Morgunblaðið - 24.10.2014, Síða 22

Morgunblaðið - 24.10.2014, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 2014 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Björn Bjarna-son, fyrr-verandi dómsmálaráðherra, þekkir betur til ís- lenskra öryggis- mála, fyrr og síðar, en flestir aðrir. Í tilefni af sérkennilegri umræðu um eðlilega endurnýj- un vopnabúnaðar löggæslu- yfirvalda minnir hann á gamlan síbiljuáróður um að kjarnorku- vopn væru geymd á Keflavíkur- flugvelli. Ekki var fótur fyrir því, þótt fréttastofa Ríkis- útvarpsins, sem löngum er söm við sig, hefði þá reglubundið grafið upp „erlenda sérfræð- inga“ eins og góðkunningja hlustenda, William Arkin. Þess- um hræðsluáróðri var ætlað að hræða Íslendinga frá vilja til að tryggja öryggi sitt. Björn Bjarnason bendir á að vopnaburður við löggæslu hef- ur lengi verið umdeildur. Björn segir svo: „Nú er það hins veg- ar gert tortryggilegt og jafnvel líkt við aðför að almenningi að lögregla endurnýi vopnabúnað sinn án sérstakrar kynningar og umræðna. Andstæðingar þess tíunda allt sem þeim kem- ur til hugar til að ala á tor- tryggni og hræðslu. Á það hefur verið bent í um- ræðunum nú að það þjóni ekki öðrum hagsmunum en að upp- lýsa hugsanlega misindismenn um hvernig og með hvaða tækjum lög- gæslan geti brugð- ist við, ef gefnar eru nákvæmar upp- lýsingar um vopn hennar. Ábyrgð þeirra sem upplýsa slíkt án þess að hafa til þess umboð er mikil.“ Snorri Magnússon, formaður Lands- sambands lögreglumanna, fjallar málefnalega um vopna- endurnýjunina og ítrekar að lögreglumenn „hafi ekki verið að kalla eftir því að lögreglan beri skotvopn við dagleg störf sín“. En Snorri bætir við: „Um- ræðan sem skapast hefur að undanförnu er engu að síður á villigötum. Það er ekkert að breytast hjá lögreglunni. Lög- reglan hefur haft þessi tæki um áraraðir, ef ekki áratugi, það er bara verið að fá þarna að gjöf tæki til endurnýjunar.“ En á þingi sagði Helgi Hrafn Gunn- arsson alþingismaður í tilefni af endurnýjun á vélbyssum: „Ég hef spilað nógu marga tölvu- leiki um ævina til að þekkja þetta vopn. Þetta er dráps- tæki.“ Það mun ekki hafa verið af þessu tilefni sem kerlingin sagði: „Ég sé ekki skóginn fyrir bjánum.“ En hitt er hafið yfir allar deilur, að Helgi Hrafn þingmaður hefur þegar spilað nógu marga tölvuleiki. Sum mál virðast þekktum umræðu- fíklum óviðráðanleg} Sjálfsögð endurnýjun búnaðar Ekki er vitaðhvort Leung Chun-ying, land- stjóri Kínverja í Hong Kong, hafi beðið álitshnekki meðal valdamanna í verkamannapara- dísinni og Alþýðu- lýðveldinu Kína þegar hann sagði í viðtölum við blaðamenn, að aukið lýðræði í borginni myndi þýða það að hinir fátæku myndu fá meira vægi, en heyra mátti á landstjóranum að sér þætti slík þróun ekki góð. Hins vegar urðu ummælin ekki til þess að auka hróður hans meðal mótmælendanna í Hong Kong, sem flykktust heim til hans og kröfðust enn og aftur að Leung myndi segja af sér embætti, en hann hefur tekið því fjarri. Jákvæðu fréttirnar eru þær, að enn bendir ekkert til þess að kínversk yfirvöld muni senda herinn til þess að kveða niður mótmælin. Það getur þó breyst á augabragði ef þolinmæðina þrýtur. Þá eru einhvers konar samningaviðræður hafnar á milli mótmælenda og yfirvalda í Hong Kong. Þær hafa hins veg- ar ekki skilað neinum árangri, enda yfirvöld ákveðin í því að vilji ráðamanna í Peking nái fram að ganga. Mótmælin í Hong Kong munu því lík- ast til ekki skila neinum árangri sem hönd á festir á næstunni. Væntanlega munu íbúar í Hong Kong þurfa að taka því að frambjóðendur í æðstu embætti þeirra verði, í það minnsta enn um sinn, handvaldir af kommúnistaflokknum í Pek- ing. Og nú þegar eru farin að sjást þess merki að þeim fari fækkandi sem mæta á mótmæl- in. Líklega eru flestir orðnir úr- kula vonar um að þau muni skila nokkru. Hitt er svo annað mál, að fjöldahreyfing og mótstaða af því tagi sem nú hefur sést í Hong Kong getur kveikt neista, sem getur síðar orðið að báli, þó að árangurinn sé takmarkaður í fyrstu. Ef stúdentarnir í Hong Kong vinna rétt úr stöðunni er mögulegt að þannig fari að lok- um að stjórnvöld í Peking sjái sig knúin til að gera þær lýðræð- islegu umbætur sem þörf er á í Hong Kong og á meginlandinu. Mótmælin í Hong Kong skila sennilega litlu til skamms tíma en gætu haft áhrif í framtíðinni} Dropinn holar steininn F ull ástæða er til þess að fara var- lega í samskiptum okkar við Kína eins og meðal annars var komið inn á í aðsendri grein í Morgun- blaðinu fyrr í þessum mánuði. Ég get fúslega tekið undir það. Rétt eins og í til- felli fleiri ríkja og ríkjabandalaga. Ákveðin tortryggni innan skynsamlegra marka á fylli- lega rétt á sér í þeim efnum. Ég get hins vegar illa tekið undir það sjónarmið sem kom einnig fram í sömu grein að innganga í Evrópusam- bandið fæli í sér einhverja vörn í þeim efnum. Raunar er það svo að sögulega séð höfum við Íslendingar ríkari ástæðu til að vera á verði gagnvart valdhöfum í Brussel en Beijing. Hvað sem segja má um Kína, sem er svo sannarlega æði margt, þá hafa Kínverjar í það minnsta ekki enn til að mynda reynt að koma á herðar okkar gríðarlegum fjárhagsskuldbindingum án þess að okkur bæri nokkur lagaskylda til þess. Eða hótað okkur ólögmætum viðskiptaþvingunum ef við hættum ekki að stunda tilteknar fiskveiðar í eigin efnahags- lögsögu og verið komnir á fremsta hlunn með að grípa til slíkra meðala. Svo dæmi séu tekin. Enn er ekki útilokað að Evrópusambandið grípi til viðskiptaþvingana gagn- vart okkur Íslendingum í þeim efnum enda heyrast kröf- ur þess efnis enn innan sambandsins. Kína er heldur ekki í gamaldags landfræðilegri út- þenslustefnu eins og Evrópusambandið. Kína fylgir frek- ar hliðstæðri stefnu og Bandaríkin sem byggist einkum á því að tryggja sér pólitísk og efnahagsleg ítök í heiminum. Kínverjar hafa einmitt ekki sízt í því augnamiði keypt mikið af skuldum ríkja innan sambandsins á síðustu árum og þá einkum á evrusvæðinu. Forystumenn Evr- ópusambandsins hafa raunar hvatt mjög til þess og gerðu sér þannig til að mynda sér- staka ferð til Beijing um árið til þess að hvetja Kínverja til þess að halda því áfram og fjárfesta innan sambandsins. Brezka viðskiptablaðið Financial Times fjallaði um það nýverið að efnahagskrísan hefði opnað kínverskum fjárfestum dyr innan Evrópusambandsins sem annars hefðu verið lokaðar. Þangað væru þeir komnir til að vera og fjárfestingar þeirra ættu aðeins eftir að aukast. Meðal annars hafa kínverskir bankar þannig stóraukið umsvif sín innan sambands- ins. Hafi einhverjir haft áhyggjur af því að Kínverjar seildust til áhrifa hér á landi í krafti fjármagns er þannig ljóst að Evrópusambandið er þegar í þeirri stöðu. Ekki er staða sambandsins síðan betri gagnvart Rússum ef út í það er farið enda sambandið til að mynda verulega háð rússnesku gasi sem og fjárfestingum. Evrópusambandið er vissulega stórt og með mörg ríki innanborðs eins og stundum er rætt um. En stærðin hef- ur hins vegar takmarkað gildi þegar hún hvílir meðal annars á pólitískum og efnahagslegum brauðfótum líkt og sambandið gerir. Nokkuð sem á alveg sérstaklega við um evrusvæðið. hjortur@mbl.is Hjörtur J. Guðmundsson Pistill Vörn gegn Kína? STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon BAKSVIÐ Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Gagnamagnið sem fer umfarnet fjarskiptafyrir-tækjanna og snjalltæki áborð við síma og spjald- tölvur tengjast hefur nánast þrefald- ast á einu ári. Að meðaltali halar hver áskrifandi niður um 12 gíga- bætum (GB) af gögnum á ári. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í tölfræðiskýrslu Póst- og fjarskipta- stofnunar (PFS) um fjarskipta- markaðinn á Íslandi fyrir fyrstu sex mánuði þessa árs. Snjalltæki af ýmsum toga hafa orðið æ útbreiddari hér á landi sem annars staðar undanfarin misseri og þá býður 4G-tæknin upp á hraðari flutning á gögnum en áður. Því þarf ekki að undra að gagnanotkunin hafi aukist. Þróunin hefur hins vegar verið afar hröð. Á fyrri helmingi ársins 2012 var gagnamagnið sem var flutt um far- netið tæp 0,6 terabæt (TB). Á sama tíma í fyrra var það um 0,9 TB en á fyrstu sex mánuðum þessa árs var notkunin rokin upp í 2,5 TB. Aðeins fjórðungur gagnanna er sóttur með snjallsímum. Hinir þrír fjórðu hlutarnir eru sóttir af þeim sem eru aðeins með gagnaáskriftir hjá fjarskiptafyrirtækjunum. Þar geta verið spjaldtölvur og netpungar að baki, svo dæmi séu nefnd. Voru fyrst í 4G Skýrslan staðfestir gríðarlegan vöxt í farnetsgögnum að sögn Hrafn- kels V. Gíslasonar, forstjóra PFS. Vöxturinn hefur verið sérstaklega hraður hjá Nova sem hefur aukið hlutdeild sína í gagnamagni hjá þeim sem aðeins eru með gagnaáskrift úr 41,9% í 81,2% á aðeins tveimur ár- um. Alls fara nú um 75% af öllum gögnum sem flutt eru um farsímanet á Íslandi í gegnum kerfi Nova. Nova er með mestu markaðs- hlutdeildina í farsímaáskriftum, um 38% en þegar aðeins er litið til þeirra sem eru bara með gagnaáskrift er hlutdeildin 30% á móti 42% Símans. Hrafnkell segir að það sé 4G-tæknin sem útskýri hversu stór hlutdeild Nova í gagnaflutningum sé í sam- anburði við áskriftinar. „Þau hafa stílað inn á 4G enda voru þau fyrst af stað með sitt 4G- net. Það er ljóst hvað 4G er að gera fyrir farsímanetmarkaðinn hjá þeim. Þau virðast svolítið hafa náð þessum markaði í magni,“ segir Hrafnkell. Eiga meiri aukningu inni Eftir því sem tækninni fleygir fram má búast við að gagnaflutning- arnir eigi aðeins eftir að aukast. Ís- lendingar hafa verið á eftir öðrum Norðurlandabúum í gagnaflutn- ingum um farnet, sérstaklega Svíum og Finnum sem eru lengst komnir í þeim málum. Hrafnkell segir að tölur liggi ekki fyrir um notkun á Norðurlönd- unum fyrir fyrri helming þessa árs en hann telur að hér eigi menn enn töluverða aukningu inni til að ná ná- grannalöndunum. „Ég hef ekki ástæðu til að ætla að þeir séu að slá af,“ segir hann. Nova með 75% af fargagnaflutningum Morgunblaðið/Ómar Gagn Snjallsímanotkun færist í aukana og notendur þeirra sækja sér meira af gögnum. Ísland er þó nokkuð á eftir öðrum Norðurlandaþjóðum. Gagnamagn skipt eftir fyrirtækjum Eingöngu gagnaáskrift 1. H. 2012 1. H. 2013 1. H. 2014 Íþ ús .M B Nova Síminn Vodafone Tal Aðrir 1.600.000 1.400.000 1.200.000 1.000.000 800.000 600.000 400.000 200.000 0 Heimild: Póst- og fjarskiptastofnun Á tali » Íslendingar hafa talað í rúmlega 402 milljónir mín- útna, jafngildi um 765 ára, í farsíma á fyrri helmingi þessa árs. » Það gerir um 976 mínútur eða 16 klukkustundir á hverja farsímaáskrift í landinu. » Viðskiptavinir fjarskipta- fyrirtækjanna Símans, Voda- fone, Nova og Tals sendu alls tæpar 104 milljónir sms- skilaboða á fyrstu sex mán- uðum ársins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.