Morgunblaðið - 22.10.2014, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
SVIÐSLJÓS
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Nauðsynlegt er að Rögnunefndin
svonefnda fái frið til þess að ljúka
störfum áður en teknar eru óaftur-
kræfar ákvarðanir í skipulagsmálum
sem hafa áhrif á hæfi Reykjavíkur-
flugvallar. Þetta var kjarninn í máli
frummælenda á fundi sem Hjartað í
Vatnsmýrinni stóð fyrir á Hótel Nat-
ura, gamla Loftleiðahótelinu, í gær-
kvöldi.
Fundurinn var vel sóttur og þurftu
margir að standa meðfram veggjum
meðan á fundinum stóð. Lýsti Friðrik
Pálsson fundarstjóri yfir mikilli
ánægju með þann áhuga sem fólk
hefði sýnt málefninu, en einnig var
hægt að fylgjast með fundinum á net-
inu.
Gegn anda samkomulagsins
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri
Icelandair Group, var fyrstur á mæl-
endaskrá. Minnti hann á það að hinn
25. október 2013, eða fyrir nærri því
ári, hefði verið ritað undir samkomu-
lag á milli ríkisins, Reykjavíkurborg-
ar og Icelandair um framtíð innan-
landsflugsins og flugvallarins. Skipuð
var nefnd til að fjalla um flugvöllinn
og Ragna Árnadóttir, aðstoðarfor-
stjóri Landsvirkjunar, veitir henni
forstöðu.
Sagði Björgólfur að boðaðar breyt-
ingar á deiliskipulaginu við Hlíðar-
enda myndu hafa áhrif á flugvöllinn,
bæði hvað varðaði nýtingu hans og
flugöryggi. Skipti það Icelandair
Group miklu máli að flugvöllurinn
yrði áfram starfræktur, bæði hvað
varðaði innanlandsflug og millilanda-
flug, þar sem flugvöllurinn gegndi
hlutverki varaflugvallar.
Björgólfur sagði að yrði fram-
kvæmdaleyfi Valsmanna gefið út
myndi það óhjákvæmilega leiða til
hindrunar á brottflugi og aðflugi inn
á neyðarbrautina og gera hana ónot-
hæfa. Flugvöllurinn yrði þá um leið
með verri nýtingarstuðla og minna
öryggi. „Verði þessi framvinda stað-
fest finnst mér það brjóta gegn anda
samkomulagsins sem gert var fyrir
ári,“ sagði Björgólfur sem hvatti til
þess að Rögnunefndin fengi að klára
störf sín og lagði jafnframt til mála-
miðlun að ef ekki yrði komist hjá
framkvæmdum að haga þeim þannig
að hægt yrði að halda neyðarbraut-
inni opinni.
Lokað í 22 daga á ári
Aðrir frummælendur voru þeir
Bergur Stefánsson, yfirlæknir og for-
maður fagráðs um sjúkraflutninga,
Leifur Magnússon verkfræðingur og
Sigurður Ingi Jónsson, fyrrverandi
formaður Flugmálafélags Íslands.
Kom fram í máli Leifs að sam-
kvæmt skýrslu sem unnin hefði verið
árið 2001 myndi nýtingarhlutfall vall-
arins falla úr um 98% niður í 93% við
lokun neyðarbrautarinnar, eða sem
svaraði 22,6 dögum á ári í stað um 6
nú, eða sem nemur um 16 dögum á ári
til viðbótar sem völlurinn væri ónot-
hæfur.
Sigurður Ingi benti á í sínu máli að
Reykjavíkurflugvöllur væri í stöðugri
notkun sem varaflugvöllur. Varaflug-
vellir væru eins og öryggisbelti sem
væru í notkun, jafnvel þótt ökuferðin
hefði ekki endað illa.
Rögnunefndin fái frið
Fjölmennur fundur Hjartans í Vatnsmýrinni í gærkvöldi Framkvæmdaleyfi
Valsmanna gerir neyðarbrautina ónothæfa, sagði forstjóri Icelandair Group
Morgunblaðið/Golli
Flugvallarvinir Fullt var út úr dyrum á fundinum á Hótel Natura í gærkvöldi. Meðal fundargesta var Ragna Árnadóttir sem er hér fyrir miðju.
Ekkert er að
þokast í sam-
komulagsátt í
deilu Lækna-
félags Íslands og
ríkisins, að mati
Þorbjörns Jóns-
sonar, formanns
Læknafélagsins.
Samningafundur
sem boðaður var
hjá Ríkissáttasemjara í gær stóð að-
eins í hálftíma. Annar fundur hefur
verið boðaður á morgun. Skurð-
læknar hitta viðsemjendur í dag.
Verkfallsaðgerðir lækna hefjast
á mánudag, hafi samningar ekki
tekist fyrir þann tíma.
Lítil hreyfing í kjara-
viðræðum lækna
Þorbjörn Jónsson
Sala á kindakjöti
á innanlands-
markaði í sept-
ember var tæp-
um 270 tonnum
minni en í sept-
ember á síðasta
ári. 1.060 tonn
seldust á móti
1.328 tonnum í
sama mánuði í fyrra og svarar sam-
drátturinn til 20%. Sölutölurnar
eru birtar á vef Landssambands
sauðfjárbænda. Sala á kindakjöti
hefur minnkað á árinu. Ef litið er til
síðustu þriggja mánaða er salan
11,5% minni en á sama tíma fyrir
ári og 9,2% minni ef miðað er við
tólf mánaða tímabil. helgi@mbl.is
20% samdráttur
í sölu kindakjöts
Mjólkursamsalan
telur að úrskurð-
ur Samkeppnis-
eftirlitsins um að
MS hafi misnotað
markaðsráðandi
stöðu sína bygg-
ist á nýrri og for-
dæmalausri túlk-
un á búvöru-
lögum. Það leggur MS til
grundvallar kæru sinni til áfrýj-
unarnefndar samkeppnismála þar
sem þess er krafist að niðurstaðan
verði ógilt og sektargreiðsla felld
niður. Auk þess telur MS að stór-
felldir annmarkar séu á máls-
meðferð og ættu þeir að leiða til
niðurfellingar. Ella setji niðurstaða
eftirlitsins samstarf um kostn-
aðarlækkun í mjólkuriðnaði í upp-
nám.
Telja úrskurð byggj-
ast á nýrri túlkun
Bergur Stefánsson, yfirlæknir
utanspítalaþjónustu og formað-
ur fagráðs sjúkraflutningaráðs,
fór yfir áhrif lokunar neyðar-
brautarinnar á sjúkraflug. Sagði
Bergur að um 500 ferðir væru
farnar í sjúkraflugi á hverju ári,
um tveir þriðju af þeim til
Reykjavíkurflugvallar. Þar af
væru á bilinu 120-170 flugferðir
þar sem brýnt væri að koma
fólki undir læknishendur sem
fyrst. Væri neyðarbrautinni lok-
að mætti gera ráð fyrir að 12
ferðir féllu niður á hverju ári í
sjúkraflugi. Það þýddi ekki endi-
lega að líf lægi við í hverju til-
felli, en gæti þó þýtt að töfin ylli
varanlegum skaða.
12 ferðir
féllu niður
ÁHRIF Á SJÚKRAFLUG
Formaður Félags tónlistarskóla-
kennara sagði á baráttufundi fé-
lagsins í gærkvöldi að það hefðu
verið vonbrigði að samningar hefðu
ekki tekist í gær. Sigrún Grendal
sagðist þó „trúa því að þetta verk-
fall verði mjög stutt“.
Samningafundi Félags tónlistar-
skólakennara og Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga lauk upp úr
klukkan hálfsjö í gærkvöldi, án
samninga. Ekki var boðað til nýs
samningafundar og því ljóst að
boðað verkfall tónlistarskólakenn-
ara hæfist á miðnætti.
Tekur undir áhyggjurnar
Dagur B. Eggertsson, borgar-
stjóri í Reykjavík, sagðist ánægður
með að heyra hvað formaður tón-
listarskólakennara væri bjartsýnn
en lýsti yfir vonbrigðum með það
að samningar hefðu ekki náðst.
Dagur sagði áhyggjurnar vera af
stöðu kjaraviðræðna annars vegar
og af stöðu tónlistarskólanna hins
vegar. „Ég get ekki leynt því að ég
tek undir áhyggjurnar,“ sagði
hann. Þá sagði hann þá kröfu að
tónlistarkennarar væru bornir
saman við aðra kennarahópa sann-
gjarna. Salurinn fagnaði við þessi
orð.
Kaldalónssalur Hörpu var þétt
setinn tónlistarkennurum og stuðn-
ingsmönnum þeirra og var áætlað
að um 200 manns væru þar. Yf-
irskrift fundarins var: Er tónlistin
minna virði í dag? Fjallað var um
gildi tónlistarmenntunar.
Um 550 félagar eru í Félagi tón-
listarskólakennara, frá um áttatíu
tónlistarskólum um allt land. Hluti
þeirra er í stjórnunarstöðum en al-
mennir tónlistarkennarar og milli-
stjórnendur taka þátt í verkfallinu,
alls um 500 manns.
if@mbl.is, helgi@mbl.is
Vonast eftir því að
verkfall verði stutt
Borgarstjóri tekur undir áhyggjur
Ný Breiðafjarðarferja sem leysa
mun Baldur af hólmi var tekin í
slipp í Reykjavík í gær. Pétur
Ágústsson, skipstjóri og fram-
kvæmdastjóri Sæferða, segir að
skipið verði málað og eitt og annað
lagfært. Stærsta verkið í þessari
slipptöku er þó líklega að setja
vörukrana í skipið. Það er til að
geta þjónað viðkomustaðnum Flat-
ey. Skipið fer til siglinga á Breiða-
firði um leið og viðgerð lýkur og
vonast Pétur til að það verði um
eða fljótlega upp úr mánaðamótum.
Skipið er stærra en Baldur og
meira pláss fyrir bíla. Það hefur
vantað bæði sumar og vetur. Sér-
staklega nefnir Pétur að búist sé
við auknum vöruflutningum með
nýja Baldri. helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ný Breiðafjarðarferja fær
andlitslyftingu í slippnum
Í slipp Unnið er að viðgerðum á nýju Breiðafjarðarferjunni.
Norðanhvellurinn sem gekk yfir
landið truflaði samgöngur víða um
land í fyrrinótt og í gærmorgun.
Hálka eða hálkublettir eru víða á
vegum.
Mikil hálka var á götum á höfuð-
borgarsvæðinu. Ástandið var verst
í Kópavogi þar sem ekki var byrjað
að salta eða sanda fyrr en um
klukkan átta. Strætó gekk ekki um
hverfi bæjarins vegna ófærðar í
gærmorgun og fólk var lengi að
koma sér á milli staða.
Tvær rútur fuku út af fjallvegum
en ekki er vitað til að slys hafi orðið
á fólki. Björgunarsveitir voru víða
kallaðar út til aðstoðar fólki sem
lenti í vandræðum vegna óveðurs.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hálka Vandræði urðu á Elliðavatnsvegi í
Kópavogi í gærmorgun.
Samgöngur úr
skorðum í hálku