkti; í eins
konar Garðabæ Kaupmannahafnar, þar sem
allir áttu hús, hund og bíl. Í viðtali við Alt
for damerne hefur hún lýst því hvernig hún
upplifði það eins og að vera hent út á víg-
völlinn án vopna. Henni var strítt á öllu; fyr-
ir að vera í öðruvísi fötum, hvernig nestið
hennar var útbúið og svo framvegis. Þetta
hafi verið tilfinning eins og að vera að
drukkna – án þess að nokkrum dytti í hug
að kasta til hennar björgunarhring. Hún
fékk fljótlega að skipta um skóla en þessi
reynsla hefur alla tíð setið í henni og hún
getur upplifað það að hún sé einhvern veg-
inn á skjön við ákveðnar aðstæður enn í dag.
Fyrir vikið hefur hún þó einnig til að bera
skilning á því að fólk getur verið marg-
breytilegt.
Með farsælan feril að baki vekur það jafn-
an athygli að Sofie er ómenntuð leikkona og
ekki aðeins það heldur er hún ekki mennta-
skólagengin heldur lauk aðeins skyldunámi.
„Ég var ekki nema 10 ár í skóla og ef ekki
hefði verið fyrir algera tilviljun hefði mér
held ég ekki dottið í hug að verða leikkona.
Ég hafði ekki hugmynd um hvað ég vildi
gera við líf mitt þegar ég rakst á auglýsingu
þar sem óskað var eftir fólki í prufur fyrir
kvikmynd sem Henning Carlsen heitinn leik-
stýrði.“
Sofie fékk þar fremur stórt hlutverk í
kvikmyndinni Oviri, sem fjallar um ævi
myndlistarmannsins Paul Gauguin, en Do-
nald Sutherland fór með hluterk Gauguin
sjálfs.
Eftir þetta fór boltinn að rúlla. Sama ár
lék hún í Barndommens gade eftir Tove Dit-
levsen og 17 ára gömul fékk hún hlutverk í
Pelle sigurvegari. Eitt hlutverk leiddi af
öðru og hún segir að það hefði aldrei hvarfl-
að að henni að ferillinn yrði svo langur. Á
síðasta ári hlaut Forbrydelsen BAFTA-
verðlaunin og Bretar vilja nú ólmir fá Sofie
til að leika í bresku efni enda líta Bretar nú
á hana sem heimilisvin sem þeir vilja sjá
meira af.
„Þrátt fyrir að þetta sé tilviljun – að ég
lagði leikinn fyrir mig – verð ég að segja að
það var strax eitthvað sem lá djúpt í mér
sem tengdi strax við leiklistina og kannski
get ég ekki kallað þetta tilviljun, kannski eru
þetta örlög. Stundum velti ég því fyrir mér
hvað hefði orðið úr mér ef ég hefði ekki farið
þessa leið. Kannski hefði ég orðið kennari.
Ég get reyndar ekki ímyndað mér nokkuð
annað, að ég hefði fundið eitthvað annað sem
hefði verið svona fullnægjandi.“
Urðum náin
Austur á landi hefur Sofie dvalið í þremur
tökulotum ásamt virtum leikurum á borð við
Sir Michael Gambon, sem flestir þekkja að
minnsta kosti sem Dumbledore úr Harry
Potter, og Stanley Tucci sem tilnefndur var
til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í The Lov-
ely Bones og enn fleiri þekkja úr Hunger
Games. Breska sjónvarpsstöðin Sky fram-
leiðir spennuþáttaröðina en framleiðslu-
fyrirtækið Pegasus, sem sá einnig um tök-
urnar á Game of Thrones, hefur haldið utan
um verkefnið hér á landi. Leikaraliðið er
óvenjufjölmennt fyrir þætti sem þessa, en
um 30 erlendir leikarar fara með hlutverk í
þáttunum og ekki má ekki heldur gleyma
um 220 aukaleikurum. Auk þess unnu um 70
Íslendingar og 50 útlendingar við framleiðsl-
una.
Í þáttunum leikur Sofie lögreglustjóra í
litlum bæ á heimskautasvæði og fóru tökur
fram á ýmsum stöðum í Fjarðarbyggð; með-
al annars á Reyðarfirði og Egilsstöðum. So-
fie segist vona að farið verði út í framleiðslu
á annarri seríu, en það væri spennandi fyrir
Austfirðinga, sem yrðu þá væntanlega að sjá
um að fjöllin færu hvergi fyrir leikmynd í
nokkur ár í viðbót.
„Þetta hefur verið heilmikil lífsreynsla og
nú kveð ég eftir þessa þriðju og síðustu
tökulotu. Allir fljúga til síns heima í dag eða
á morgun. Mig hefur lengi dreymt um að
koma til Íslands og reyndar held ég að Dan-
ir eigi sér margir þann draum en láti hann
kannski bara ekki rætast. Náttúruupplifunin
hefur verið ótrúlegri en ég ímyndaði mér.
Egilsstaðir og þessir staðir fyrir austan eru
svo afskekktir og þegar maður dvelur svona
lengi á sama stað á nokkrum mismunandi
vinnslustigum fer maður að þekkja fólkið
sem vinnur á veitingastöðunum og það verð-
ur eitthvað sérstakt úr því; við vorum farin
að þekkja nöfn hvert annars og öll orðin
málkunnug. Við sem unnum að þáttunum
urðum auk þess náin og það myndaðist góð
dýnamík í hópnum – við urðum eins og lítil
fjölskylda, eða stór öllu heldur – því við vor-
um svo mörg!“
Úff, ekki aftur!
Komandi úr landi þar sem fjöll byrgja ekki
sýn – fékk hún aldrei innilokunartilfinningu í
litlum fjörðum?
„Jú, stundum fannst mér ég vera föst en á
góðan hátt. Ég viðurkenni að þegar ég var
með börnunum mínum heima í Kaupmanna-
höfn og var að pakka niður til að fara hingað
í þriðja skiptið hugsaði ég með mér; „Úff –
er ég virkilega að fara þangað aftur!“ En um
leið og ég lenti í Keflavík fann ég hvað mér
leið vel að vera komin aftur. Það eru líka
forréttindi að fá að sjá landið á þremur mis-
munandi árstíðum, um vetur, vor og sumar.“
Dagskrá Sofie hefur verið afar ströng, en
frídögum sínum eyddi hún ekki eins og flest-
ir hinir leikararnir – í að ferðast og fara í
sund. Hún segir flesta sem unnu að Forti-
tude hafa fengið æði fyrir sundlaugunum.
„Mér leið best að fara í langa göngutúra og
tæma hugann og ég fór ekki í eitt skipti í
sund. Ég gat líka borðað endalaust og fékk
hvarvetna ótrúlega góðan mat; hreindýra- og
lambakjöt.“
Þið eruð öðruvísi
Blaðamaður sver að hafa aldrei komist svo
langt að spyrja Sofie hvernig henni líkaði Ís-
land. Leikkonan er einfaldlega upprifin og
þess gerist ekki þörf að bera spurninguna
upp. Hún segist finna sterka tengingu við Ís-
lendinga og að Danir og Íslendingar tilheyri
sömu fjölskyldu.
„Engu að síður tók ég eftir því að þið eruð
frábrugðin okkur að því leyti að þið leyfið
ykkur að vera öðruvísi. Danmörk er flatt
land og okkur hættir til að vilja steypa alla í
sama mót. Ef einhver reynir að standa út úr
refsum við honum umsvifalaust og reynum
að koma til baka; aftur inn í hópinn. Ég upp-
lifði það að þið hafið frelsi til að vera alla
vega sem einstaklingar – er þetta ekki rétt
hjá mér?“
Sofie bætir við að þegar hún hafi gengið
Fólkið á Keflavíkurflugvelli þekkti Söruh sína Lund að sjálfsögðu.
* Á heimaslóðum er maður auðvitað alltaf minnturá það hver maður er og hvað maður hefur gert.Ég upplifði létti að vera hér í nýju umhverfi og ég
þurfti á þessum tímapunkti í lífi mínu, eftir veikindin,
að komast burt og þetta var því eins og himnasending.
Stundum fannst mér eins og árið væri 0 – ný byrjun.“
DÆMI: Þú velur lið Brasilíu.
Brasilía á leik og skorar 3 mörk.
Daginn eftir færðu 15 kr. afslátt.
Veldu þitt
HM-lið
á ob.isPIPAR\TBWA
•
SÍ
A
•
14
15
79