Morgunblaðið - 24.10.2014, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 24.10.2014, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 2014 VERTU VAKANDI! blattafram.is 54% þolenda kynferðislegs ofbeldis verða fyrir misnotkun oftar en einu sinni. Trjáklippingar Trjáfellingar Stubbatæting Vandvirk og snögg þjónusta Sími 571 2000 | hreinirgardar.is Kápur og jakkar Kringlunni 4c Sími 568 4900 Af því tilefni er 15% afsláttur af öllum fatnaði hjá okkur fimmtudag, föstudag og laugardag Bæjarlind 6 | Sími 554 7030 | Ríta tískuverslun Ríta Bæjarlind 15 ára Nýtt kortatímabil Allar tillögur laganefndar ASÍ um breytingar á lögum sambandsins voru samþykktar í gær á 41. þingi ASÍ sem fram fer á Hilton hótelinu í Reykjavík. Veigamestu breyting- arnar voru þær að fjölga skyldi varaforsetum sambandsins um einn og áskilja eftirfylgni aðildarfélaga við reglugerð miðstjórnar við gerð ársreikninga félaganna. Nýtt embætti varaforseta Yfirgnæfandi meirihluti sam- þykkti að kosinn yrði annar vara- forseti sem gegnir störfum forseta ASÍ í forföllum hans ef fyrsti vara- forseti forfallast einnig. Annar varaforseti öðlast sæti á svokölluð- um formannafundum ASÍ sem eru vettvangur stefnumótunar og sam- ráðs aðildarfélaga á milli sam- bandsþinga. Kosið verður um emb- ætti annars varaforseta í dag. Varamönnum í miðstjórn var að sama skapi fjölgað úr ellefu í fimm- tán og var sú tillaga samþykkt sam- hljóða af þingfulltrúum. Reglugerð kynnt árið 2015 Lagabreyting er snýr að árs- reikningum aðildarfélaganna var samþykkt í gær án nokkurra vand- kvæða. Skulu aðildarfélög, við gerð ársreikninga, fara eftir reglugerð samþykktri af miðstjórn. Áður var skylt að hafa hliðsjón af viðmið- unarreglum sem settar voru árið 2003. Ennfremur var samþykkt bráðabirgðaákvæði á þinginu sem gerir ráð fyrir að téð reglugerð verði kynnt á formannafundi ASÍ árið 2015 og aðildarfélögum veittur tveggja mánaða frestur til að koma á framfæri ábendingum áður en hún verður endanlega afgreidd í miðstjórn. Þessi háttur er hafður á þar sem reglurnar eru mikilvægar og að sumu leyti skuldbindandi fyrir aðildarfélögin eins og segir í greinargerð með lagabreytingunni. Þá segir einnig að ástæða breyt- inganna sé breytt viðhorf og að- stæður í kjölfar hrunsins. laufey@mbl.is Allar tillögur samþykktar  ASÍ-þing samþykkti að fjölga varaforsetum  Reglugerð miðstjórnar um ársreikninga  Varamönnum í stjórn fjölgað Morgunblaðið/Þórður ASÍ Þingfulltrúar voru einhuga við afgreiðslu lagabreytinga. Samtök atvinnulífsins (SA) telja að tekist hafi með samhentu átaki aðila á vinnumarkaði, stjórnvalda, fyrir- tækja og starfsfólks að stuðla að stöðugu verðlagi og aukningu kaup- máttar launa í hægum en öruggum skrefum og verðlag sé nú stöðugra en það hefur verið í heilan áratug. Segja SA þennan stöðugleika vera í bráðri hættu ef marka megi yfirlýs- ingar verkalýðsleiðtoga um yfirvof- andi verkföll á yfirstandandi sam- bandsþingi ASÍ. Árangur sem byggja má á SA benda í tilkynningu sinni á góðan árangur í slagnum við verð- bólguna sem nú sé 1,8% á árs- grundvelli. Stjórnendur séu bjart- sýnir á mun lægri verðbólgu og flestar hagspár geri ráð fyrir góðum horfum í efnahagslífinu á komandi árum. Þá hafi lægstu laun hækkað umfram laun almennt í kjarasamn- ingum undanfarin átta ár og hlutfall þeirra af meðallaunum sé hærra en fyrir efnahagshrunið 2008 og þar með hafi jöfnuður aukist. Vekja þau einnig athygli á því að kaupmáttur lágmarkslauna sé nú 14% hærri en í ársbyrjun 2008 þegar hann var í sögulegu hámarki. Aftur á bak um áratugi SA telja að þau verkföll sem boð- uð hafa verið á komandi vetri muni valda miklu tjóni þar sem krafan um launahækkanir sé langt umfram það sem samrýmist stöðugu verðlagi. Óhjákvæmilegt sé því að ástandið færist aftur um áratugi þegar miklar launahækkanir, óðaverðbólga og stökkbreyttar skuldir voru regla en ekki undantekning. Telja samtökin að þá hafi þjóðin staðið í stað líkt og hamstur á hjóli þrátt fyrir allt erfiðið og standi hún nú frammi fyrir vali um hvort svo verði á ný eða ekki. laufey@mbl.is Boðuð verkföll munu valda tjóni  SA svara yfirlýsingum á þingi ASÍ Morgunblaðið/Kristinn SA Fulltrúar félagsmanna ASÍ boða verkföll. SA telja það varhugavert. Gæsluvarðhald yfir karlmanni sem grunaður er um kynferðisbrot gegn tveimur átta ára drengjum á Akureyri hefur verið framlengt til 14. nóvember nk. Sterkur grunur er uppi um að maðurinn hafi með hótun fengið drengina inn í íbúð sína þar sem hann hafi haft þá á sínu valdi um stund. Þetta kom fram í Akureyri viku- blaði í gær. Lengur í haldi vegna kynferðisbrots

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.