Morgunblaðið - 24.10.2014, Síða 16
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 2014
REYKJAVÍK2014Á FERÐ UMÍSLAND
VITINN
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
„Þetta er á góðu róli. Sumarbústaðir
á boðstólum hafa tvöfaldast frá því
við byrjuðum fyrir fjórum árum. Bók-
anir hafa tvöfaldast. Það eru um 16
þúsund manns sem hafa skráð sig á
tölvupóstlista okkar,“ segir Guð-
mundur Lúther Hallgrímsson, starfs-
maður Búngaló, leigumiðlunar fyrir
sumarhús á Íslandi og í Kanada.
Búngaló er ungt fyrirtæki, stofn-
að 2010 um leið og vefsíðan, þar sem
hægt er að leita að sumarhúsum, fór í
loftið. Hugmyndin kviknaði árið áður
þegar frumkvöðlarnir ætluðu að
leigja sér bústað en komust að því að
það var hægara sagt en gert að afla
upplýsinga um orlofshús á boðstólum.
Þeir voru ekki í neinu stéttarfélagi og
Ljósmynd/Búngaló
Fjölbreytt Sumarhúsin eru af öllum gerðum, stór og smá, og búin búnaði eftir þörfum og smekk.
Einföld leið til að
leigja sumarbústað
Á vefsíðu Búngaló eru á sjötta hundrað orlofshús
Ljósmynd/Búngaló
Útsýni Misjafnt er hvernig orlofshús fólk kýs. Sumir vilja vera nálægt sjó.
starfsmenn eru á skrifstofu fyrirtæk-
isins í Halifax. Sjónum verður síðar
beint að öðrum markaðssvæðum, en
reyndar eru tvö hús í Svíþjóð nú í
gagnagrunninum.
Sumarhúsin eru
bæði stór og smá og
misjafnlega búin og
fer verð eftir stærð,
staðsetningu og
búnaði, svo net-
tengingu og heitum
potti. Mjög auðvelt
er að leita á vefnum
og bóka.
Tekjumódel
Búngaló byggist á því að
fyrirtækið annast bókunina
að fullu og tekjur 15% þóknun
af leigugjaldi.
Búngaló er eitt þeirra fyrirtækja
sem notið hafa góðs af því sjóða- og
stofnanakerfi sem byggt hefur verið
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
„Það hefur verið mikil umræða um
kjúklingaeldi og nýyrðið verk-
smiðjubúskap. Við höfum verið sak-
aðir um að fara illa með dýr, sem er
náttúrlega fjarstæða. Ef þú ferð illa
með bústofninn skilar það sér í
verri afköstum,“ segir Sveinn Vil-
berg Jónsson, framkvæmdastjóri
hjá Matfugli í Móum á Kjalarnesi,
sem útbúið hefur 150 fermetra úti-
svæði fyrir kjúklinga sem geta þar
valsað frjálsir um þar til þeir eru
leiddir til slátrunar.
Matfugl er með sex hús á Kjal-
arnesi sem notuð eru til þess að ala
upp kjúklinga. Fimm þeirra eru
ekki útbúin útisvæði. Að auki er
Matfugl með kjúklingabú víða um
landið en í heild slátrar fyrirtækið
35-50 þúsund fuglum á viku.
Óerfðabreytt fóður
Sveinn segir að um sé að ræða
tilraunaræktun og ef meiri eftir-
spurn er eftir kjúklingi sem alinn er
Kjúklingarnir eru
frjálsir sem fuglar
Matfugl hefur útbúið útisvæði fyrir
kjúklinga Markaðurinn ræður
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vistvænir kjúklingar á Móum Sveinn Vilberg Jónsson, framkvæmdastjóri Matfugls, stendur við útisvæði þar sem
vistvænir kjúklingar valsa um og éta óerfðabreytt fóður. Eftirspurn neytenda á eftir að koma í ljós.
VI
TINN
2014
eftir að hafa ráfað um á netinu í
marga klukkutíma voru þeir engu
nær. Þeir hugsuðu með sér að til hlyti
að vera auðveldari leið til að finna
sér bústað og í stað þess að
kvarta yfir þessu hófust
þeir handa um að
finna lausn á vanda-
málinu. Úr varð
Búngaló. Annar
frumkvöðlanna,
Haukur Guð-
jónsson, er nú
framkvæmdastjóri
fyrirtækisins.
Á vefsíðu
Búngaló (www.bun-
galo.is) er hægt að velja
um 450 íslensk sumarhús og
um eitt hundrað kanadísk. „Við leggj-
um um þessar mundir áherslu á upp-
byggingu markaðarins í Kanada,“
segir Guðmundur Lúther. Tveir