Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.06.2014, Qupperneq 47

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.06.2014, Qupperneq 47
fáeinar vikur á sumri á Klambratúni austanverðu. Engum útbelgdum oflátungi datt þá í hug rasismi af því tilefni (þótt sígaunar væru sagðir í sirkusnum) og enn síður vegna Hallgrímskirkju, enda vissu slíkir menn þá varla hvað orðið rasismi þýðir. Komi í ljós að einhverjir mótmæli lóðarúthlutun vegna andstöðu þeirra við trúarskoðanir þess hóps sem í hlut á mættu borgaryfirvöld ekki að lögum láta mótmæli þeirrar gerðar hafa áhrif á ákvarðanir sínar nema sýnt væri fram á að um ólögmæta starfsemi væri að ræða. Slík mótmæli myndu því engu breyta. Lítið mál og stærri Þetta litla mál sem blásið var svona upp er auðvitað þegar úr sögunni. En fjaðrafokið í kringum það leiðir hugann að öðru. Á örfáum árum hefur orðið stórkost- leg breyting á Vesturlöndum vegna þess hve stórir hópar innflytjenda hafa komið þangað. Sú heimska að reyna að banna umræður um eina mosku veldur engum varanlegum skaða. En það gæti verið um- hugsunarefni að fyrrnefnd breyting á vestrænum þjóðfélögum hefur orðið án þess að nokkur umræða færi fram áður en sú þróun hófst eða á meðan á henni stóð. Óttinn við ásakanir um kynþáttafordóma, næsta bæ við nasisma, tryggði hið algjöra umræðu- leysi. Fyrrum tiltölulega einsleit þjóðfélög, svo sem norrænu þjóðirnar, eru orðin allt önnur en þau voru. Yfirvöld viðkomandi landa ýttu undir að þannig færi án nokkurs viðtals við sitt fólk. Þjóðir sem vegna einsleitni höfðu búið við sömu eða svipaðar hefðir og siðvenjur öldum saman stóðu skyndilega og óspurðar frammi fyrir allt öðrum aðstæðum. Nú fer því fjarri að hafið sé yfir vafa að þjóðum sé endilega hollast að vera einsleitar og þétttengdar um venju, siði, trúarafstöðu, mataræði eða hvað annað sem menn vilja tína til. Fjölmargt bendir beinlínis til annarrar niðurstöðu. Nýtt blóð, aðrir og ekki síðri eðliskostir, heilbrigð blöndun og fjölbreyttari viðhorf geta sannarlega verið eftirsóknarverðir og bætandi kostir. Þær þjóðir eru til og ekki fáar sem líta á sig í senn sem eina þjóð og sem innflytjendaþjóðir. Þang- að hefur fólk flutt í leit að nýjum tækifærum og betri lífsskilyrðum og verið boðið velkomið. Stundum hefur komufólkið verið aðþrengt vegna lélegra landkosta í sínu gamla heimalandi en einnig margir af stjórnmálalegum eða trúarlegum ástæðum. Banda- ríkin, Kanada og Ástralía eru nærtæk dæmi. Þessi lönd áttu það að vísu sameiginlegt að landflæmi voru þar mikil og stjórnvöldum var kappsmál að fjölga þar fólki svo að nýta mætti landkosti (og því miður um leið ganga á rétt „frumstæðs fólks“ sem fyrir var, sem er önnur saga) og tryggja öryggi og varnir. Þessi lönd byggðu beinlínis á innflytjendastefnu og fylgdu henni fast eftir. Þau sóttust eftir innflytjendum. Þau sendu jafnvel „agenta“ til annarra álfa til að hvetja fólk til að koma og kölluðu sumir gylliboð. Úr inn- flytjendaáhuganum hefur þó dregið í flestum þessara landa nú, eins og umræðan í Bandaríkjunum sýnir, enda aðstæðurnar orðnar aðrar. Staðan t.d. á Norðurlöndum var allt önnur. Þar skall á óvænt alda innflytjenda sem ekki hafði verið kallað sérstaklega eftir. Flest bendir til að í byrjun hafi menn verið jákvæðir gagnvart þessari þróun. Sumir halda því fram að meðan hlutfall innflytjenda og sýnileiki þeirra sé innan tiltekinna marka sé þeim vel tekið en spurningar vakni síðar. Ísland hafði fyrstu þúsund ár sögu sinnar sýnt að þar náðist vart að brauðfæða fleiri en 70 þúsund manneskjur. Þess vegna flutti stór hópur fólks til Kanada á síðasta fjórðungi 19. aldar, þegar harðindi voru. Þetta hefur breyst og síðustu árin hefur tekist að byggja upp vel- ferðarkerfi á undra stuttum tíma sem er í fremstu röð í heiminum og þess vegna eftirsótt. Í Svíþjóð, Noregi og Danmörku hafa mjög stórir hópar inn- flytjenda með framandi siði sest að á örfáum áratug- um. Óöldin á Balkanskaganum þrýsti á skjóta opnun fyrir hrjáða þaðan og síðan önnur atvik og loks al- menn vanþróun víða um heim. Skyndilega er þannig komið að þjóðfélögin hafa tekið miklum breytingum. Óviðráðanlegt? Allt hefur þetta gerst án þess að opin og öfgalaus umræða hafi farið fram um þá framvindu og þýðingu hennar. Sömu sögu er að segja á meginlandi Evrópu. Menn muldra um það sín á milli hvor hópurinn eigi að laga sig fremur að háttum hinna, sá sem kemur eða hinn sem fyrir er. Aðrir muldra á móti að farsæl- ast sé að fjölmenningarþjóðfélagið fái að njóta sín. Það má vel vera rétt. Ekki er þó öllum ljóst hvað í slíku felst né hvaða kröfur sú stjórnskipulega for- skrift gerir til þeirra sem fyrir eru. Umræðuskort- urinn (þöggunin) getur gengið um nokkra hríð. En hætt er við að upp úr sjóði síðar og að stjórn umræð- unnar færist þá til þeirra sem vanstilltastir eru á öll- um köntum hennar. Og verst verður það ef hún brýst út í ofsa, þegar menn taka að gera sér grein fyrir því að það sé í raun orðið of seint að bregðast við. Þá þykjast margir illa sviknir. Og þá eiga lýðskrum- ararnir leikinn. Ekki þarf að efast um að rétttrúnaðarmennirnir sem misstu sig út af litla moskumálinu eru vel mein- andi. Enn minni vafi er á að þeir eru einlæglega sannfærðir um að þeir búi yfir ríkari réttlætiskennd en „hinir“. Þess vegna bannfæra þeir umræðu sem telst ekki vera innan þeirra marka sem þeir sjálfir ákveða. Óþarfi er að nefna til sögunnar hugtakið sem forðum var notað yfir slíka menn. Einatt gefa menn sér alls konar firru sem enginn fótur er fyrir. Þeir sem orði að farsælla hefði verið að meta í tíma hversu mikinn fjölda nýrra innflytjenda þjóð réði við í senn, svo vel færi, hljóti að vera á móti útlend- ingum, jafnvel útlendingahatarar. Þeir sömu séu jafnvel á móti ættleiðingum barna frá útlöndum, sem iðulega hafa verið óþarfar hömlur á. Þeir hrópa ókvæðisorð vilji einhver að sæmilega ljóst sé hvort flóttamenn sem hingað sækja séu raunverulega flóttamenn. Ef ekki má ræða það er auðvitað best að fella þá skilgreiningu niður og hafa alla innflytjendur undir sama hatti. Hættan er sú að þegar bann æðstu klerka rétttrúnaðarkirkjunnar gegn opinberri um- ræðu loksins springur geri umræðan, sem áður var svo þörf, meira ógagn en gagn og öfgarnar yfirtaki hana. Ragnhildur Kolka segir í eftirtektarverðri grein í síðasta hefti Þjóðmála: „Nú er svo komið að innflytj- endavandamál eru að vaxa flestum vestrænum þjóð- um yfir höfuð.“ Þetta vita flestir sem fylgjast með. En það er samt merkilegt að þetta sé sagt upphátt og það í íslensku tímariti. Eru allir rétttrúnaðmenn í sumarleyfi? Af hverju hrópar enginn þeirra „ómerkilega rasistakerl- ing,“, sem þeim þykir boðleg röksemd, nema þegar þeir eru staðnir að verki. Morgunblaðið/RAX 29.6. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 47
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.