Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.06.2014, Qupperneq 57
15.6. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57
Síðasta sýning á Eldrauninni
eftir Arthur Miller verður
laugardagskvöldið 14. júní.
Þjóðleikhúsið sýnir verkið
en það hlaut m.a. lofsamlega dóma
hjá Sigurði G. Valgeirssyni í gagnrýni
hans í Morgunblaðinu.
2
Bandaríska söngkonan,
píanóleikarinn og skemmti-
krafturinn Yve Evans syng-
ur og spilar á veitingahúsinu
Jómfrúnni við Lækjargötu laugardag-
inn 14. júní. Aðgangur er ókeypis en
tónleikarnir eru hluti af sumardjass-
tónleikaröð veitingahússins og
standa frá kl. 15 til 17.
4
Tónlistarmennirnir KK og
Magnús Eiríksson láta ekki
deigan síga frekar en fyrri
daginn og spila saman á tón-
leikum á Café Rosenberg laugardag-
inn 14. júní kl. 22. Aðgangseyrir er kr.
2000. Allir eru velkomnir.
5
Sýningunni The Five Live
Lo-Fi, sem sýnd er í Kling
og Bang galleríi, lýkur um
helgina. Sýningin er hluti af
Listahátíð í Reykjavík og var unnin af
íslenskum listamönnum í samstarfi
við listahópinn E.S.P. TV New York.
Hún samanstendur af fjórum gjörn-
ingum, sem sendir voru út í beinni út-
sendingu af hálfu listahópsins.
3
Níutíu verk eftir myndhöggv-
arann Sigurjón Ólafsson eru á
sýningunni Spor í sandi í
Listasafni Íslands. Dr. Hall-
dór Björn Runólfsson safnstjóri verð-
ur með leiðsögn um sýninguna
sunnudaginn 15. júní kl. 14.
MÆLT MEÐ
1
Mér er sérlega kært að halda sýn-ingu í mínum gamla heimabæ,“segir myndlistarkonan Kristín
Gunnlaugsdóttir en sýning hennar í Flóru á
Akureyri verður opnuð laugardaginn 14. júní
kl. 14 og stendur til sunnudagsins 17. ágúst.
„Á sýningunni verða bæði ný verk og eins
verk frá sýningunni í Listasafni Íslands sem
lauk nú í febrúar. Ég er mjög ánægð með að
geta flutt sum þeirra verka til sýningar á
Akureyri.“ Verk sýningarinnar verða samtals
níu, bæði vatnslitamyndir og eggtemperur.
Kristín hefur unnið með eggtemperutækni
undanfarin ár en um er að ræða tækni helgi-
mynda miðalda að tíma endurreisnar. „Unnið
er með 23 karata blaðgull, eggjarauðu og
litaduft á tréplötur. Ég nota þessa gömlu
tækni en vel mér myndefni sem fylgir nútím-
anum og er á skjön við myndefnið sem notað
var við þessa tækni á sínum tíma, þ.e. helgi-
myndir,“ segir Kristín. „Þannig myndast
áhugaverð spenna. Myndmál mitt fjallar
mikið um reynsluheim kvenna en listasagan
fjallar að mestu um verk eftir karla. Listir í
heild sinni fjalla hins vegar að sjálfsögðu um
hvað það er að vera manneskja. Ég vil sjálf
sem listamaður ganga út frá þeim punkti og
tel það kjarna verka minna.“
List Kristínar er fjölbreytileg og meðal
verka hennar eru teikningar, málverk, egg-
temperur og útsaumsverk. „Tæknin sjálf
skapar ekki listaverk,“ segir Kristín, „en
þeim mun fjölhæfari sem maður er á mis-
munandi tæknigreinar, þeim mun meira
frelsi upplifir maður til þess að koma sem
best hugmyndum sínum á framfæri. Ég nota
mikið klassískar aðferðir og geng alltaf út
frá teikningu. Hugmyndin og tæknin eru
mjög samofin hjá mér og hluti hvort af öðru.
Hjá mér er teikningin alltaf grunnurinn og
síðustu ár hef ég leyft henni að flæða meira.
Þannig leysi ég myndefnið enn frekar upp
og innri kjarni verksins kemur betur í ljós.“
Mikið er um konur í verkum Kristínar og
hafa opinskáar myndir hennar af kynfærum
kvenna vakið athygli. „Rödd kvenna í listum
hefur í margar aldir verið þögguð niður og
ég var búin að fá mig fullsadda á sýn karla í
gegnum listasöguna á konur og kvenlíkam-
ann. Fátt er útjaskaðra, ofnotaðra og mis-
notaðra en þetta litla svæði á líkamanum en
um leið er svæðið tákn fyrir eitt það helg-
asta sem manneskjan býr yfir og opinberar
varnarleysi hennar. Hér gildir það sama í
verkum mínum sem og í lífinu; að standa
með því sem er og segja satt. Sem betur fer
hafa margar myndlistarkonur haslað sér völl
í samtímalist en mér sýnist þó ekki veita af
því að konur haldi vöku sinni, standi saman
og hver með sjálfri sér og gefi sér eitt stórt
já!“ segir Kristín en hún verður með lista-
mannsspjall í Flóru föstudaginn 4. júlí.
KRISTÍN GUNNLAUGSDÓTTIR OPNAR SÝNINGU Í FLÓRU Á AKUREYRI
Kjarninn er að vera manneskja
SÝNING KRISTÍNAR GUNNLAUGS-
DÓTTUR Í FLÓRU Á AKUREYRI VERÐ-
UR OPNUÐ 14. JÚNÍ. ÞAR ERU BÆÐI
NÝ OG NÝLEG VERK EFTIR HANA.
Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir gith@mbl.is
Kristín Gunnlaugsdóttir við eitt verka sinna.
Morgunblaðið/Ernir
Helgi Björnsson söngvari, leikari og hestamaður, segir stemningu á tónleikum hjá Reiðmönnum vindanna líkjast stemningunni í hesthúsinu.
Morgunblaðið/Styrmir Kári