Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.06.2014, Qupperneq 51
niður Laugaveginn, sem hún gerði tvisvar og
verslaði, hafi henni liðið eins og hún gæti
verið í tónlistarmyndbandi. Og ef Björk hefði
mætt á svæðið hefði enginn tekið eftir því
því allir væru hvort sem er svo sérstakir.
Björk hefði týnst í hópnum.
„Það er frábært hvað þið eruð sjálfstæð.
Kannski hafið þið þennan eiginleika til að
bera því þið eruð komin af þrælum – eins og
einhver sagði mér. Þið eruð vön því að þurfa
að berjast fyrir tilverurétti ykkar.“
Persónulega segist Sofie hafa upplifað
mikið frelsi að dvelja austur á landi. „Á
heimaslóðum er maður auðvitað alltaf
minntur á það hver maður er og hvað maður
hefur gert. Ég upplifði létti að vera hér í
nýju umhverfi og ég þurfti á þessum tíma-
punkti í lífi mínu, eftir veikindin, að komast
burt og þetta var því eins og himnasending.
Stundum fannst mér eins og árið væri 0 –
ný byrjun.“
Les ekki glæpasögur
Er lögregluforinginn sem Sofie leikur ólík
Söruh Lund?
„Ó, já. Mjög. Í Fortitude er ég í stöðu lög-
regluforingja sem á auðvelt með samskipti.
Hún er manneskja í valdastöðu, er í raun
manneskja sem er í forsvari fyrir kerfið á
meðan Sarah Lund var alltaf í eilífri baráttu
við reglur og yfirvaldið.“
Hvað með sjálfa þig – ertu aðdáandi
glæpasagna og glæpamyndaflokka?
„Satt best að segja nei. Og ég held að ég
hafi aldrei lesið glæpasögu. Ég las mikið
þegar ég var yngri en svo kom langt tímabil
þegar sem ég las ekkert utan vinnunnar.
Þegar ég veiktist hafði ég að vísu meiri tíma
í lestur og las svolítið þá en ekki þessa teg-
und bókmennta. En það er afar gaman að
leika í þessari tegund sjónvarpsþátta.“
Getur Sofie útskýrt af hverju danskt sjón-
varpsefni nýtur svo mikilla vinsælda?
„Fyrst og fremst held ég að danska ríkis-
útvarpið hafi komist upp á lag með að fram-
leiða efni sem er á öllum sviðum metnaðar-
fullt og vandað. Þá gerir það miklar kröfur
til handritanna og fjárfestir í handritshöf-
undunum, og ég held að það borgi sig að
leggja meiri peninga í það. Þetta er ekki
beint uppskrift að vinsældum en danska
ríkisútvarpið er að gera mjög góða hluti.
Er uppskrift að galdrinum á bak við Söru
Lund?
„Já, ég held það, en við kunnum þá upp-
skrift samt ekki þegar við byrjuðum. Galdur-
inn bak við hana er að hennar persónuleiki
er ekki út á við – hún heldur aftur stórum
hluta þess sem býr innra með henni og það
er það sem gerir hana svo spennandi. Hún
er svo dul og það er erfitt að fá hana til að
opna sig og ná til hennar. Þetta er eins og
þegar maður verður ástfanginn af ein-
hverjum sem maður getur ekki fengið – þá
fær maður viðkomandi á heilann og reynir
stöðugt að ná til hennar. Þetta er eins með
Söruh Lund.“
Danska krónprinsessan Mary og hertogaynjan Camilla Parker-Bowles heimsóttu tökustað For-
brydelsen í opinberri heimsókn Karls Bretaprins og hertogaynjunnar til Danmerkur. Hertogaynjan
af Cornwall fékk að sjálfsögðu peysu að gjöf sams konar og lögreglukonan Sarah Lund klæðist jafn-
an í þáttunum en teymið færeyska Guðrun & Guðrun hannaði peysuna. Sofie Gråbøl sjálf sá peys-
una í búningageymslu danska ríkisútvarpsins og fannst flíkin passa karakter sínum.
Þættirnir um Nikolaj og Julie voru sýndir við miklar vinsældir á RÚV.
Lögreglukonan Sarah Lund var sérstakur og flottur karakter sem lét ekki valta yfir sig.
Á ob.is geturðu valið uppáhaldsliðið þitt á HM í fótbolta sem fram
fer í Brasilíu í júní og júlí. Daginn eftir alla leiki hjá liðinu færðu
afslátt af bensíni og dísel með lyklinum, sem nemur 5 krónum
á hvert mark sem liðið þitt skoraði. Ef þú átt ekki lykil, sendum við
þér hann. Afslátturinn gildir hjá ÓB og Olís.
KR.
FYRIR HVERT
5
MARK
● Sofie Gråbøl er fædd 30. júlí árið
1968.
● Hún ólst upp í Frederiksberg í
Danmörku.
● Foreldrar hennar voru arkitektar.
● Bróðir hennar, Niels Gråbøl, er
þekktur kvikmyndaleikstjóri í
Danmörku.
● Verkefni sem Sofie Gråbøl hefur
sinnt spanna víðan völl; Shakespeare-
hlutverk í leikhúsinu, stórmyndir á
borð við Pelle sigurvegari og
aðalhlutverk í vinsælustu sjónvarps-
þáttum Dana.
● Leikkonan er ómenntuð í leiklistinni
og er ekki með menntaskólapróf.
● Um tíma las Sofie sér þó til í
guðfræði.
● Sofie var ekki skírð sem barn en
þegar hún var komin á fullorðinsár lét
hún skíra sig.
● Sofie er tveggja barna einstæð
móðir og býr í Kaupmannahöfn.
ÖRFÁ ATRIÐI ÆVINNAR
Sofie
Gråbøl
15.6. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51