Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.06.2014, Síða 2
Í fókus
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.6. 2014
Svar: Ég er með svolítið óspennandi svar.
Það er óákveðið. Það er bara ekkert búið að
ákveða.
Bryndís Jónasdóttir 35 ára
Svar: Ég ætla að reyna að fara í einhverjar
útilegur – bara yfir helgi til að komast burt úr
bænum, helst að fara á einhverjar bæjar- eða
tónlistarhátíðir.
Gígja Haraldsdóttir 23 ára
Svar: Ég er ólétt og á von á mér í september
þannig að það verður lítið um ferðalög þetta
sumarið.
Emilia Krajewska 34 ára
Útgefandi Óskar Magnússon
Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Svar: Ég ferðast almennt ekki mikið því ég
vinn erlendis. Ég var bara að koma heim og
stoppa í þrjár vikur, svo fer ég aftur út en
kem aftur heim í haust.
Kristján Elíasson 63 ára
Morgunblaðið/Ómar
SPURNING DAGSINS ÆTLAR ÞÚ AÐ FERÐAST Í SUMAR?
Fjöldi almenningshlaupa og þrí-
þrautarkeppna fer fram í júlí-
mánuði um land allt. Hlaupa-
dagatal er inni í blaðinu til að
auðvelda hlaupurum yfirsýn.
Tilvalið að klippa út og skella á
ísskápinn. Heilsa 24
ÚR BLAÐINU
FARGJÖLD HJÁ STRÆTÓ
Heimild: Ársreikningar Strætó bs. (rekstrartekjur vegna fargjalda).
2009 2011 20132008 2010 2012
675
m. kr.
753
m. kr.
820
m. kr.
1.015
m. kr.
1.277
m. kr.
1.422
m. kr.
Hverju mega gestir eiga
von á í Sirkus Íslands? Ná-
kvæmlega öllu því sem fólki dettur í
hug þegar það hugsar um sirkus og
meira til: loftfimleikar ýmis konar,
trúðar, kastlistir, húllahringir,
áhættuatriði, grín... og það í alvöru
sirkustjaldi. Nema dýr, við erum
ekki með dýr.
Hvernig hljómar sumarið
hjá Sirkus Íslands? Við erum
spennt og sýningarnar eru klárar.
Þetta er sögulegt sumar í Ís-
landssögunni, fyrsta farands-
irkussumarið.Daglegt líf er að
taka á sig mynd, við erum að læra
á hvað maður gerir mikið af mat
fyrir 20 sirkuslistamenn og hvað við
erum lengi að koma tjaldinu upp og niður
og fylla það af dótinu okkar.
Er tjaldið eign ykkar eða þjóð-
arinnar sem hjálpaði ykkur að
kaupa það? Þjóðin hjálpaði okkur að
kaupa það - og þeir sem styrktu það voru í
raun að kaupa sér miða á sýningarnar okk-
ar.
Þú tókst þátt í ritsmíðum unga
fólksins 1999 og lentir í öðru sæti.
Semur þú enn? Ó guð, versta ljóð í heimi.
Held að við höfum bara þrjár í verðlaunasæt-
unum tekið þátt. Ég sem ekki... ekki svona upp-
úr mér. Ég skrifa mikið, t.d. pistla fyrir Kjarn-
ann, spurningar fyrir Gettu betur og
fréttatilkynningar fyrir sirkusinn. Heyrðu, jú,
feisbúkkstatusa. Ég sem þá.
Svo saumaðir þú eftirminnilegan
kjól í hönnunarkeppni grunnskól-
MARGRÉT ERLA MAACK
SITUR FYRIR SVÖRUM
Hvorki tími né
áhugi á HM
anna, kennir magadans,
hefur verið fararstjóri á
vegum CISV samtakanna,
sjónvarpsstjarna og ým-
islegt fleira. Er eitthvað
sem þú getur ekki? Ég get
ekki spilað á hljóðfæri, en það er vel
hægt að læra það síðar. Amma Erla
byrjaði að læra á píanó upp úr sjö-
tugu.
Horfir þú á Heimsmeist-
aramótið í fótbolta?
Það er hvorki tími fyrir slíkt né
áhugi. Ég er meira fyrir það leika mér
sjálf en að horfa á annað fólk leika sér, sér-
staklega á björtum og fögrum sumardögum og
-kvöldum. Svo er svo andskoti mikið af mann-
réttindabrotum í kringum þetta að ég get ver-
ið með prinsippástæður líka fyrir að taka ekki
þátt í þessu. Fótboltar, fótboltaskór og fleira
fótboltatrums er t.d. framleitt með barna-
þrælkun.
Forsíðumyndina vann
Elín Ester
Myndlistarfólkið Berg-
ur og Helena eiga list-
rænt og litríkt
heimili í Litla Skerja-
firði í Reykjavík. Þau
bjóða lesendum að líta
inn á heimili sitt þar sem þau
hafa raðað inn hlutum sem
veita þeim innblástur.
Heimili 28
Stuttbuxur eru vonandi
þarfaþing í sumar. Þær þarf
að velja af kostgæfni og gæta
sérstaklega vel að því að
stærðin sé rétt og síddin henti.
Tíska 42
Da Vinci lykillinn og
Lygi eru meðal
uppáhaldsbóka Pét-
urs Jóhanns Sig-
fússonar grínista.
Sem krakki hélt hann
mest upp á Sval og
Val og. Bækur 58
Sirkus Íslands hefur verið starfræktur síðan haustið
2007. Í sumar sýnir sirkusfólkið í Reykjavík, Reykja-
nesbæ, á Ísafirði, Akureyri og Selfossi en lengd íslenska
sumarsins og barneignir sirkusstjórans, Lee Nelson,
takmörkuðu lengd ferðarinnar í ár svo sirkusinn kemst
ekki austur eða á Vesturland. Þúsundþjalasmiðurinn
Margrét Erla Maack er hluti af Sirkus Íslands.