Morgunblaðið - 24.10.2014, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 2014
Athygli er vakin á að á skattur.is er boðið
upp á sjálfsafgreiðslu og á rsk.is er hægt að
nálgast ýmsar upplýsingar um skattamál.
Beðist er velvirðingar á þeimóþægindum
semþetta kann að valda.
Lokað ídag!
Föstudaginn24. október
er lokaðhjá ríkisskattstjóra
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Margur torkennilegur fuglinn hefur sést þessar vik-
urnar á Íslandi, eins og jafnan gerist á þessum árs-
tíma. Eru þar á ferðinni gestir frá útlöndum, aðallega
Evrópu, sem borist hafa með kröppum lægðum yfir
Atlantsála og norður hingað, á leiðinni úr varpheim-
kynnum sínum og yfir á vetrarslóðir sunnar í álfunni.
Einn sá algengasti er þessi á meðfylgjandi ljós-
mynd, sem tekin var á Siglufirði. Þetta er hettusöngv-
ari, karlfugl. Hann er á stærð við auðnutittling og var
áður fyrr gjarnan nefndur munkur, af hettunni sinni.
Samkvæmt gamla íslenska misseristalinu fer haustinu
senn að ljúka. Fyrsti vetrardagur heilsar á laugardag,
25. október. Eru landsmenn hvattir til að aðstoða
smáfuglana þegar jarðbönn eru, kasta einhverju æti-
legu til þeirra, hrakningsfugla sem innlendra stað-
fugla.
Það eru komnir gestir
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Margur torkennilegur fuglinn hefur sést á landinu síðustu vikurnar
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Bændur hafa fengið eindregna og
sterka hvatningu til að bregðast við
stækkandi markaði. Þeir gera það
með þessum hætti,“ segir Baldur
Helgi Benjamínsson, framkvæmda-
stjóri Landssambands kúabænda.
Mjólkurframleiðslan hefur aukist
mikið síðustu mánuði og misseri.
Í september var innvegin mjólk
10,6 milljónir lítra á móti 8,8 millj-
ónum í september í fyrra. Aukningin
er tæpar 1,8 milljónir lítra sem svar-
ar til 20,4%.
Öll mjólkursamlög landsins hafa
tekið á móti 130,7 milljónum lítra síð-
ustu tólf mánuði, 6,55% meira en árið
á undan. Mjólkurframleiðslan hefur
ekki verið jafn mikil á tólf mánaða
tímabili í áratugi.
Mest áhersla er lögð á fituhluta
mjólkurinnar enda er mesta sölu-
aukningin í fituríkum afurðum.
Baldur segir að um 13% aukning sé í
framleiðslunni á fitugrunni og hald-
ist hún stöðug.
Ekkert lát er á aukningu í sölu.
Umreiknað í fitu nemur aukningin
um 6,5% á síðustu tólf mánuðum.
Stærri bú auka við sig
Miðað við þær upplýsingar sem
Baldur hefur um sæðingu kúa eru
líkur á að framleiðslan haldi áfram af
talsverðum krafti næstu mánuði. Á
nýafstöðnum haustfundum Lands-
sambands kúabænda kom fram að
stærri búin eru að auka meira við sig
en þau minni. Baldur nefnir að um
fjórðungur búanna standi undir um
þremur fjórðu af aukningunni.
Kemur að mörkum
Á næsta ári verður enn aukið við
greiðslumarkið og bændur verða að
auka framleiðsluna til að halda í við
það. Baldur tekur undir þau orð að
bændur hafi ekki ótakmarkað svig-
rúm til aukningar. Einhvern tímann
komi að þeim mörkum að menn þurfi
að fjárfesta. Nokkrir eru að byggja
ný fjós. Hann segir þó að enn megi
ná betri árangri og aukinni fram-
leiðslu með breyttum vinnubrögðum
á búunum.
Met í mjólkurframleiðslu
Mjólkurinnlegg jókst um fimmtung í september miðað við sama mánuð í fyrra
Bændur bregðast við stækkandi markaði Sala á fituríkum afurðum eykst
Morgunblaðið/Eggert
Í fjósi Kýrnar þurfa að mjólka
meira til að landinn fái mjólk.
Starfsfólk á Landspítala hefur æft viðbrögð við því ef ein-
staklingur sýktur af ebóluveiru kæmi til landsins. Í
fyrradag hófust námskeið þar sem starfsmenn fá þjálfun
í að klæða sig í veiruhelda heilgalla og setja upp veiru-
held gleraugu. Búið er að setja saman sérhæft 30 manna
teymi vegna faraldursins.
Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum hafa
verið settar upp nokkrar sviðsmyndir ef upp kemur
ebólusmit á spítalanum og í landinu. Meðal annars hefur
verið sett saman sérstakt viðbragðsteymi sem myndi
hafa það hlutverk að sinna sjúklingi sem bæri smitið. Það
teymi kom saman í gær í fyrsta skipti. Sá viðbragðshópur
þarf sérstaka þjálfun til að bregðast rétt við og með-
höndla súklinginn á réttan hátt.
Sóttvarnalæknir og Landspítali munu á næstunni
standa fyrir kennslu heilbrigðisstarfsmanna, sjúkra-
flutningamanna, lögreglu og annarra viðeigandi aðila um
rétta notkun hlífðarbúnaðar. Á vef landlæknis kemur
fram að áætlanir miði að því að reyna að flytja íslenska
ríkisborgara sem veikjast erlendis til sérhæfðra sjúkra-
húsa annars staðar á Norðurlöndum. Takist það ekki
verða veikir einstaklingar fluttir á Landspítalann með
sérútbúnum flugvélum. vidar@mbl.is
Æfa viðbrögð við ebólu
Starfsfólk LSH lærir að
klæða sig í veiruheldan galla
Morgunblaðið/Hallur Már
Ebóla Starfsmenn Landspítalans á æfingu í gær.
Hæstiréttur hef-
ur dæmt karl-
mann á fimm-
tugsaldri í sex ára
fangelsi fyrir
kynferðisbrot
gegn tveimur
börnum. Héraðs-
dómur Vestur-
lands dæmdi
hann í fjögurra ára fangelsi í maí sl.
Hæstiréttur þyngdi dóminn.
Maðurinn er jafnframt dæmdur
til að greiða 3,5 milljónir kr. í skaða-
bætur til hvors brotaþola fyrir sig.
Maðurinn var sakfelldur fyrir
kynferðisbrot gegn 15 ára stúlku,
þegar hún var 8 til 13 ára á árunum
2007 til 2012. Hann var einnig sak-
felldur fyrir kynferðisbrot gegn 19
ára systur hennar sem var 12 til 14
ára þegar brotin voru framin.
Fram kemur í dómi Hæstaréttar,
að um ákvörðun refsingar hafi verið
skírskotað til þess að maðurinn væri
sakfelldur fyrir alvarleg margendur-
tekin kynferðisbrot gegn tveimur
börnum sem staðið hefðu yfir í lang-
an tíma er hann dvaldi á heimili
þeirra. Var hann talinn hafa nýtt sér
aðstöðumun sinn og trúnaðartraust
brotaþolanna og var ekki talinn eiga
sér málsbætur.
Var refsing hans því ákveðin fang-
elsi í sex ár.
Dæmdur
fyrir kyn-
ferðisbrot
Hæstiréttur
þyngdi dóminn
Hvorki Land-
helgisgæslan né
embætti ríkislög-
reglustjóra hafa
greitt fyrir af-
hendingu MP5-
vopna. Sá kvittur
komst á kreik að
greitt hefði verið
fyrir vopnin en
báðar stofnanir
hafna því í frétta-
tilkynningu. Í tilkynningu frá ríkis-
lögreglustjóra kemur fram að norsk
sendinefnd á vegum þarlendra
varnarmálayfirvalda hafi komið til
landsins í júní í boði utanríkisráðu-
neytisins.
Sendinefndin upplýsti að rætt
hefði verið um að lögreglunni stæði
mögulega til boða að fá til eignar
MP5-hríðskotabyssur, lögreglunni
að kostnaðarlausu. Um væri að ræða
vopn sem verið væri að afleggja hjá
norska hernum. Eftir fyrirspurn og
beiðni um að fá málið til skoðunar í
Noregi fékk lögregla þær upplýs-
ingar frá Landhelgisgæslunni í jan-
úar að vopnin væru væntanleg. Lög-
reglan gæti fengið 150 stk. af MP5.
Vopnin eru hjá Landhelgisgæsl-
unni og hefur ríkislögreglustjóri
hvorki tekið við þeim né samþykkt
kaup á þeim. Embættið fékk afnot af
35 stk. við æfingar á öryggissvæðinu
á Keflavíkurflugvelli og hefur þeim
verið skilað. „Aldrei stóð til af hálfu
lögreglunnar að kaupa vopnin og
mun embætti ríkislögreglustjóra
ekki taka við vopnunum sem lögregl-
unni stóðu til boða fyrir milligöngu
Landhelgisgæslunnar, þurfi lög-
reglan að bera af því kostnað,“ segir í
tilkynningunni.
Stendur ekki til að greiða
Í tilkynningu Lanhelgisgæslunnar
kemur fram að í gildi sé tvíhliða sam-
starfssamningur milli Íslands og
Noregs frá árinu 2007 um samstarf á
sviði öryggis- og varnarmála. Land-
helgisgæslan er tengiliður við er-
lendar stofnanir á þessum vettvangi.
Á þessum grundvelli og samkvæmt
beiðni ríkislögreglustjóra til Norð-
manna hafði Landhelgisgæslan milli-
göngu um að aðstoða ríkislög-
reglustjóra í þessu máli.
„Ekki hafa farið fram greiðslur
vegna umrædds búnaðar né hefur
verið eftir þeim leitað og hefur Land-
helgisgæslan ekki haft ástæðu til að
ætla að öðruvísi verði farið með þetta
mál en önnur samstarfsmál á þessum
vettvangi,“ segir í tilkynningu LHG.
Ekki var
greitt fyr-
ir byssur
Hafa ekki sam-
þykkt kaupin
Byssur Ekki hefur
verið greitt.