Morgunblaðið - 24.10.2014, Síða 36

Morgunblaðið - 24.10.2014, Síða 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 2014 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Fólki finnst þú áhugaverður af því að þú hefur ævinlega ferska sýn á við- fangsefnið. Reyndu að miðla málum á for- dómalausan hátt. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú ert í góðri aðstöðu til að taka ákvarðanir og fá fólk til fylgis við þig. Einnig er nú réttur tími til að fara í frí. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er ekkert sem heitir verð- laus skipti. Eldmóður þinn er eins og eftir þrefaldan espressó! En það gengur ekki að nota sömu aðferðir í persónulegum samskiptum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú hefur afskaplega mikið á þinni könnu í dag. Hlustaðu sérstaklega á jarð- merkin: naut, meyju og steingeit. Notaðu tækifærið og miðlaðu öðrum af þinni eigin reynslu sem getur komið þeim vel. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það eru miklar breytingar í gangi og þú verður að hafa þig allan við til þess að fylgjast með og læra ný vinnubrögð. Nýr vinur er á næstu grösum. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú ert nú fullur af krafti og vilt taka til hendinni. Vandinn er bara að velja það besta. Fylgstu bara með. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú þarft að leggja þig fram um að ná samkomulagi milli stríðandi afla. Samræð- ur við maka eru ákafar og innilegar. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú færð óvænt tækifæri varðandi ferðalög, útgáfu, menntun eða lögfræði í dag. Mundu bara eftir þeim sem lögðu hönd á plóginn með þér. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú ert svo öruggur með þig í dag að þú virðist hrokafullur. Líklega muntu eyða peningum í eitthvað fallegt handa þér og ástvinum þínum á næst- unni. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú ert innan um fólk í dag sem á einstaklega vel við þig. Sjáðu það fyrir og forðastu yfirlýsingar sem gætu vakið úlfúð. Að réttu lagi er þetta þér allt til góðs. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það gefur lífinu lit að upplifa eitthvað nýtt og spennandi. Allir hafa gott af því að sjá að það er ekki allt sjálfgefið í þessum heimi. 19. feb. - 20. mars Fiskar Tíma með góðum vinum er alltaf vel varið og þú átt að láta það eftir þér í ríkari mæli. Láttu það ganga fyrir öðru til að byrja með. Davíð Hjálmar Haraldsson skrif-aði á Leirinn á þriðjudags- kvöld að komið hefði í ljós að lög- regluhríðskotabyssurnar væru gjöf frá Noregi, gömul vopn sem hætt var að nota ytra. Vélbyssan er þung og þykk og þarf í neyð að duga en þegar heyrist klikk, klikk, klikk, klikk, klikk – sleppur fluga. Og síðar um kvöldið sagði hann: „Horfði áðan á Kastljós þar sem yfirlögregluþjónn sat fyrir svörum. Sá vildi sem minnst tala um nýju vopnin sem „var aflað“ í Noregi. Á hinn bóginn varð honum tíðrætt um „skýrslu Ögmundar“ þar sem alls kyns vopnabúnaður kom við sögu. Er í skýrslu Ögmundar eiturgas og drónar, skriðdreki og Sködd-geimfar, skammbyssur og prjónar.“ Daginn eftir vakti Davíð Hjálmar athygli á því að rjúpnaveiðar væru að hefjast og færu þá lögreglumenn og aðrir garpar á veiðar. Þeir fara á veiðar í eldgosa eim þótt ískaldur snjórinn sé djúpur en lögga er þrautseig og heldur loks heim með hríðskotnar óeirðarjúpur. Ármann Þorgrímsson spyr á Leirnum: „Gjöf?“ Fulla virðing fyrir okkar frændum ber ég sannfærður þó alveg er ég ekki gefa neitt, það sver ég. Ódýrt kannski eitthvert rusl þeir okkur selja ef ég mætti um annað velja ósatt myndi þetta telja. En Kristján Stefánsson frá Gil- haga hafði orð á því að sama góð- viðrið héldist á Akureyri þrátt fyrir spána: Næðis góð var nóttin dimm nú liggja blóm í valnum, mælist í gráðum frostið fimm fer því að harðna á dalnum. Höskuldur Jónsson gerði þessa athugasemd: Fjúka ísköld fiðrildin fyrir utan glugga. Bylur lemur bílinn minn byrjað er að mugga. Eysteinn Gíslason frá Skáleyjum orti um fegurðarsamkeppni: Glæsileg mörg sýnist mey vor, mjúkvaxinn kroppurinn ei slor, barmurinn kæri, lendar og læri líkt og á Elísabet Taylor. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Skýrsla Ögmundar, rjúpna- veiðar, veðrið og fleira Í klípu „LYFIN HJÁLPA TIL. MÉR FINNST ÉG VERA JARÐBUNDNARI.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÞESS VEGNA KOM ÞAÐ EKKI TIL BAKA“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að halda upp á afmæli fyrsta stefnumótsins ykkar. ÉG RÆÐ ÖLLU HÉR ENGINN ANNAR BAUÐ SIG FRAM HVAÐ VILTU FÁ ÞÉR, HRÓLFUR? Æ, ÉG VEIT ÞAÐ EKKI... AF HVERJU KEMURÐU MÉR EKKI Á ÓVART? HANN VILL EITTHVAÐ ÓVÆNT... SKENKTU HONUM VATN MEÐ SÍTRÓNUSNEIÐ ÚT Í! Litla flugan eftir Sigfús Hall-dórsson er sígilt lag og eitt það besta í annars góðu íslensku lagaúr- vali, að mati Víkverja, og örugglega það besta á árunum 1944-1953. Það var enda tekið fyrir í Óskalögunum, nýjum sjónvarpsþætti hjá ríkis- útvarpinu, um liðna helgi, en með allri virðingu fyrir söngkonunni hefði Víkverji kosið að heyra Egil Ólafsson syngja lagið, því fáir syngja það betur en hann. x x x Litla flugan hefur tengst Víkverjanær alla tíð. Þegar hann var yngri og óreyndari í námi erlendis var lagið ein helsta tengingin við Ís- land. Þá höfðu háskólanemendur ekki efni á því að hringja á milli landa og ekkert var netið en þeir sem gátu sungið Litlu fluguna voru á grænni grein. x x x Litla flugan var ekki aðeins uppá-haldslag Víkverja heldur líka ónefnds prófessors í útlandinu. Þeir gerðu sér stundum glaðan dag og á tímabili héldu þeir upp á vikuna og fögnuðu komu nýrrar með því að fara út að borða á föstudags- kvöldum. x x x Á þessum tíma voru ekki margirveitingastaðir í erlendu borginni sem buðu upp á lambakjöt, sem Vík- verji og prófessorinn tengdu við Ís- land einhverra hluta vegna, en það gerði veitingastaður á Holiday Inn- hóteli í nágrenni við háskólann og þangað lá leiðin einu sinni af aug- ljósum ástæðum. x x x Þegar Víkverji og prófessorinngengu í salinn heilsuðu þeir pí- anóleikara sem lék fyrir gesti. Hann spurði hvaðan þeir væru og þegar hann fékk svarið spurði hann hvern- ig vinsælasta, íslenska lagið hljóm- aði. Félagarnir byrjuðu samstundis að raula Litlu fluguna og það var sem við manninn mælt, hann spilaði undir og náði laginu nánast um leið. Þeir vöndu komur sínar á veitinga- staðinn eins lengi og píanóleikarinn spilaði fyrir gesti og það brást ekki að þegar þeir mættu spilaði hann Litlu fluguna. víkverji@mbl.is Víkverji Enginn er sem þú, Drottinn. Voldugur ert þú og mikill er máttur nafns þíns. (Jeremía 10:6) Viðarhöfða 2 – 110 Reykjavík – Sími 577 6500 – www.takk.is – takk@takk.is Fást í verslunum um land allt Heildsöludreifing Allt til hreingerninga

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.