Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.06.2014, Side 59
15.6. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59
Fredrik Backman sló í gegn
með fyrstu skáldsögu sinni,
Maður sem heitir Ove, sem var
bæði hjartnæm og fyndin. Það
kemur því ekki á óvart að ný
skáldsaga hans, Amma biður að
heilsa, skuli fara rakleitt í fyrsta
sæti metsölulista Eymundsson
strax við útkomu.
Aðalpersóna bókarinnar er
hin sjö ára gamla Elsa, sem býr í
fjölbýlishúsi með mömmu sinni
og afar óvenjulegri ömmu. Íbú-
arnir í fjölbýlishúsinu búa yfir
alls kyns örlagasögum sem litla
stúlkan flækist fljótlega í og við-
burðarík atburðarás fer af
stað. Bókin fékk mjög góðar
viðtökur í heimalandinu og
virðist sömuleiðis ætla að njóta
vinsælda hér á landi.
Backman á
toppnum
Blómin á þakinu var
nýlega endurprentuð á
fjölda tungumála. Bókin,
sem er sívinsæl meðal
bæði Íslendinga og ferða-
manna, kom fyrst út árið
1985, en höfundur texta
er Ingibjörg Sigurð-
ardóttir og Brian Pilk-
ington myndskreytti af
alkunnu listfengi. Bókin
var unnin á filmum eins
og tíðkaðist á þeim tíma
en síðan var hætt að
prenta eftir þeim og film-
urnar glötuðust þegar
prentsmiðja úti í heimi
fór á hausinn. Hluti af
myndunum var til en eitt-
hvað var glatað og annað
upplitað og þar sem Bri-
an vill ekki senda neitt frá sér sem ekki er full-
komið tók hann tók sig til og endurgerði hluta
af myndunum í bókinni. Fæstir munu taka eftir
því að sumar myndirnar
eru nýjar en þó leyfir
listamaðurinn sér að
breyta litlum smáat-
riðum sem glöggir les-
endur munu kannski taka
eftir. Það er til dæmis
kominn nýr blómavasi á
kommóðuna hennar
Gunnjónu í sveitinni og
fleira af þessu tagi.
Blómin á þakinu fjallar
um Gunnjónu, sem
ákveður að flytja úr
sveitinni sinni. Hana lang-
ar að upplifa hvernig er
að búa í borg. Í blokkinni
sem hún flytur í býr for-
vitinn krakki sem fylgist
með því hvernig henni
gengur að aðlagast borg-
arlífinu. Það gerir hún á sinn hátt og á end-
anum er borgaríbúðin orðin nógu sveitaleg til
að henni líði vel þar.
Blómin á þakinu er bók sem nýtur vinsælda
bæði meðal Íslendinga og útlendinga.
BRIAN ENDURGERIR MYNDIR
Þarf ég að deyja ef ég vil ekki
lifa? er bók eftir Óttar Guð-
mundsson geðlækni. Þar segir
hann sögu sjálfsvíga og gerir
grein fyrir tilfinningum og
vandamálum þeirra sem svipta
sig lífi eða gera tilraun til þess.
Hann nýtir sér eigin reynslu til
að skyggnast inn í sálarlíf þeirra
sem staðið hafa í þeim sporum
að vilja ekki lifa lengur. Óttar
býr yfir mikilli þekkingu á þessu
málefni sem hann miðlar hér í
hispurslausri umfjöll-
un.
Óttar skrifar
um viðkvæm
og erfið mál
Sumarsmellur,
rómantík og
viðkvæm mál
NÝJAR BÆKUR
HÖFUNDUR OVE SENDIR FRÁ SÉR NÝJA SKÁLD-
SÖGU SEM GÆTI ORÐIÐ SUMARSMELLUR.
NORSKUR HÖFUNDUR SKRIFAR UM LANDNÁM
NORÐMANNA Á ÍSLANDI. ÓTTAR GUÐMUNDS-
SON LÆKNIR SKRIFAR UM SJÁLFSVÍG. RÓMAN-
TÍKIN BLÓMSTRAR SÍÐAN Í NÝRRI BÓK EFTIR
JOJO MOYES.
Síðasta orðsending elskhugans eftir
breska metsöluhöfundinn Jojo Mo-
yes er líkleg til að heilla þá sem vilja
lesa afþreyingarbækur þar sem ást-
in er í forgrunni. Jennifer Stirling
missir minnið og þekkir ekki eig-
inmann sinn. Svo finnur hún
ástríðufullt bréf frá karlmanni sem
biður hana um að fara frá mann-
inum sínum. Þetta er lipurlega
skrifuð bók um ástir og örlög.
Ástríðufull bréf
frá elskhuga
Í bókinni Landnámsmenn úr landnorðri bregður Alf
Ragnar Nielssen, prófessor og sagnfræðingur, nýju
ljósi á landnámssöguna og sýnir fram á að hartnær
þriðjungur þeirra landnámsfjölskyldna sem getið er í
fornum íslenskum heimildum hafi komið frá Norð-
ur-Noregi. Hann greinir frá uppruna þeirra, hvaðan
þær komu og hvar þær settust að á Íslandi. Jón Þ.
Þór sagnfræðingur er þýðandi verksins.
Landnámssagan
í nýju ljósi
* Sannkristið fólk sættir sig við hvað semer, jafnvel miðlungsgóðan skáldskap.Oscar Wilde BÓKSALA 4.-10. JÚNÍ
Allar bækur
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Amma biður að heilsaFredrik Backman
2 Frosinn - þrautirWalt Disney
3 Iceland Small World - lítilSigurgeir Sigurjónsson
4 ÖngstrætiLouise Doughty
5 PiparkökuhúsiðCarin Gerhardsen
6 Síðasta orðsending elskhugansJojo Moyes
7 Gæfuspor - gildin í lífinuGunnar Hersveinn
8 Bragð af ástDorothy Koomson
9 Skrifað í stjörnurnarJohn Green
10 Stjörnurnar á HM 2014Illugi Jökulsson
Kiljur
1 Amma biður að heilsaFredrik Backman
2 ÖngstrætiLouise Doughty
3 PiparkökuhúsiðCarin Gerhardsen
4 Síðasta orðsending elskhugansJojo Moyes
5 Bragð af ástDorothy Koomson
6 Mamma segirStine Pilgaard
7 LífsmörkAri Jóhannesson
8 Þessi týpaBjörg Magnúsdóttir
9 Eða deyja ellaLee Child
10 AndófVeronica Roth
MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR
Koma tímar, koma ráð.
Það er ævinlega ánægjulegt þegar nýjar bókabúðir eru opnaðar. Nýlega var opnuð ný Ey-
mundsson-verslun í miðbænum, á Laugavegi 77 þar sem Landsbankinn var með aðsetur.
Bókabúðin er hin notalegasta, þar eru seldar bækur, tímarit, gjafa- og ferðamannavörur og til
stendur að opna kaffihús von bráðar.
„Búðin er hefðbundin bókabúð með þær vörur sem Penninn selur. Áherslan verður meira
á ferðamannavörurnar á sumrin og meiri á bækurnar á veturna,“ segir Borgar Jónsteins-
son rekstrarstjóri verslunarsviðs hjá Pennanum-Eymundsson. „Verslunin var opnuð um síð-
ustu helgi og þangað komu fleiri hundruð manns. Viðtökur hafa verið gríðarlega góðar. Þetta
fer því mjög vel af stað.“
NÝ BÓKABÚÐ Á LAUGAVEGI
Bækur og gjafav-
ara í nýrri verslun
Eymundsson.